Fréttatíminn - 07.08.2015, Side 10
Þ að sjónarmið að flokka skuli BDSM sem hneigð frekar en áhugamál hefur orðið sífellt meira áberandi í umræðunni hér á landi og á Norðurlöndunum. Þessi viður-
kenning á BDSM-hneigð er því orðin eitt af helstu
baráttumálum félagsins BDSM á Íslandi,“ segir
Soffía sem situr í fræðslunefnd félagsins. Soffía
er reyndar ekki hennar rétta nafn heldur það nafn
sem hún gengur undir innan BDSM senunnar.
„Ég hef enn ekki sagt fjölskyldu minni frá þessum
hneigðum mínum, auk þess sem það ríkja enn
miklir fordómar í garð BDSM-fólks. Þess vegna
treysti ég mér ekki til að koma fram undir eigin
nafni. Ekki enn,“ segir hún.
Málstofa í samstarfi við BDSM á Íslandi var
hluti af Hinsegin dögum í ár. Um fjörutíu manns
mættu á málstofuna sem var haldin á miðvikudag.
Þar var fræðsla um hvað BDSM er og svo fjallað
um þessa þróun í átt að viðurkenningu BDSM sem
hneigðar. „Ljóst er að umræðan um þetta efni er
þörf nú þegar BDSM hefur verið dregið meira fram
í dagsljós dægurmenningarinnar á Íslandi,“ sagði í
auglýsingu um málþingið.
Skýr rammi
Soffía segir mörgum fundargestum hafa komið
á óvart hversu mikil áhersla er lögð á virðingu,
öryggi og samþykki í BDSM. „Það er algjört
grundvallaratriði að fólk tali saman áður en það
stundar BDSM og fari yfir hvað má og hvað má
ekki í leiknum. Þar er settur skýr rammi og ekkert
er farið út fyrir hann. Oft sest fólk niður bæði fyrir
og eftir leik til að fara yfir málin. Þá talar fólk um
hvað því þótti vel heppnað, hvað hefði mátt betur
fara og hvernig því leið á meðan á leiknum stóð,“
segir hún. BDSM á Íslandi stendur reglulega fyrir
öryggis- og kynningarnámskeiðum til að auka
líkur á að fólk gæti alltaf fyllsta öryggis.
Soffía er þrítug, hún hefur verið með unnusta sín-
um í tæplega 10 ár og halda þau heimili saman. Þar
sem þeirra persónulegu þarfir samræmast ekki þá
hafa þau brugðið á það að leita út fyrir hið hefð-
bunda sambandsform til að mæta þeim. „Ég er þá
þar af leiðandi polyamorous eða fjölelskandi. Það
þýðir að ég get átt í rómantísku og/eða kynferðis-
legu sambandi við fleiri en einn aðila, að öllum að-
ilum samþykkum,“ segir hún
Miklir fordómar
Hún bendir á að niðurstöður rannsókna sýni að
fólk sem stundar BDSM upplifi það í sífellt meira
mæli sem hneigð frekar en krydd í kynlífið. „Þá er
einnig töluvert um að BDSM-hneigt fólk hafi fund-
ið fyrir þessum kenndum löngu fyrir kynþroska.
Þegar það horfir til baka áttar það sig á að það sótti
sérstaklega í að fara til dæmis í sjóræningjaleik þar
sem það var bundið við staur, eða í löggu-og-bófa.
Leikirnir samræmast oft þeirra hneigð og þeim
athöfnum sem það leggur stund á í dag án þess að
hafa á nokkurn hátt tengt þetta við kynlíf á sínum
tíma.“
Hvað fordómana varðar segir hún þá sem eru
BDSM-hneigðir í svipaðri stöðu og ýmsir hinsegin
einstaklingar hafa verið í gegnum tíðina. „Fólk er
oft ekki tilbúið til að ræða kenndir sínar út af þeim
fordómum sem það getur mætt. Ég veit um dæmi
þess að fólk fresti læknisheimsóknum því það sér
á því eftir harðan BDSM-leik eða fer ekki í sund
því það er marið. Samfélagið er komið svo stutt á
veg með þetta. Ég hef líka heyrt ljótar sögur af því
að fólk hafi misst vinnuna eftir að fréttir að það
stundaði BDSM eða það jafnvel verið dregið fram
í forræðisdeilu. Það er ekki eitthvað sem fólk vill
hætta á,“ segir Soffía.
