Allt um íþróttir - 01.03.1951, Blaðsíða 8
er sú lágmarksupphæð, sem félög-
in komast af með, því þrátt fyrir
það, að þetta yrði gert, væri bygg-
ingarstarfsemi félagana hvergi
nærri lokið. ...
Samkvæmt venju fþróttanefndar
ríkisins hefur hún leitazt við að
styrkja slíkar framkvæmdir um
40%, en vegna þess hve íþrótta-
sjóðurinn hefur verið févana á
undanfömum árum, tel ég frá-
leitt að reikna megi með meiru en
30% úr sjóðnum til þessara fram-
kvæmda, þrátt fyrir góðan vilja
sjóðstjómar. Að vísu gæti svo far-
ið, að sjóðurinn mundi eflast svo
mjög, ef getraunastarfsemi yrði
komið á, að hann gæti styrkt
þessar framkvæmdir eins og venja
hefur verið. En eg hef ekki talið
rétt að reikna með því.
Samkvæmt lögum um félags-
heimili styrkir Félagsheimilasjóð-
ur byggingu einstakra félagsheim-
ila allt að 40%.
Vallarstjórn hefur sýnt þessu
máli mikinn áhuga og lagt fram
allverulega fjárupphæð því til
stuðnings, og vonar Framkvæmda-
ráðið, að sú samvinna megi hald-
ast, sem verið hefur á milli þess-
ara aðila í þessu máli.
Framkvæmdaráðið hefur leitazt
við að beina y3 af styrk Reykja-
víkurbæjar í þessar framkvæmdir
á undanfömum árum, og vonast
þar með til, að hlutur bæjarins
geti orðið um 30%, að meðtöldum
hluta Vallarstjómar.
Varla væri hægt að segja, að
þegnskylduvinna félagsmanna
væri ofreiknuð sem 10%.
Fjáröflunardæmið lítur því
þannig út:
íþróttasjóður ríkisins
(til íþróttavalla) kr. 1.440.000.00
Félagsheimilasjóður
(félagsheimili) . — 1.280.000.00
Bæjarsjóður að til-
hlutan Í.B.R. og
Vallarstjómar . — 2.400.000.00
Þegnskylduvinna . — 800.000.00
Félagssjóðir .... — 2.080.000.00
Samtals kr. 8.000.000.00
Af þessu yfirliti, sem eg hef nú
gefið, sést, að félögin verða að
leggja fram um 2.8 millj., ef þessi
áætlun ætti að verða að veruleika.
Fjárhagur félaganna er nú þann-
ig, að slíkt er útilokað, nema að
leggja út á nýjar brautir til fjár-
öflunar. Að vísu hafa félögin lagt
í verklegar framkvæmdir í ár 530
þús. kr. úr félagssjóðum, en mér
er það fullkomlega ljóst, að slíkt
er útilokað að geti orðið til fram-
búðar. Ástæðan fyrir því, að þetta
hefur verið kleift í ár, er sú, að
nokkur félög voru að byrja á þess-
um framkvæmdum og eyddu öll-
um sínum framkvæmdasjóðum,
sem þau hafa verið að safna í á
undanförnum áratugum og tóku
jafnvel að láni úr öðmm sjóðum
sínum.
En hvað er það, sem þarf að
byggja, og hvað fæst fyrir þessar
8 millj. króna?
Eg lít svo á, að ef hægt væri
að framkvæma þetta á næstu 10
—12 árum, hefðu félögin til um-
ráða 8 félagsheimili, 3 íþróttahús,
8 knattspymuvelli, 8 handknatt-
80
IÞRÓTTIR