Fréttatíminn - 24.07.2015, Page 44
Í takt við tÍmann Sandra Björg Helgadóttir
Á það til að kaupa of mikið af æfingafötum
„Ég er búin að kenna dans undan-
farin 9 ár og spinning í 4 ár. Ég
útskrifaðist úr iðnaðarverk-
fræði frá HÍ á síðasta ári og
síðan þá er ég búin að vera
að vinna hjá Ölgerðinni.“
Staðalbúnaður
„Ég er alltaf í yfirhöfn
frá 66°Norður og á
nokkrar flíkur frá
þeim. Ég á regn-
kápu, Parka-úlpu og
nokkrar svona létt-
ari yfirhafnir, svo
það er ágætis
úrval. Mér
finnst mjög
þæginlegt
að vera í
samfest-
ingi, eða
þægi-
leg-
um buxum, skyrtu og blazer-
jakka. Maður vill vera snyrtilegur
í vinnunni. Samfestingarnir eru í
svolitlu uppáhaldi hjá mér þessa
dagana. Ef það er eitthvað sem ég á
of mikið af þá eru það Nike æfinga-
föt, ég á það til að kaupa of mikið af
þeim. Þegar ég klæði mig upp á þá
er ég með smá æði fyrir leðurbux-
um sem ég á úr Gallerí Sautján og
kannski einhverjum víðum bol við
þær. Svo bara helst nóg af glingri.
Ég versla mest í Zöru, Vero Moda,
Nike, 66°Norður og Vila.
Hugbúnaður
„Ég nýti frítíma minn mikið í
langar æfingar. Ég hef gaman að
svo mörgum íþróttum. Mér finnst
mjög gaman að taka löng hlaup eða
fara í Cross Fit með kærastanum
mínum sem er Cross Fit þjálfari. Ég
fer mikið upp í sumarbústað þegar
ég á frí og mér finnst það mjög gott.
Ég horfi ekki mikið á sjónvarpið.
Ég keypti tveggja mánaða áskrift
að Skjá1 í vetur en sagði henni upp,
þar sem Dr.Phil var að taka all-
ann minn frítíma. Friends er í
miklu uppáhaldi. Síðan hef
ég horft á True Detective
og Breaking Bad sem
eru rosalegir. Við
vinkonurnar eigum
það til að enda á
B5 þegar við för-
um á djammið.
Okkur finnst
samt mjög
gaman að byrja kvöldið á Sushi
Samba sem er í miklu uppáhaldi
eins og Grillmarkaðurinn, sem ég
fer oft á. ítalía er líka klassísk.
Vélbúnaður
„Þegar maður er að kenna dans
og spinning þá þarf maður að vera
með ansi góðan playlista. Ég er með
MacBook Pro og er með öll lögin
mín þar og ég vinn alla mína vinnu
á hana. Tölvan hjálpaði mér líka
í gegnum háskólann. Ég er með
iPhone 6 og nota mest Runkeeper
fyrir hlaup og hjólreiðar. Instagram
og Snapchat. Svo nota ég Íslands-
bankaappið. Já, appið er alger snilld
og svo er Audible app með hljóð-
bókum sem er frábært. Ég reyni
að hlusta á hljóðbækur því ég gefst
svolítið upp við lestur, svo þetta er
mjög sniðugt.“
Aukabúnaður
„Mamma er svakalegur kokkur
og maðurinn hennar líka. Það sem
er í miklu uppáhaldi hjá mér er
indverskur matur sem hún eldar.
Svo finnst mér Saffrankjúkling-
urinn líka mjög góður. Í sumar
hlakka ég mest til þess að fara til
Danmerkur í danskt brúðkaup í
ágúst, hjá æskuvinkonu minni. Það
er sumarfríið mitt í ár. Ég ætla líka
á Fiskidaginn á Dalvík og dansa í
Tinu Turner sýningunni þar. Hún
verður líka á Akureyri í október og
vonandi í Reykjavík einhverntím-
ann í vetur.“
Sandra Björg
Helgadóttir er
25 ára iðnaðar
verkfræðingur
og dansari
sem vinnur hjá
Ölgerðinni og
kennir dans í
World Class.
Hún segist ekki
horfa mikið á
sjónvarp og
notar nánast
allan sinn
frítíma í auka
æfingar. Hún
elskar matinn
sem mamma
hennar eldar
og finnst best
að fara með
kærastanum í
bústað þegar
hún á frí.
Lj
ós
m
yn
d/
A
nt
on
B
ri
nk
Jazzbandið 23/8 mun ferðast
um landið nú í lok mánaðar
og spila prógramm sem þau
kalla Björkologi en það saman-
stendur af vel völdum lögum
úr safni Bjarkar, allt frá Debut
til Vulnicura, sem eru útsett
á jazzvísu. Bandið skipa tvær
íslenskar stelpur og tveir
útlenskir strákar, öll búsett í
Stokkhólmi. 23/8 hóf ferðalag-
ið í Grindavík í gær, fimmtu-
dagskvöld. Í kvöld og annað
kvöld verða þau í Norræna hús-
inu í Reykjavík. Á sunnudaginn
í Stykkishólmskirkju, Græna
hattinum á Akureyri þriðju-
dagskvöld og Gamla bænum á
Mývatni miðvikudagskvöldið
29. júlí. Meðlimir hljómsveitar-
innar eru hinar íslensku Stína
Ágústsdóttir og Anna Gréta
Sigurðardóttir, ásamt þeim
Leo Lindberg og Emil Norman
Kristiansen. Aðgangseyrir á
tónleikana er 2.000 krónur en
ókeypis er inn í Stykkishólmi
og á Mývatni.
Björkology
Björk í Jazzútgáfum
Stína Ágústsdóttir og Anna Gréta Sigurðardóttir, ásamt þeim Leo Lindberg og Emil
Norman Kristiansen.
Tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur er sett
í Jazzútgáfur af hljómsveitinni 23/8 á
tónleikaferð um Ísland.
44 dægurmál Helgin 24.26. júlí 2015