Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.07.2015, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 24.07.2015, Blaðsíða 39
frá Lyon í Frakklandi þróuðu þessa gleraugnalínu sem þjónar þörfum trend- og tískumeðvitaðra, beggja vegna Atlantsála. Gleraugun hafa slegið í gegn í hönnunarbúðum austan hafs og vestan, ekki síst í hinni trendsetjandi Colette í París sem og Selfridges og Conran í London. Sama er upp á teningnum hjá MoMA, verslun nýlistasafns New York borgar, þar segjast menn ekki hafa undan að fylla hillurnar af þessari skemmtilegu vöru. Gleraugun fást í styrkleikum +1 +1,5 +2 +2,5 og +3. Þau koma í klassískum og retró formtýpum og fást í fjölda glaðra lita, með silkimjúkri áferð. Þeim er pakkað í verklegt filthulstur sem síðan er í snotri öskju og sanngjarnt verð þessara trendý gleraugna kemur skemmtilega á óvart. Sólgleraugu Á sólríkum sumardögum er notalegt að sitja utan dyra með kaffibolla eða annan góðan drykk, líta í blöðin, lesa bók eða sýsla við annað það sem krefst óskertrar sjónar. Því eru See Concept lesgleraugun jafnframt til sem sólgleraugu í öllum sömu styrkleikum. Að sjálfsögðu fást líka venjuleg sólgleraugu frá þessum ágætu drengjum. Uppfinningarverðlaun Sem fyrr segir hófu 3 franskir námsmenn, þeir Xavier Aguera, Charles Brun og Quentin Couturier, að hanna eins konar loníettur fyrir foreldra sína til að nota þegar þeir fundu ekki gleraugun sín. Að námi loknu snéru þeir sér aftur að þessari hugmynd, svona með hálfum huga og í einhverju bríaríi skröpuðu þeir saman fyrir 50 prótótýpum, sem þeir komu fyrir í bönkum og pósthúsum til að sjá hvernig þeim yrði tekið. Loníetturnar hreint út sagt slóu í gegn og færðu ungu mönnunum uppfinningarverðlaunin: Innover Entreprendre d‘ESCP- Europe sem hjálpaði þeim að fjármagna næsta þrep, fjöldaframleiðslu vörunnar. Eitt leiddi af öðru og þessir athafnasömu menn byggðu á undraskömmum tíma upp fyrirtækið See Concept. Með flottri hönnun og skemmtilegu tvisti hafa þeir stýrt framleiðslu sinni beint inn í vinsælustu hönnunarbúðir heims, jafnframt því sem þeir hafa unnið til frekari verðlauna. See Concept gleraugun fást í ÉgC í Hamraborg og Minju á Skólavörðustíg. Skólavörðustíg 12 Sími 578 6090 www.minja.is facebook: minja V Ö N D U Ð N Ý J U N G Í L E S G L E R A U G U M K R A FTA V ER K

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.