Allt um íþróttir - 01.03.1951, Síða 9

Allt um íþróttir - 01.03.1951, Síða 9
leiksvelli, 3—4 velli með hlaupa- braut í kring fyrir frjálsíþróttir. Þegar ég tala hér um 8 félags- heimili, má enginn skilja orð mín á þann veg, að þau yrðu fullbúin eins og eg tel að þau þurfi að vera. Ef til vill væri því réttara að tala um vísi að félagsheimilum, en þau mundu samt sem áður geta leyst aðkallandi vandamál félagahna. Um íþróttahúsin er það að segja, að eg hef reiknað með mjög einföldum og þarafleiðandi ódýr- um húsum. Reynslan á undanföm- um árum hefur sýnt okkur, að það er nauðsynlegt fyrir íþróttahreyf- inguna að ráða yfir fleiri húsum en nú er, bæði vegna þess, að nú vantar sali hér, og svo hefur það einnig sýnt sig, að þau hús, sem íþróttamenn ráða yfir, notast mun betur en skólarnir. Ef við tökum t. d. íþróttahús Í.B.R., þá eru 39 tímar notaðir þar af íþróttafélög- unum, en hæst hægt að nota 18 tíma í barnaskólunum. Enn frem- ur er talið nú, að félögin fái barna- skólana ókeypis, en reynslan hef- ur sýnt, að það er dýrara að æfa í skólunum en í íþróttahúsi Í.B.R. Ef þessar framkvæmdir, er hér hefur verið drepið á, gætu orðið að veruleika, sem er mín von og trú, þá fyrst tel eg að íþróttafé- lögin geti gegnt þeirri skyldu gagn- vart æsku höfuðstaðarins, sem þau sjálf hafa sett sér. ... Að lokum vil eg taka það fram, að Framkvæmdaráðið hefur leit- azt við að leggja hér fram tillög- ur, er gætu leitt til þess, að félög- in gætu haldið áfram á þeirri braut, sem þau hafa nú lagt út á, að byggja fyrir æsku Reykjavíkur um ókomna framtíð. Sameinaðir stöndum vér, sundr- aðir föllum vér. Með samstilltum kröftum efast eg ekki um, að okk- ur takist að sjá þessum framtíð- arvonum okkar farborða, og þá fyrst geta íþróttafélögin gegnt skyldu sinni til fulls æsku höfuð- staðarins til heilla. SPREYTTU ÞIG! Sá, sem getur svarað 8 spum- ingum rétt, hefur góða þekkingu á íþróttum og íþróttamálum. 1. Hvað á að lesa úr skammstöf- uninni F.Í.R.R.? 2. Hvað hét hollenzka knatt- spymufélagið, sem keppti hér sumarið 1949? 3. Hvað hafa margir hlaupið 5 km. innan við 16 mín. hér á íþróttavellinum ? 4. Hverjum tókst að gera jafn- tefli við Rossolimo á Afmæl- ismóti Taflfélagsins? 5. Hvað hét fyrsti Ólympíu- meistarinn í stangarstökki? 6. Hvaða borg var í upphafi val- in fyrir Ólympíuleikana 1940? 7. Hvaða íþróttafélag varð fyrst Reykjavíkurmeistari í hand- knattleik karla? 8. Hvaða merkur þýzkur íþrótta- frömuður heimsótti okkur s.l. sumar? 9. Hver er núverandi formaður Skíðaráðs Reykjavíkur? 10. Hvað hafa margir íslendingar stokkið 14 metra og lengra í þrístökki? Svör á bls. 106. IÞRÓTTIR 81

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.