Allt um íþróttir - 01.03.1951, Blaðsíða 32
meistarann) og Jappen Eriksen,
en allir náðu prýðisárangri eða
225.9, 224.8 og 221.3 stigum.
í „Nydalsrennet" varð Knarvik
þó að láta í -minni pokann fyrir
Jappen, sem sigraði glæsilega,
hlaut 222.2 stig, en Knarvik 218.9.
Þátttaka í veðmálastarfseminni
hefur aukizt jafnt og þétt upp á
síðkastið óg er veltan nú komin
upp í 1,2 milljónir á viku.
í tvíkeppni, sem fór fram núna
í byrjun marzmánaðar, tókst H.
Hasu að ná sér niðri á S. Sláttvik.
Þriðji varð Mardalen.
Danmörk.
Undanfarna vetur
hefur innanhússknatt-
spyrna átt sífellt meiri
vinsældum að fagna með Dönum,
og í vetur var komið á skipulagðri
keppni milli 6 félaga í Höfn. —
B. 1903 sigraði með 11 stigum,
síðan komu Frem, K.B. og A.B.
í byrjun febrúar var komið á
útsláttarkeppni með þátttöku MFF
frá Svíþjóð. Keppni þá vann B.
1903 einnig, sigraði K.B. í úrslit-
um með 4-2. K.B. sló MFF út í
undanúrslitum með 6-4.
Svíamir urðu stórhrifnir af
þessari „nýju íþrótt", sérstaklega
af reglunum, sem aðallega munu
runnar undan rifjum Lundbergs.
Er leikið með 4 manna liðum, 3
fram og markvörður - cum - bak-
vörður, sem aðeins má nota fætur.
Fyrir hendi og að spyrna út af er
leikmanni vísað út í 1 mín. og
tekið er hart á fastri „tökklun".
Malmö F. F. hyggst að fara aðra
„keppnisferð" yfir sundið á næst-
unni.
Svíþjóð.
Á næstunni verður
vígð í Sundsvall ný
stökkbraut og er gert
ráð fyrir þátttöku um 500 Norð-
manna. Þessi mikla þátttaka er
að þakka skíðamönnum í Þránd-
heimi, en hann er sérstakur „vin-
arbær“ Sundsvall síðan í stríðinu.
Hætt hefur verið við að senda
keppendur til mótsins í risastökk-
brautinni í Oberstdorf (Þýzkal.).
Svíar telja það of áhættusamt.
Norðmaðurinn Sigmund Ruud fer
þangað sem eftirlitsmaður á veg-
um Alþjóðaskíðasambandsins, en
á fundi þess að vori verður það
mál tekið til umræðu.
Norðmenn sendu þrjá keppendur
á „Skansen-mótið“, og er það í
fyrsta skipti í 20 ár, sem norskir
göngumenn keppa í Svíþjóð. Fyr-
ir valinu urðu Martin Stokken, er
varð annar á eftir Mora-Nisse (11
sek. skildu þá að), H. Hermansen,
sem varð fjórði á eftir Nisse Tápp
og undan ,fyrra árs meistaranum'
Áström, og Ivar Formo, er varð
sextándi.
Clas Haraldsson varð fyrstur á
sænska meistaramótinu í tvíkeppni
(göngu og stökkum).
Landskeppni á skautum milli
Svíþjóðar og Hollands lyktaði með
sigri Svíþjóðar, 137—83.
Kúluvarparinn Roland Nilsson
dvelur nú í Bandaríkjunum við
nám. Hann keppti nýlega í kúlu-
varpi og sigraði með 15.36 m.
kasti.
104
IÞRÓTTIR