Allt um íþróttir - 01.04.1952, Blaðsíða 32
Sarpsborg—Sandefjord 2:0
Snögg—Frederikstad 1:4
Strömmen—Sparta 0:0
Bretland.
Síðasta laugardag í
apríl var skorið úr um
flest varðandi deilda-
keppnina. Áður hafði verið úr því
skorið, að Sheffield Wednesday
mundi komast upp í I. deild eftir
1 leiktímabil í II. deild. Þennan
síðasta leikdag vildi svo til, að þá
áttu 2 eftsu liðin í I. deild að leika
saman, Manchester United og Ar-
senal léku um meistaratitilinn í
Manchester. Nokkrum dögum áð-
ur hafði Arsenal tapað fyrir West
Bromwich og var 2 stigum fátæk-
ara en Manch. United. Arsenal
varð því að sigra með 7:0 minnst
til þess að hreppa titilinn. í leikn-
um voru skoruð 7 mörk, en 6 af
þeim skoraði Manch. United. —
Arsenal missti snemma í leiknum
2 leikmenn út af vegna meiðsla.
Manch. United hefur því unnið
I. deild I fyrsta sinn eftir styrjöld-
ina og var sannarlega mál til kom-
ið, því að 4 leiktímabil af 5 hefur
það hafnað í 2. sæti og öll leik-
tímabilin fengið 50 stig eða meira.
Og þar til í vetur hefur það ætíð
þessi tímabil komizt langt í bikar-
keppninni og borið þar sigur úr
býtum einu sinni. Það hefur því
verið langsamlega jafnasta lið
Englands síðustu árin.
Niður í II. deild falla Fulham og
Huddersfield og er það í fyrsta
skipti, sem þessi lið falla úr I.
104
deild. Fulham kom upp 1949 og
fellur því eftir 3 tímabil, en Hudd-
ersfield hefur leikið í I. deild síð-
an 1920 og var fram að styrjöld-
inni með sterkustu og þekktustu
félögum Englands, hreppti efsta
sætið í I. deild 3 ár í röð, sem að-
eins Arsenal hefur eftir leikið og
þrisvar leikið í úrslitum bikar-
keppninnar. Eftr styrjöldna hefur
það aftur á móti verið á flæðiskeri
statt og oftast lafað á 1 eða 2 stiga
mun.
Sheffield Wednesday fer nú aft-
ur upp eftir 1 ár í II. deild og það
getur það að verulegu leyti þakk-
að 19 ára nýliða, sem settur var
inn í liðið í október, en hefur síð-
an skorað helminginn af mörkum
þess í vetur eða 45 alls. Með því
fer upp Cardiff City, sem leikið
hefur nú lengi í II. deild, eða síðan
192?. Niður í III. deild falla Co-
ventry og Q.P.R., en þeirra sæti
taka Lincoln City og Plymouth
Argyle.
Lokastaðan varð þessi:
Manch. Utd. 42 2311 8 95-52 57
Tottenham 42 22 9 11 76-51 53
Arsenal 42 211110 80-61 53
Portsmouth 42 20 814 68-58 48
Bolton W. 42 19 10 13 65-61 48
Aston Villa 42 19 9 14 79-70 47
Preston 42 17 12 13 74-54 46
Newcastle 42 18 915 98-72 45
Blackpool 42 18 9 15 64-64 45
Charlton 42 17 10 15 68-63 44
Liverpool 42 12 19 11 57-61 43
Sunderland 42 15 12 15 70-61 42
W.B.A. 42 14 13 15 74-77 41
Burnley 42 15 10 17 56-63 40
Manch. City 42 13 13 16 58-61 39
IÞRÓTTIR