Fréttatíminn - 07.08.2015, Síða 6
ÚTSALA
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
20-50%AFSLÁTTUR
25-35%
AFSLÁTTUR
STILLANLEG
RÚM
Verðdæmi
C&J stillanlegt heilsurúm með
infinity dýnu 2x80x200 cm.
Fullt verð kr. 558.000
ÚTSÖLUVERÐ KR. 390.600
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
20-50%
AFSLÁTTUR
SÆNGUR-
FATASETT
MARGAR GERÐIR
LÝKUR Á LAUGARDAG!
Gafl ekki
innifalinn í verði
40%
AFSLÁTTUR AF
160X200 CM
HEILSURÚM
REYNIR heilsurúm
Með Classic botni 160x200 cm.
Fullt verð: 169.900
ÚTSÖLUVERÐ AÐEINS
kr. 99.900
Það er
ekkert
sem bann-
ar fólki að
vera með
hundinn
hægra
megin.
Óðinn eykur meðal annars möguleika Landhelgisgæslunnar til öryggis- og löggæslu
á grunnslóð. Mynd Landhelgisgæslan
LandheLgi Óðinn hannaður eftir þörfum LandheLgisgæsLunnar
Byltingarkenndur strandgæslubátur
Rafnar ehf. afhenti Landhelgis-
gæslunni á þriðjudaginn 10 metra
strandgæslubát en um er að ræða,
að því er fram kemur í tilkynningu
Landhelgisgæslunnar, byltingar-
kennda bátasmíði sem byggir á
nýrri hönnun á þessari tegund báta.
Báturinn, sem hefur hlotið nafnið
Óðinn, hefur mikla þýðingu fyrir
Landhelgisgæsluna og eykur mögu-
leika hennar á að sinna fjölbreyttum
verkefnum sínum, segir enn fremur.
„Þróun á báti sem þessum hefur
staðið yfir í samvinnu við Landhelg-
isgæsluna síðan árið 2011, en bátur-
inn er sérsmíðaður og sérstaklega
hannaður eftir þörfum Gæslunnar.
Þetta er byltingarkennd bátasmíði
sem markar tímamót á þessu sviði,“
segir Björn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Rafnar ehf.
„Óðinn hefur mikla þýðingu fyrir
Landhelgisgæsluna sem getur nú
sinnt fjölmörgum verkefnum og
staðbundnu eftirliti á hagkvæmari
og fljótlegri hátt en á stærri skip-
um. Báturinn eykur meðal annars
stórlega möguleika Landhelgis-
gæslunnar til öryggis- og löggæslu
á grunnslóð. Þá eru kostir bátsins
miklir þegar kemur að æfingum
með þyrluáhöfnum Landhelgis-
gæslunnar sem og varðskipum og
öðrum björgunareiningum í land-
inu. Báturinn mun einnig nýtast
sem aðgerðarbátur sprengju- og
séraðgerðasveitar Landhelgis -
gæslunnar sem og í margvísleg
löggæslu- og eftirlitsverkefni og
önnur sérverkefni,“ segir Georg
Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar.
Frumútgáfur bátsins hafa verið í
prófunum síðustu 3 sumur við eftir-
litsferðir á grunnslóð og við erfið-
ustu aðstæður. Landhelgisgæslan
lítur á afhendingu Óðins sem fyrsta
skrefið í að koma sér upp nokkrum
10-15 metra eftirlits- og björgunar-
bátum til að sinna verkefnum á
grunnslóð.
þ að getur skapað árekstra á stígum milli hjólafólks og fólks á gangi með hunda þar sem hundarnir eru iðulega
vinstra megin,“ segir Morten Lange, fyrr-
verandi formaður Landssambands hjólreiða-
manna og varamaður í stjórn félagsins. „Sér-
staklega eru það útdraganlegir taumar sem
sjást varla, svokallaðir Flexi-taumar, sem
bjóða hættunni heim þegar kemur að slysum
og við höfum heyrt af slíkum dæmum,“ segir
hann en Flexi-taumarnir eru allt að 8 metra
langir og sjást illa vegna þess hversu þunnir
þeir eru.
