Fréttatíminn - 24.07.2015, Qupperneq 46
ÚTSALA
MEIRI VERÐLÆKKUN!!
VANDAÐUR FATNAÐUR * STÆRÐIR 42-56
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Klífur tind Kilimanjaro
Hef alltaf verið mikill skáti
Viktoría Sigurðardóttir Stefaníudóttir er leiklistarnemi við London College of Music og er að hefja
sitt þriðja og síðasta námsár við skólann í haust. Í ágúst ætlar hún að klífa hæsta tind Afríku,
fjallið Kilimanjaro, í þágu hreins vatns fyrir skólabörn í Kenýa. Hún hefur alltaf verið mikill skáti
en segir þetta það stærsta sem hún hefur gert. Hún er spennt, en líka svolítið stressuð.
É g flutti út fyrir þremur árum og er því að byrja á mínu þriðja ári,“ segir Viktoría
Sigurðardóttir Stefaníudóttir leik-
listarnemi í London. „Ég kláraði
MH á þremur árum og byrjaði á
listdansbraut við LHÍ, en fékk svo
inngöngu við London College of
Music og flutti því út,“ segir hún.
„Ég er að læra leiklist með áherslu
á tónlist en þó er aðaláherslan lögð
á leiklist, sem var mikil áskorun
fyrir mig þar sem ég hafði verið
töluvert meira í dansinum heima
áður en ég fór út. Það er búið að
ganga mjög vel og á síðasta ári
vann ég til verðlauna fyrir hæstu
einkunn á lokaprófi í söng og texta-
flutningi sem var mjög skemmti-
legt,“ segir Viktoría. Lífið í stór-
borginni er áskorun fyrir námsfólk
segir hún, en það hefur gengið
upp hingað til. Í ágúst ætlar hún
að klífa tind Kilimanjaro, sem er
sá hæsti í Afríku. „Það kom fólk í
skólann frá samtökum sem nefnast
Dig Deep og héldu kynningu á sínu
starfi. Þetta eru samtök sem vinna
að sjálfbærni í menntun og heilsu,“
segir Viktoría. „Þau eru ekki bara
að senda peninga á staðinn held-
ur vinna þau mjög náið með sam-
félögunum í Afríku,“ segir hún.
„Þau útvega tækni og þjálfun svo
innfæddir geti breytt sínu eigin
lífi til framtíðar. Samtökin eru svo
með áskoranir sem fólk getur tekið
og safnað peningum um leið. Ég
skráði mig í þessa áskorun og er
söfnunin í þágu hreins vatns fyr-
ir öll skólabörn í Kenýa,“ segir
Viktoría sem er vön því að ganga
á fjöll. „Ég hef alltaf verið mikill
skáti,“ segir hún. „Þetta er þó það
stærsta sem ég hef tekið að mér
og er sem betur fer ekki að fara
ein. Það fer hópur á þeirra vegum
í þessa göngu, og alls öryggis er
gætt,“ segir hún. „Ég er alveg pínu
stressuð, en á góðan hátt. Maður
verður að víkka þægindarammann
til þess að staðna ekki.“
Viktoría er ekki búin að ákveða
hvað hún ætlar að gera eftir út-
skriftina. „Ég ætla að reyna aðeins
fyrir mér í London“, segir hún.
„Maður verður að taka sénsinn
fyrst maður er kominn hingað,“
segir Viktoría Sigurðardóttir Stef-
aníudóttir leiklistarnemi.
Hægt er að styrkja átakið á vef-
sóðinni mydonate.bt.com/fundra-
isers/viktoriasigurdardottir1
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
olga Vocal EnsEmblE
Olga fer um landið
s önghópurinn Olga Vocal Ensemble er nú á sínu þriðja tónleika-
ferðalagi um landið. Í sumar
mun hópurinn bjóða upp á
kvöldverðartónleika í sam-
starfi við Iðnó ásamt því að
halda hefðbundna tónleika
víðs vegar um landið. Hug-
myndin er að keyra hring-
inn frá 21. júlí til 3. ágúst
með viðkomu á Hvolsvelli,
Djúpavogi, Ólafsfirði, Hvann-
eyri, Flatey á Breiðafirði og
síðast en ekki síst í Reykja-
vík. Það er margt á döfinni
hjá Olgu og hún meðal ann-
ars nýkomin frá Frakklandi
þar sem Olga hélt þrenna
tónleika. Hún kemur fram á
tónlistarhátíð í Amsterdam
sem kallast Grachtenfesti-
val og Olga fer til Banda-
ríkjanna í byrjun árs 2017
þar sem hún mun halda um
tólf tónleika í samstarfi við
Baylin Artists Management.
Efnisskrá Olgu hefur vakið
athygli fyrir óhefðbundna
uppbyggingu, þar sem kraft-
mikil klassísk tónlist mætir
vinsælum dægurlögum – allt
frá íslenskum drykkjuvísum
frá miðöldum, til angurværra
tóna hinna gömlu góðu daga.
Hljómurinn sem einkennir
Olgu sameinar alla tónlist í
eina heild á mjög áhrifarík-
an hátt. Allar nánari upplýs-
ingar um tónleikaferðalagið
má finna á www.olgavocalen-
samble.com
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Rokkjötnum frestað
Þungarokkshátíðinni Rokkjötnum sem
átti að fara fram í september hefur verið
frestað til 5. desember. Ástæðan er sú
að bandaríska þungarokkshljómsveitin
Mastodon sem átti að vera stærsta
númerið á hátíðinni hefur hætt við Evr-
óputúr sinn í haust vegna persónulegra
ástæðna. Þeir lögðu samt mikla áherslu
á að koma til Íslands og verða því með
á hátíðinni þegar hún verður haldin í
desember.
Peran slær í gegn
Einn öflugasti stuðningsmaður Leiknis í
Pepsideild karla, Magnús Guðmundsson,
eða Maggi Peran sló heldur betur í gegn í
vikunni þegar hann sá um Snapchat Fót-
bolta.net í einn dag. Meira en 8000 manns
fylgdust með uppátækjum Perunnar sem
þykir líklegur til þess
að fá sinn eigin
sjónvarps-
þátt eftir
færslur
sínar.
Skítug
sirkusföt
Fjöllistakonan
Margrét Erla Maack
bað um hjálp á
Facebook þar
sem hún
þurfti nauð-
synlega
að komast
í þvottavél í grennd við Fáskrúðsfjörð í
vikunni. Margrét er á ferðalagi um landið
með Skinnsemi-Fullorðinssirkus og er
greinilega lítill tími til þess að þvo fötin á
milli sýninga og bílferða. Pósturinn sem
Margrét skrifaði var á þessa leið. „Þekkir
einhver vinur minn einhvern góðan á
Fáskrúðsfirði, sem myndi vilja leyfa mér að
setja í eina þvottavél? Annars eru það bara
nærbuxurnar á röngunni frá fimmtudegi.“
Það er vonandi að Sirkusfólkinu hafi verið
hjálpað.
Siggi Hlö toppar sig
Útvarpsmaðurinn síkáti Siggi Hlö mun
gefa heitan pott í laugardagsþætti sínum
Veistu hver ég var á Bylgjunni í ágúst.
Þátturinn er þekktur fyrir innhringingar úr
heitum pottum um allt land, þar sem konur
í meirihluta láta vel í sér heyra, og er því
Hlö-maskínan með puttann á púlsinum
þegar kemur að því að
þekkja aðdáendur sína.
Nánari upplýsingar
um uppátækið má
finna á Facebooksíðu
þáttarins.
46 dægurmál Helgin 24.-26. júlí 2015