Fréttatíminn - 24.07.2015, Qupperneq 37
Helgin 24.-26. júlí 2015 matur & vín 37
Njóttu sumarsins með
Veiðikortinu 2015 og
búðu til þínar minningar!
38 vatnasvæði!
www.veidikortid.is
2 0 1 5
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
MIÐASALA HEFST 16. JÚNÍ KL. 10!
Bertolli viðbit er framleitt úr hágæða ólífuolíu.
Það er alltaf mjúkt og auðvelt að smyrja.
Í Bertolli er mjúk fita og fitusýrur sem taldar eru
heppilegri fyrir hjarta- og æðakerfi en hörð fita.
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
Ef þú ert byrjandi í ræktun er
öruggasta leiðin að kaupa sér
plöntu og setja hana annaðhvort í
beð eða ker. Vökva hana reglulega
og klippa. Hún lifir bæði í sól og
skugga en vex betur í sól. Flestar
mintur mynda jarðrenglur, sem
eru eins og stöngull ofan í
jörðinni sem vex langsum ofarlega
í moldinni. Með þessum stöngli
skríður myntan áfram og stækkar
stundum hratt. Þess vegna er ekki
sniðugt að planta henni við hliðina
á uppáhalds plöntunni þinni því
mintan gæti kæft hana. Ef mintan
dreifir sér of mikið er best að rífa
upp renglurnar og slíta af.
Annars er hægt að fjölga mintu
með afleggjurum, sem sé fá gefins
plöntubút með rót. Eða taka stilk
af og setja í vasa með vatni og bíða
þar til að myndast rætur á stilkinn
og þegar þær eru orðnar margar er
tímabært að planta honum í mold
í potti.
Eins og aðrar kryddjurtir hefur
minta gott að því að vera notuð og
klippt reglulega þar sem ný og ný
skot myndast við klippingu. Þegar
eða ef hún blómstrar er hún mjög
líklega orðin alltof sterk fyrir flesta
að nota.
Ræktun
Appelsínu-mintu-
vodka-mojito
1 sítróna, söxuð
1 lime, saxað
1 appelsína, söxuð
1 handfylli af ferskum myntulaufum
1 msk púðursykur eða hrásykur
4 ísmolar
50 ml vodka með gúrkubragði (eða
venjulegt)
sódavatn
Setjið sítrusávextina, mintulaufin og
sykurinn í krukku. Merjið saman og hrærið
svo ísmola og vodka saman við. Setjið í glös
og fyllið upp með sódavatni.
Meðlæti á grillið,
gulrætur með myntu
10 gulrætur hreinsaðar og skornar í jafn-
stóra bita
1 msk smjör
1 tsk eplaedik
Búnt minta (basilminta,hrokkinminta,
grænminta), söxuð gróft
Salt og pipar
Allt sett inn í álpappírsböggul og grillað í
10 til 15 mín. Snúið einu sinni
Heitt vatn og
minta gerir gott
te.
Minta lífgar
upp á vatnið.