Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 66
TónlisT sérhannaðir búningar hjá hljómsveiTinni mannakjöT
Karlmennskan nýtur
sín í pallíettunum
Hljómsveitin Mannakjöt, sem stofnuð var á dögunum, ætlar sér stóra hluti. Fyrir rúmri viku kom
út fyrsta lag sveitarinnar, Þrumuský, sem hefur hljómað ótt og títt á öldum ljósvakans undan-
farna daga og um helgina mun sveitin koma fram í fyrsta sinn, á stórtónleikum Hinsegin daga
við Arnarhól. Meðlimir Mannakjöts, sem koma úr hljómsveitunum HAM, Botnleðju, Dr. Spock og
Skálmöld, fara alla leið í þessu og munu klæðast búningum sem hannaðir eru af vöruhönnuð-
inum Sunnu Ásgeirsdóttur, sem segir verkefnið krefjandi en skemmtilegt.
s unna Ásgeirsdóttir vöruhönnuður var fengin til þess að hanna bún-inga fyrir hljómsveitina Manna-
kjöt sem þreytir frumraun sína á sviði
um helgina, á tónleikum Hinsegin daga
við Arnarhól. Hún segir fyrirvarann
hafa verið stuttan en einnig segir hún
verkefnið mjög skemmtilegt. „Þetta er
verkefni sem er hægt að fara með í ótrú-
lega margar áttir,“ segir Sunna.
„Ég sæki innblásturinn aðallega í
Ziggy Stardust, Steven Tyler og Mick
Jagger, eins og þeir klæddu sig á áttunda
áratugnum. Þetta eru mjög feminísk föt
og ég var einmitt að horfa á fatabunkann
sem er hérna hjá mér og átta mig á því
að þetta eru allt kvenmannsföt,“ segir
hún. „Svo breytast þau þegar þessi karl-
menni eru komin í fötin, þá finnst manni
ekkert kvenlegt við þau.“
Meðlimir Mannakjöts eru margir
hverjir langt frá því að vera kvenlegir og
t.d. eru þeir Bibbi úr Skálmöld og Heiðar
úr Botnleðju mikil karlmenni. Sunna
segir þá samt bera þennan klæðnað
mjög vel. „Þeir halda allir sinni karl-
mennsku þrátt fyrir þessa búninga.
Þeir komast upp með allskonar pallí-
ettur og annað,“ segir hún. „Það eru
engir tveir búningar eins og ég var með
ákveðið þema í gangi. Mikið um svart,
gull, glimmer og hlébarðamunstur. Ég
hannaði hvern búning með hvern með-
lim í huga, þó gætu þeir alveg skipt um
búninga án þess að það kæmi niður á
heildarmyndinni. Svo þarf maður að
hugsa þetta út frá því hvernig þetta lítur
út á sviði og sjónvarpi,“ segir Sunna, en
sveitin er á leiðinni í myndbandsupp-
tökur.
„Þetta mun svo eitthvað þróast og þetta
verða nú örugglega ekki einu búningarnir
sem verða hannaðir. Þetta er áhugavert
konsept og mesta vandamálið er að finna
skó,“ segir Sunna. „Skór sem henta þess-
um búningum koma ekki oft í stærð 46 til
Íslands, en við erum að vinna í því.“ Einn
meðlimur Mannakjöts, Óttarr Proppé,
er vanur því að koma fram í skrautlegum
klæðnaði og hann á mikið safn af búning-
um sem Sunna segir að nýtist vel. „Hann
er að vísu erlendis þangað til á laugardag
svo ég hef ekki enn komist í kistuna hans,
en mun gera það strax eftir helgi, held ég,“
segir Sunna Ásgeirsdóttir vöruhönnuður.
Mannakjöt kemur fram á stórtónleikum
Hinsegin daga á Arnarhóli á laugardag.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Meðlimir Mannakjöts í mátun
hjá Sunnu í vikunni. Heiðar Örn
Kristjánsson og Guðni Finnsson munu
klæðast fötum sem eru innblásin af
Steven Tyler og Mick Jagger á áttunda
áratugnum.
„Ég sæki inn-
blásturinn
aðallega í
Ziggy Stardust,
Steven Tyler og
Mick Jagger,
eins og þeir
klæddu sig
á áttunda
áratugnum“
segir Sunna
Ásgeirsdóttir.
Sænsku leikkonurnar í myndbandinu.
