Allt um íþróttir - 01.04.1952, Side 21

Allt um íþróttir - 01.04.1952, Side 21
þrautarkeppnin á Ólympíuleikun- um í Helsinki. Árangur Hauks er mjög eftir- tektarverður. Eflaust er hann Frá vinstri: Ingi Þorsteinsson, Haukur Clausen og Valdimar örnólfsson eftir tugþraut Rvíkurmeistaramótsins 1951. 7000 stiga maður, ef hann bætir nokkrar lökustu greinar sínar, svo sem stöng og spjót. Ingi getur líka náð langt, en þá þarf hann að læra greinar eins og hástökk og stöng og taka auk þess köstin í gegn. Valdimar er framtíðarmaður í þessari grein, hann hefur góðan hraða, er ágætur langstökkvari, kúluvarpari og 1500 m. hlaupari. Getur eflaust orðið mjög góður í stöng. Tómas Lárusson er eitt stórt ?. Það orkar ekki tvímælis, að hann gæti orðið með þeim allra fremstu, en til þess þarf bara að æfa. Árangur Bjarna Linnet er eftir- tektarverður, ekki hvað sízt í grindinni. Þeir spá góðu drengirnir, Ólafur og Jafet. Hafa þeir báðir til að bera það, sem fjölþrautarmaður þarf að hafa yfir að ráða — hraða, kraft og þol. Árangur Rúnars Guðmundsson- ar gefur enga heildarmynd af tug- þrautargetu hans. í kúlunni er hann t. d. 1 metra frá vanalegum árangri, í stöng 40 cm. og í kringlu allt að 4 m. Rúnar ætti að reyna sem fyrst aftur og sjá, hvort ekki tekst betur. Einar Frímannsson er snöggur og skemmtilegur íþróttamaður, efnilegur spretthlaupari. Þá er þessu yfirliti mínu yfir frjálsíþróttalíf ársins 1951 hér á landi lokið. Því miður hefur það ekki farið mér eins vel úr hendi og bezt hefði verið á kosið, Les- endur verða að taka viljann fyrir verkið í þeim efnum. Þá vil ég leyfa mér að þakka hr. lögfræðingi Brynjólfi Ingólfssyni fyrir ómetanlega aðstoð, sem hann hefur veitt mér, með því að Ijá mér aðgang að öllum skrám sínum og öðrum íþróttabókum. Að síðustu vil ég svo leyfa mér að leiðrétta villu, sem kom fyrir í síðasta blaði í greininni um lang- stökk. Stóð þar, að Guðmundur Hermannsson hefði stokkið 6.50 m. í langstökki s.l. sumar. Nú hef ég IÞRÓTTIR 93

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.