Fréttatíminn - 24.07.2015, Síða 42
Reykholtshátíð um helgina
U m helgina fer fram tónlistarhátíðin Reyk-holtshátíð. Hátíðin hefur
löngu skipað sér sinn fasta sess
í tónleikalandslaginu á Íslandi
og telst nú til einna af elstu tón-
listarhátíðum á landinu. Að venju
ber Reykholtshátíð upp á síðustu
helgina í júlí sem er jafnframt
vígsluafmæli Reykholtskirkju.
Dagskrá hátíðarinnar saman-
stendur ekki einungis af tónleik-
um heldur verður fyrirlestur á
vegum Snorrastofu og jafnframt
hátíðarguðsþjónusta á sunnu-
deginum. Það eru því margar
ástæður til að koma í Reykholt
þessa helgi og njóta þess sem í
boði er í óviðjafnanlegu umhverfi
Borgarfjarðar. Meðal þeirra sem
koma fram á Reykholtshátíð um
helgina eru Karlakórinn Heimir,
Þóra Einarsdóttir sópransöng-
kona og lágfiðluleikarinn Atte
Kilpeläinen frá Finnlandi. Há-
tíðin stendur frá föstudegi til
sunnudags og ættu allir að finna
sér eitthvað við hæfi í Reykholti
um helgina. Allar nánari upp-
lýsingar um hátíðina má finna á
www.reykholtshatid.is
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Þóra Einarsdóttir kemur fram í Reyk-
holti um helgina. Ljósmynd/Hari.
Þeir sem skrá sig á HRingin
n eiga
möguleika á því að vinna st
órglæsi-
legt lyklaborð frá ducky me
ð
ábrenndu íslensku letri and
virði
24.900
DUCKY
ZERO
YFIR 500.000kr. Í VINNINGA
SKRÁÐU ÞIG Á WWW.HRINGURINN.NET STRAX Í DAG!
STÆRS
TA
LAN MÓT
2015
Á HRingn
um mæta
st helstu
spilarar Í
slands og
keppa
um íslan
dsmeista
ratitilinn
í League
of Legen
ds, CS-GO
og Hearth
stone!
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
Síðumúla 21 | S: 537-5101 | Snuran.is
Opið virka daga 11-18 og laugardaga 12-16
Brúðargjafir og
brúðargjafalistar
F yrir svona þremur árum þá skrái ég mig inn á grúppu á Fa-
cebook sem nefnist Íslensk
raftónlist,“ segir Jón þegar
hann er spurður út í tilurð
samstarfsins. „Mig lang-
aði á þessum tíma að kanna
nýjar lendur í músíkinni á
þessum tíma og þarna inni
voru raftónlistarmenn sem
mig langaði að fá tips frá um
hvað maður ætti að hlusta
á og spjalla um græjur og
slíkt. Svo hef ég bara verið
að kynna mér þetta og fara
á Sónar tónlistarhátíðina
og svo endaði þetta með því
að ég kynnist Árna Grétari
sem rekur Möller Records
og gerir tónlist undir nafn-
inu Futuregrapher, og við
ákváðum að gera eitthvað
saman,“ segir Jón. „Ég
prufaði að setjast við píanóið
og gera eitthvað sem ég
gæti hugsað mér að slaka
á við og Árni setti svo sinn
hljóðheim ofan á það og við
ákváðum að gera bara plötu.
Úr þessu varð einhvers
konar Ambient músík, eða
Sveim eins og það kallast á
íslensku“. Jón hefur verið
iðinn við píanóleik og laga-
smíðar undanfarin rúm 30
ár og þetta er því algerlega
nýtt skref á hans ferli. Hann
segir þó að hann hafi byrjað
á vitlausum enda í tónlistar-
bransanum. „Ég byrjaði 17
ára að spila gömlu dans-
ana og er í dag að fara að
spila á Airwaves, þegar ég
ætti að vera að spila gömlu
dansana,“ segir hann. „Mig
langaði bara að gera eitt-
hvað nýtt og ég er á því að
íslenskir tónlistarmenn eigi
að dýfa sér í eins marga
polla og þeir geta. Annars
staðnar maður bara,“ segir
Jón. Þeir Árni og Jón hafa
lokið upptökum á plötunni
Eitt, og er hún í framleiðslu.
Þeir hafa hafið fjáröflun
fyrir verkefnið á karolina-
fund til þess að fjármagna
það. „Þetta er auðvitað
bara heimilisiðnaður
og ákveðin tilraun hjá
okkur báðum. Við
verðum að spila á
Airwaves í haust
og verðum með
útgáfutónleika
um svipað leyti í
Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar.
Þetta er skemmtilegt
ferli og ólíkt því að
gera hljómsveitarplötur
eins og ég er vanur. Til
dæmis að vera ekki með
neinn texta, sem leysir
mörg vandamál,“ segir Jón
Ólafsson sveimtónlistar-
maður.
Hægt er að styrkja verk-
efnið á www.karolinafund.
com
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Sveim
Úr gömlu dönsunum á Airwaves
Futuregrapher og Jón Ólafsson rugla saman reitum á
nýrri plötu.
Raftónlistarmaðurinn Futuregrapher og píanóleikarinn Jón Ólafsson hafa ruglað saman reitum
sínum og tekið upp plötuna Eitt. Tónlistin á plötunni er af Sveim tegund og varð til upp úr spuna
Jóns á píanó þar sem Árni Grétar Futuregrapher umvafði tónlistina umhverfishljóðum með hljóð-
gervlum. Jón segir ferlið hafa verið skemmtilegt og er á því að tónlistarmenn eigi að dýfa litlu
tánni í eins marga polla og þeir komist í.
42 menning Helgin 24.-26. júlí 2015