Allt um íþróttir - 01.04.1952, Side 10
Eysteinsson mun hafa tekið upp
æfingar í vetur, en ekki hefur
heyrzt, að Kjartan væri byrjaður
aftur. Aftur á móti hefur liðið
misst Guðmund Samúelsson og
Kristján Ólafsson.
Hjá K.R. hefur gætt skorts á
áhuga, sem mun án efa stafa af
missi margra góðra leikmanna.
Bergur Bergsson er farinn til sjós,
Steinn Steinsson verður í vor í
prófönnum og Ólafur Hannesson
leikur ekki að læknisráði.
Ekki veitir af að liðin séu í góðri
æfingu fyrir vormótið, en ekki sízt
vegna þess, að hingað mun von,
samkv. hálfopinberum heimildum,
enska atvinnumannaliðsins Brent-
ford frá London. Mun það koma
hingað 27. maí og leika 5 leiki, en
ekki mun enn ákveðið, gegn hverj-
um þeir verða.
Brentford hefur á seinni árum
verið í hópi beztu knattspymufé-
laga Englands. Það var stofnað
1888, en lék fyrst framan af í hér-
aðakeppnum og smærri deildum,
en 1920 var félagið kosið í III.
deild lígunnar, er sú deild var
stofnuð, og 1935 vann það sig upp
í I. deild eftir 2ja ára dvöl í II. d.
Eftir styrjöldina hefur liðið ver-
ið upp og ofan, féll niður í II. deild
fyrsta árið og hefur síðan verið i
lakari helmingi deildarinnar. í vet-
ur var það framan af meðal 3ja
efstu liðanna, en seig síðan niður
á við og mun nú vera í 12.-14. sæti.
Brentford hefur ekki á undanförn-
um árum haft í þjónustu sinni
mjög þekkta leikmenn, nema ef
vera skyldi þjálfarann Jimmy Ho-
gan, Skotann, sem gerði Austur-
ríki að knattspymulegu stórveldi
á áranum fyrir styrjöldina, prédik-
ara stutta samleiksins og hat-
rammur andstæðingur lokaða
varnarleiksins, sem tíðkast í enskri
knattspyrnu nú á dögum.
Nú fyrir skemmstu keypti fé-
lagið Lawton, hinn þekkta lands-
liðsmann Englands á árunum 1939
—48, fyrir 13 þús. sterl.pd. frá
Notts County, til að hressa upp á
framlínuna, sem undanfarnar vik-
ur hefur skorað lítið af mörkum.
Aftur á móti hefur vörn liðsins
verið traust og öragg, og miðfram-
vörðurinn Greenwood var fyrir
nokkru valinn í B-landsliðið enska
til að leika gegn hollenzka lands-
liðinu í Amsterdam.
Vonandi gefst okkur tækifæri til
að sjá og leika gegn þessum mönn-
um, og óskandi væri, að íslenzk
knattspyrna mætti jafnmikið læra
af þessu liði og lærðist af komu
Queen’s Park Rangers, og fram-
farirnar yrðu eins miklar og eftir
þá heimsókn.
Sænska „Idrottsbladet" átti ný-
lega viðtal við Rune Larsson, hinn
fræga grindahlaupara Svía. Hann
var mjög bjartsýnn og sagði, að
frjálsíþróttamennirnir sænsku
fengju a. m. k. f jögur bronsverð-
laun, eða R. Lundberg í stangar-
stökki, hann sjálfur í 400 m. grhl.,
einhver hástökkvarinn og Áberg
eða Landquist , 1500 m.
82
IÞRÓTTIR