Rúna Helgadóttir, starfsmaður á skrifstofu
Hundaræktarfélags Íslands (HRFÍ), segist
ekki hafa heyrt af eiginlegum árekstrum
hjólreiðafólks og hundafólks. Á hlýðninám-
skeiðum fyrir hunda er kennd sú almenna
regla að hafa hundinn alltaf í taumi vinstra
megin við sig og töluvert algengt er að fara
á slík námskeið, bæði til að læra betur að
aga hundinn en einnig fær fólk afslátt af ár-
legum hundaleyfisgjöldum hafi það farið á
námskeið með hundinn sinn. „Ástæðan fyrir
því að fólki er kennt að hafa hundinn vinstra
megin á rætur sínar að rekja til þess að rekja
að hermenn höfðu hundana alltaf vinstra
megin til að hafa hægri hendina lausa
fyrir sverð eða önnur vopn.
Í dag er það þannig að ef
fólk ætlar að sýna hundinn
sinn á hundasýningu þarf
að vera með hann vinstra
megin við sig. Þannig er
það um allan heim. Þess
vegna verður fólk að ganga
með þá réttu megin við sig
dags daglega því það gengur
ekki að skipta um hlið bara á sýningum.
Hundarnir ættu ekki auðvelt með það,“ segir
hún en tekur þó fram að það sé ekkert sem
bannar fólki að vera með hundinn hægra
megin við sig dagsdaglega. „Fólk ræður
þessu auðvitað sjálft,“ segir Rúna.
Samkvæmt umferðarsáttmála sem lög-
reglan hefur tekið saman fyrir akandi,
hjólandi og gangandi vegfarendur er það
meginreglan að halda sig hægra megin.
Þegar hundaeigandi gengur hægra megin
með hundinn vinstra megin við sig er hann
því á miðjum göngustígnum en hundar eru
almenn hrifnari af því að fá að þefa í grasinu
utan við stígana á meðan þeir ganga og
fer taumurinn því gjarnan yfir göngu- og
hjólaleið þeirra sem á móti koma. Morten
segist í raun ekki hafa neina lausn á þessu
nema þá að beina því til hundaþjálfara að
upplýsa fólk um að ekki þurfi að vera með
hundana vinstra megin nema um sýningar-
hunda sé að ræða. „Það er líka verið að fjölga
sérstökum hjólreiðastígum þannig að þeir
séu til hliðar við göngustíga, í stað þess að
hjólandi og gangandi vegfarendur deili stíg,“
segir hann og bendir á að hjólafólk kjósi oft
að hjóla frekar á götunni þó sameiginlegur
stígur sé til staðar, einmitt út af mögulegum
árekstrum við gangandi vegfarendur og fólk
með hunda. „Þetta eru þá yfirleitt hjólreiða-
menn sem fara frekar hratt,“ segir hann.
Bæði Morten og Rúna leggja bæði áherslu
á að stígarnir séu fyrir alla og mikilvægt að
fólk sameinist um að sýna hvert öðru tillits-
semi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
samgöngur samvistir hjÓLa- og hundafÓLks ganga misveL
Flexi-hundataumar skapa
slysahættu fyrir hjólreiðafólk
Í hundaskólum er fólki kennt að ganga alltaf með hundinn vinstra megin við sig. Útdraganlegir
taumar sem sjást illa úr fjarlægð, svokallaðir Flexi-taumar, geta skapað slysahættu fyrir hjólreiðafólk
á stígum. Þetta segir fyrrverandi formaður Landssambands hjólreiðamanna. Fulltrúi HRFÍ segir fólki
kennt að hafa hundinn vinstra megin því þannig þurfi að sýna hann á hundasýningum en hefðina má
rekja til þess að hermenn höfðu hundinn vinstra megin og vopnin í hægri hendi.
Hundaeigendum er kennt að hafa hundinn alltaf vinstra megin við sig og getur það skapað óþægindi, jafnvel slysahættu, á sam-
eiginlegum stígum gangandi fólks og hjólreiðamanna. Ljósmynd/Hari
Flexi-taumar eru
útdraganlegir,
geta verið allt að
8 metra langir, og
er erfitt að sjá úr
fjarlægð.
6 fréttir Helgin 7.-9. ágúst 2015