Allt um íþróttir - 01.03.1951, Side 13
SUNDMÓT K.R.:
Sveit Ármanns bœtti enn met sitt
í 4x50 metra skriðsundi.
Framkvæmd mótsins var ábótavant.
Hið árlega sundmót K.R. fór
fram í Sundhöllinni 21. febr. s.l.
Áhorfendur voru frekar fáir og
má kannske að einhverju leyti
kenna það vondu veðri og strætis-
vagnaverkfalli. Annars eru sund-
mótin alltaf hálfdauf, það vantar
einhverja stemningu. Þetta mót
var t. d. allt of langdregið og sum-
ir starfsmennirnir virtust ekki
starfi sínu fullkomlega vaxnir,
voru það þó sérstaklega ræsirinn,
sem var óákveðinn, og tímakynn-
ir, en hann var allt of seinn með
sínar fréttir og vissi fólk oft ekki
hvaða riðil hann var að tilkynna.
Vonandi verður þetta lagað fyrir
næsta sundmót og yrði það strax
spor í rétta átt.
Árangur mótsins var nokkuð
jafn og góður, þó að ekkert met
væri sett, nema í boðsundinu.
Pétur og Ari mættust nú í ann-
að sinn á vetrinum í 50 m. og
mátti varla á milli sjá. Pétur hafði
sigurinn, en Ari náði sínum bezta
árangri á vegalengdinni. Það var
annars ánægjuleg breidd í þessari
grein.
í 50 m. baksundi sigraði Ólafur
Guðmundsson nokkuð óvænt, en á
prýðistíma, sínum bezta. í lands-
keppninni við Norðmenn var það
ölafur GuÖmundsson, IR
Ólafur, sem vann okkar óvænta
sigur í 100 m. baksundinu, og er
enginn vafi á miklum sundhæfi-
leikum hans. Kannske hann sé að
ná sér á strik aftur, og er Hörður
þá búinn að fá skæðan keppinaut.
Atli og Þórdís sigruðu í sínum
greinum með yfirburðum og náðu
góðum tíma. Sigurður Þingeying-
ÍÞRÓTTIR
85