Allt um íþróttir - 01.04.1952, Qupperneq 27
íslenzkir skíðamenn eiga mikla framtíð
fyrir sér.
Hœíni þeina tekui öiuggum íiamíöium.
Brátt lýkur skíðamótunum og
skíðamenn leggja skíðin á hilluna
um sinn — með söknuði.
Þessi vetur hefur verið mjög ár-
angursríkur, hvað skíðaíþróttina
snertir, breiddin sjaldan verið jafn
mikil og nú orðið svo mikill grúi
af jafngóðum skíðamönnum, að í
keppni er alveg óvíst um, hver sig-
urinn hlýtur. Þegar svo er komið,
er örugg vissa um áframhaldandi
áhuga og betri árangur skíða-
manna vorra, en markið er, að í
keppni erlendis geti þeir orðið lið-
tækir, og víst er, að eftir árangur
þeirra í vetur, er farið að reikna
með þeim sem slíkum.
Landsmót skíðamanna, sem ný-
lega fór fram á Akureyri, undir
handleiðslu þeirra Hermanns Stef-
ánssonar og Björgvins Júníusson-
ar, ber gleðilegan vott um þá fram-
för, sem átt hefur sér stað undan-
farin ár. Hinn íþróttalegi árangur
þessa móts var án efa mjög mik-
ill, enda var það með afbrigðum
vel skipulagt, og eru keppendur á
einu máli um, að það sé eitthvert
hið ánægjulegasta mót, sem þeir
hafa tekið þátt í.
Svo vikið sé fyrst að Alpa-grein-
unum, er augljóst, að þar er bar-
áttan hörðust, enda mest breiddin
í þeim. Úrslitin komu að sumu
leyti á óvart, þótt Haukur Sig-
urðsson frá ísafirði hafi verið ann-
ar af væntanlegum sigurvegurum
í svigi, en að hann skyldi verða af
sigri í tvíkeppninni, sannar að við
öllu má búast hér eftir — Magnús
Guðmundsson úr Reykjavík var
óvæntasti sigurvegarinn og var
frammistaða hans sérlega góð, þar
sem hann var annar í bæði svigi
og bruni, auk þess sem hann var
einn af Reykvíkingunum, sem
hrepptu nafnbótina „bezta svig-
sveit íslands“.
í keppninni um þann titil bar
mest á þeim Ásgeiri Eyjólfssyni,
Reykjavík, og Hauki Sigurðssyni
frá ísafirði, ásamt Reykvíkingun-
um Valdimar Örnólfssyni og Ey-
steini Þórðarsyni. Valdimar sigr-
aði og í bruni, en í því voru Reyk-
víkingar í fremstu röð.
Þingeyingar voru að vonum
fremstir í göngu og hrifsuðu til sín
meistaratitlana. ísfirðingar og
Strandamenn veittu þó harða
keppni og voru framarlega, en
efnilegur mun arftaki Jóhanns
Strandamanns, Magnús Andrés-
son, er nú sigraði í norrænni tví-
keppni. Hér söknuðu margir hins
ágæta siglfirzka skíðamanns, Har-
IÞRÓTTIR
99