Fréttatíminn - 07.08.2015, Qupperneq 12
Á
Áhersla er lögð á fræðslu í dagskrá Hin
segin daga sem staðið hafa undanfarna
daga og ná hápunkti sínum á morgun,
laugardag, með gleðigöngu og Regnboga
hátíð við Arnarhól. Hinsegin dagar hafa
vaxið úr eins dags hátíð í sex daga menn
ingarhátíð og eru nú með fjölmennustu
útihátíðum hérlendis, þar sem hinsegin
fólk, fjölskyldur þess og vinir fylkja liði.
Eva María Þórarinsdóttir
Lange, formaður Hinsegin
daga, veltir því fyrir sér af
hverju enn sé verið að halda
hátíð sem þessa þar sem
mikil þróun hafi orðið hér
lendis í málefnum hinsegin
fólks þegar það, þannig séð,
er komið með öll réttindi sem
það hefur verið að berjast
fyrir. En þá, bætir hún við,
koma fram raddir sem ekki
skilja hvað er í gangi og í kjöl
farið fylgja neikvæð og fávísleg ummæli.
Því sé full ástæða til þess að leggja áherslu
á fræðslu í ár., auk fjölbreyttrar dagskrár
sem varpar ljósi á hversu ólíkt samkyn
hneigt fólk er. „Það er mikil þörf á fræðslu
og að víkka sjóndeildarhringinn hjá fólki,“
segir Eva María.
Vissulega hefur mikið áunnist í réttinda
baráttu samkynheigðra og í baráttu gegn
fordómum en enn er verk að vinna. Eva
María bendir á að í þeirri gleði sem hinni
árlegu göngu fylgir vilji það gleymast að
þetta sé mannréttindaganga og mikilvægt
sé að leggja áherslu á það. „Við erum enn
að berjast fyrir sumu sem við vorum að
berjast fyrir 20 árum en samfélagið hefur
breyst til hins betra. Okkur langar líka
til að þakka þjóðinni fyrir stuðninginn.“
Áhersla er enn fremur lögð á heilsu og heil
brigði og aðgangi hinsegin fólks að heil
brigðisþjónustu og um leið stuðlað að op
inni umræðu um þann fjölbreytta hóp sem
hinsegin fólk er, sem oft þarf að sérhæfðri
heilbrigðisþjónustu að ræða sem er sér
staklega sniðin að heilsufarslegum þörfum
hópsins.
Þegar hugað er að fræðsluþættinum er
athyglisvert að skoða niðurstöður dokt
orsverkefnis Jóns Ingvars Kjaran þar sem
viðfangsefnið er hinsegin reynsla og hin
segin veruleiki, rannsókn á líðan hinseg
in ungmenna í framhaldsskólum á Íslandi,
en við hann er rætt á síðu Hinsegin daga. Í
rannsókninni tók Jón viðtöl við 14 hinseg
in ungmenni sem fædd eru á tímabilinu
19871993 og framkvæmdi vettvangsrann
sóknir í tveimur framhaldsskólum. Jón
hafði stundað kennslu í framhaldsskólum
og fannst hinsegin ungmenni fara á mis við
margt það sem gagnkynhneigð skólasyst
kini þeirra upplifðu. Það vakti einnig athygli
Jóns að margir krakkar sem hann var að
kenna komu ekki úr skápnum fyrr en eftir
að framhaldsskóla lauk sem vakti spurn
ingar um það væri eitthvað kerfislægt innan
skólanna sem héldi aftur af þeim. Meginnið
urstaða rannsóknarinnar er sú að það sé gjá
milli þess sem er að gerast í íslensku samfé
lagi annars vegar og íslenska skólakerfinu
hins vegar hvað varðar hinsegin málefni. Á
sama tíma og íslenskt samfélag breytist og
verður frjálslyndara í málefnum hinsegin
fólks sjást þær breytingar ekki innan íhalds
sams skólakerfis, sem viðheldur ákveðnu
umhverfi, eða rými, sem gerir ráð fyrir að
allir séu samkynhneigðir. Skólakerfið hefur
því ekki, samkvæmt rannsókn Jóns, náð að
halda í við þá frjálslyndisþróun sem átt hef
ur sér stað í samfélaginu.
Jón ráðleggur skólastjórnendum að marka
stefnu og tengja hana við jafnréttis og ein
eltisstefnu sem flestir skólar hafa tileinkað
sér. Hann bendir á að þótt skólakerfið sé
frosið í tíma upp að vissu marki sé íslenska
námsskráin, sem samþykkt var 20102011,
ein sú framsæknasta sem finnst á Norður
löndum þegar kemur að hinsegin fræðslu. Í
henni komi fram ákvæði þess efnis að skól
ar þurfi að taka tillit til mismunandi breyta
eins og kynferðis, kyngervis og kynhneigð
ar en skólarnir hafi ekki náð að tileinka sér
þau. Það sem skorti sé framkvæmd stefn
unnar og að brúa gjána sem enn er milli
skólakerfisins og samfélagsins.
Framsækin námsskrá en íhaldssamir skólar í málefnum hinsegin ungmenna
Gjá milli skólakerfis og samfélags
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjÁLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Það tekur á að fela sig
– við erum tilbúin að hlusta
Ókeypis Trúnaður Alltaf opinn
1717
.isHJÁLPARSÍMI OG NETSPJALL RAUÐA KROSSINS
12 viðhorf Helgin 7.-9. ágúst 2015