Allt um íþróttir - 01.04.1952, Qupperneq 7
Fréttabréf frá Ameríku.
Pétur Einarsson.
New York í apríl.
Þar eð ég hefi fyrir löngu lofað
tímaritinu „Allt um íþróttir“ fá-
einum línum héðan, þá finnst mér
vera tími til þess kominn að efna
það heit, þó að litlu leyti sé — og
eins og siður allra er, að lofa bót
og betrun. Skal eg senda a. m. k.
helztu fréttir héðan fram að ÓL,
því að mikið stendur til hjá Amer-
íkumönnum, og eru þeir ákveðnir
í að gera sinn hlut sem glæsilegast-
an. —
Nú fyrir skemmstu er lokið inn-
anhússmótum hérna, og hefur þar
náðst í mörgum tilfellum mjög
góður árangur. Langar mig til að
nefna þá helztu, sem ég man eftir.
1 mílu hlaup: Don Gehrman 4:07.8,
Warren Dreutzler 4:08.2. Þessi
tími er sá bezti, sem Dreutzler hef-
ur náð, og sigraði hann 22. marz
s.l. í Madison Square Garden hinn
fræga langhlaupara Bandaríkja-
manna, Fred Wilt, er hlaupið hafði
hring eftir hring hvor á eftir öðr-
um, þar til um 200 yds voru eftir,
að Dreutzler geystist fram úr hon-
um og kom um 150 yds á undan
í mark. Einnig náði Gehrmann
langbezta tíma vetrarins innan-
húss í 880 yds, 1:51.0 mín. Var
þetta á sérstöku móti, sem haldið
var til að afla farareyris til Hels-
ingfors. Þar var og hinn frægi
skautahlaupari Dick Button.
Don Gehrman setti nýtt innan-
húss heimsmet í vetur í 1000 yds.
hlaupi á tímanum 2:08.2, og hygg
ég hann vera þann, er Ameríku-
menn geri sér mestar vonir um í
800 og 1500 m. í Helsingfors, og
svo mikið er óhætt að segja, að
hann verður í engum vandræðum
að hlaupa innan við 1:50 og 3:50.
Aðrir toppmenn í 800 m. eru Ros-
coe Browne, Mal Whitfield og R.
Pearman, ásamt ótal mörgum
öðrum, og reikna ég með að hér
séu a. m. k. um 20 menn, sem geta
hlaupið á 1:50 mín. og verður úr-
slitakeppnin áreiðanlega afarhörð,
eins og í öllum öðrum greinum.
í 1500 m. mun Dreutzler ásamt
Gehrman verða einna líklegastir,
ef dæm má eftir getu þeirra á
liðnum mótum.
Fred Wilt setti fyrir skömmu
heimsmet í 2ja mílna hlaupi inn-
anhúss á 8:50.7 mín. og mun hann
sennilega reyna við 5000 og 10.000
m. og segist hann muni reyna að
verða Evrópumönnunum skeinu-
hættur. Hefur hann einnig látið
IÞRÓTTIR
79