Þurfa að ná til ungmenna
Hún ákvað að gefa kost á sér í fræðslunefnd BDSM
á Íslandi vegna brennandi áhuga á því að uppfræða.
„Fræðsla er gríðarlega mikilvæg og sérstaklega er
mikilvægt að unglingar fái fræðslu. BDSM tekur
BDSM-hneigðir vilja viðurkenningu
Forsvarsmenn BDSM á Íslandi eiga í við-
ræðum við fulltrúa Samtakanná 78 og hafa
óskað eftir því að tilheyra regnhlífasam-
tökunum, ekki síst til að geta betur komið
fræðslu til ungmenna. Hinsegin dagar í
samstarfið við BDSM á Íslandi stóðu fyrir
málstofu í vikunni um hvort BDSM sé kyn-
hneigð eða áhugamál. Ung kona sem situr í
fræðslunefnd BDSM félagsins segir fólki hafa
komið á óvart hversu mikil áhersla sé lögð
á öryggi og samþykki í BDSM-leikjum. Hún
segir fordómana enn gríðarlega og þekkir
dæmi um að BDSM-hneigð hafi verið notuð
gegn fólki í forræðisdeilu.
hins vegar ekki á móti fólki í
félagið sem er undir 18 ára, ekki
orðið lögráða, og það getur ekki
komið á námskeið hjá okkur.
Mjög margir finna fyrir þessum
kenndum löngu fyrir 18 ára
aldur og hefur því ekki aðgang að
neinni fræðslu. Oft læra þeir því
um BDSM með því að skoða klám
á netinu og það gefur auðvitað
kolranga mynd,“ segir Soffía. Til
að reyna að koma fræðslu til ung-
linga hefur BDSM á Íslandi því
horft hýru auga til Samtakanna´78
sem standa fyrir afar öflugu
fræðslustarfi til allra aldurshópa.
Þó samtökin hafi upphaflega
verið stofnuð sem hagsmuna-
samtök samkynhneigðra hafa
þau á síðustu árum þróast yfir
í að vera regnhlífasamtök fyrir
ýmsa hinsegin hópa, og á síðasta
aðalfundi Samtakanna´78 var til
að mynda bætt við undir regn-
hlífina intersex fólki, asexual og
pankynhneigðum. „Okkur langar
að komast undir þessa regnhlíf og
standa yfir viðræður milli BDSM
á Íslandi og Samtakanna´78 þar
sem við kynnum okkar málstað.
Þessar viðræður hófust síðasta
vetur,“ segir hún en nokkra at-
hygli vakti þegar BDSM á Íslandi
var synjað um þátttöku í Gleði-
göngunni í fyrra og sótti félagið
ekki um að vera með í ár. „For-
svarsmenn Hinsegin daga komu
síðan fram opinberlega og sögðust
hafa hafnað okkur vegna þekk-
ingarleysis. Það er ekkert útilokað
að við verðum með seinna en það
verður bara að koma í ljós hvort
fólk hefur áhuga,“ segir hún
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Töluvert er
um að BDSM-
hneigt fólk hafi
fundið fyrir
þessum kennd-
um löngu fyrir
kynþroska.
Soffía er í fræðslunefnd BDSM á Íslandi. Hún segir BDSM-hneigða mæta
miklum fordómum í samfélaginu og því séu margir ekki tilbúnir til að ræða
kenndir sínar opinskátt. Fræðsla sé því lykilatriði. Ljósmynd/Hari
Hvað er
BDSM?
BDSM stendur fyrir
bindingar, drottnun,
sadisma og masók-
isma. Hugtakið nær
yfir fjölbreytilegan
heim samskipta, and-
legrar skynjunar og
líkamlegrar, sem og
munalosta.
10 fréttaviðtal Helgin 7.-9. ágúst 2015