Fréttatíminn - 07.08.2015, Qupperneq 40
40 heilsa Helgin 7.-9. ágúst 2015
Það er
ömurlegt
að mæta
á æfingu
og vera
alveg
orkulaus.
Góð næring skilar
árangri og vellíðan
Fríða Rún Þórðardóttir hefur æft hlaup og frjálsar íþróttir í 35 ár. Hún starfar sem næringar-
fræðingur í eldhúsi Landspítalans, en þess á milli keppir hún fyrir ÍR í hinum og þessum hlaupum
og þjálfar hlaupahópa bæði hjá ÍR og Víkingi. Fríða á og rekur heilsuvefsíðuna Heilsutorg.is þar
sem fjallað er um heilsu og næringu í sinni víðustu mynd á faglegan máta. Hún segir að til að
ná árangri og finna fyrir vellíðan í íþróttaiðkun sé mikilvægt að hafa næringuna og mataræðið í
heild í góðu lagi.
N æringin og mataræðið í heild skiptir miklu máli, hvort sem við æfum til að
bæta árangur okkar eða heils-
una. Næringin kemur einnig inn
á aðra þætti sem snúa að andlegri
vellíðan og jafnvægi í daglegum
lífsháttum. Góð, hentug og hæfi-
leg þjálfun er annað lykilatriði
sem og hvíld og andlegt jafn-
vægi. Allt þetta stuðlar að góðri
heilsu og vellíðan,“ segir Fríða
Rún, en hún vill þó ekki meina að
einn þáttur sé stærri en annar,
hún trúir því að næring, þjálfun
og hugarfar skipti allt miklu
máli.
Hlustum á líkamann
Nú styttist í Reykjavíkurmara-
þonið, eitt stærsta hlaup sum-
arsins. Spurð um hvað hlauparar
ættu að hafa í huga varðandi
mataræði eftir því sem nær
dregur hlaupi segir Fríða Rún
skipta máli að halda góðu jafn-
vægi í vökvaneyslu, kolvetna-,
prótein- og fituneyslu og miða
það við þörf. „Einnig er mikil-
vægt að hlusta á líkamann, hvort
hann þarf orku eða jafnvel bara
hvíld. Gott er að hugsa með sér:
Hvað er ég að fara að gera næst
og hvar verð ég? Ef þú ert að fara
á hlaupaæfingu eða í ræktina
klukkan fjögur þarftu að borða
klukkan tvö til að hafa orku til
að komast í gegnum æfinguna
en ekki síst til að njóta hennar.
Það er ömurlegt að mæta á æf-
ingu og vera alveg orkulaus.“
Næring, hvíld og vökvajafn-
vægi
Fríða Rún segir að eftir því sem
nær dregur hlaupdegi þurfi að hvíla sig frá æf-
ingum og borða meira af kolvetnum. „Eftir því sem
við ætlum að hlaupa lengra þeim mun meiri við-
bótarorku þurfum við að hlaða okkur upp með. Ef
við ætlum 10 kílómetra þá þurfum við ekki að hlaða
okkur sértaklega upp af kolvetnum en við þurfum
samt að borða skynsamlega og halda áfram að
borða kolvetnaríka fæðu. Fyrir hálft maraþon þarf
ekki að hlaða svo mikið upp en allt í lagi að hafa
það aðeins bak við eyrað síðustu tvo dagana.“ Fyrir
maraþon þarf hins vegar að hlaða upp kolvetni
minnst síðustu fimm dagana fyrir hlaup. „Best er
að auka kolvetnin jafnt og þétt síðustu vikuna fyrir
hlaup,“ segir Fríða Rún. Auk þess skiptir máli að
huga að hvíld og vökvajafnvægi dagana fyrir hlaup
og á það við um allar vegalengdir. „Hægt er að
fylgjast með því hvort nóg sé drukkið með því að
fylgjast með litnum á þvaginu og drekka jafnt og
þétt yfir daginn þannig að þvagið sé ljósleitt á litinn,
eins og dauflitað sítrónuvatn.“
Verum skynsöm
Fríða Rún segir það afar ánægjulegt að sjá hversu
margir eru farnir að hreyfa sig en ekki síst
hversu margir eru farnir að gera það að lífsstíl.
Hún ráðleggur þeim sem ætla að taka þátt í mara-
þoninu í ágúst að hafa skynsemina í fyrirrúmi.
„Ekki fara af stað í hálft og heilt maraþon nema
vera tilbúin í það og hafa lagt að baki þá þjálfun
og þá kílómetra sem til þarf. Margir geta komist
hálft og heilt maraþon en það er ekkert sniðugt
að fara vegalengdina á mörgum klukkustundum
og vera kannski ekki göngufær í marga dag á
eftir.“ Fríða Rún mælir frekar með því að fara
styttri vegalengdir hraðar. „Þá þarf hratt ekki
endilega að vera hratt miðað við þá allra fljótustu
heldur okkur sjálf. Við eigum misgóða daga og
það hvernig tekst að stilla af tempóið og spennu-
stig hugans á hlaupdegi skiptir gríðarlega miklu
máli þegar kemur að lokatímanum þegar stigið er
yfir marklínuna.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Fríða Rún Þórðardóttir sameinar störf sín og áhugamál í gegnum hlaup og nær-
ingu. Í fyrra gaf hún út bókina Góð næring – betri árangur þar sem er að finna
upplýsingar fyrir þá sem vilja auka næringartengda þekkingu sína, óháð því hvaða
íþróttagrein þeir stunda og á hvaða stigi. Mynd/Anton Brink