TónlisT nýTT myndband Of mOnsTers and men
Leikstjóri Jessie J og Florence
and the Machine leikstýrir OMAM
Hljómsveitin Of Monsters And
Men frumsýndi í gær, fimmtudag,
nýtt myndaband við lagið Empire.
Myndbandið var eingöngu sýnt
á Íslandi áður en heimsbyggðin
fær að sjá dýrðina. Myndabandinu
er leikstýrt af ensku kvikmynda-
gerðarkonunni og plötusnúðnum
Tabithu Denholm sem gert hefur
myndbönd fyrir Florence + the
Machine, Haim og Jessie J sem er
á leiðinni til landsins. Einnig hefur
hún unnið fyrir tískurisann Louis
Vuitton.
Myndbandið er tekið upp í Los
Angeles og eru aðalhlutverkin í
höndum tveggja sænskra kvenna,
ungs módels sem heitir Erika Lin-
der og eldri konu sem heitir Ing-
mary Lami, sem var vinsælt módel
á sjöunda áratugnum. Hugmyndin
að myndbandinu er innblásin af
kvikmyndinni Henry & Maude
sem kom út árið 1971, sem fjallaði
um samband ungs manns og eldri
konu. Denholm langaði að fanga
þetta augnablik en ákvað að hafa
tvær konur í aðalhlutverkunum.
Áður hafði OMAM frumsýnt
svokölluð textamyndbönd við
sex laganna á nýjustu plötu sinni,
sem og leikið myndband við lagið
Crystals. OMAM er nú á tónleika-
ferðalagi en heldur tvenna tónleika
í Eldborgarsal Hörpu 19. og
20.ágúst. -hf
Styttist í Kings of Leon
Tónleikar bandarísku rokksveitarinnar
Kings of Leon verða í nýju Laugardals-
höllinni á fimmtudagskvöldið næsta, 13.
ágúst. Undirbúningur fyrir tónleikana
stendur nú yfir og í vikunni komu þrír
trukkar með Norrænu til landsins
með græjur hljómsveitarinnar.
Þar sem ekki verður byrjað
að setja upp í Höllinni fyrr en
á mánudag munu bílstjórar
trukkanna keyra í rólegheitum
til borgarinnar og sofa í bílum
sínum á leiðinni. Erlent starfs-
fólk við tónleikana kemur til
landsins á sunnudag en ekki er
búist við því að tónlistarmenn-
irnir sjálfir komi fyrr en skömmu
fyrir tónleikana. Þeir koma
frá heimabænum Nashville en
daginn eftir tónleikana fljúga þeir
til Búdapest.
Fleiri litabækur
væntanlegar
Það hefur eflaust ekki farið fram
hjá mörgum að vinsælustu bækur
sumarsins eru ekki hinar hefðbundnu
glæpasögur eða kortabækur heldur hafa
litabækur fyrir fullorðna selst í bílförmum.
Þetta er fjarri því einsdæmi því á met-
sölulistum Amazon má finna fjölda lita-
bóka í efstu sætum. Að sögn Egils Arnar
Jóhannssonar hjá Forlaginu er von á fleiri
litabókum á markaðinn, bæði þýddum sem
og með íslenskum myndum til þess að lita.
Popparar og grínarar
starfa fyrir RIFF
Undirbúningur RIFF-hátíðarinnar er að
komast í hámæli og margt spennandi í
pípunum svo sem tónleikar og sundbíó
auk úrvals kvikmynda alls staðar að úr
heiminum sem sumar hverjar verða
Norðurlanda- og eða Evrópu-
frumsýndar á Íslandi. Um 1000
kvikmyndaleikstjórar allsstaðar
að óskuðu eftir að fá myndir
sínar sýndar á RIFF sem er met-
fjöldi og nú er verið að fara yfir
umsóknir. Dagskráin verður kynnt
með pompi og pragt í byrjun septem-
ber. Hátíðin verður haldin í 12. sinn
dagana 24. september til 4. október.
Starfsfólk hátíðarinnar samanstendur
m.a. af poppurum og grínistum, eins
og oft áður en Dr. Gunni poppari og
Jóhann Alfreð hraðfréttamaður sjá
um kynningarmálin, Otto Tynes um
Bransadagana sem haldnir verða í
fjórða sinn og Atli Bollason, fyrrum
Sprengjuhallarmeðlimur, er ritstjóri
dagskrárrits og bæklings.
Jón Ásgeir á Þjóðhátíð
Margt var um manninn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
um verslunarmannahelgina, venju samkvæmt. Flestir
gestanna voru af yngri kynslóðinni en inni á milli
leyndist gleðifólk á öllum aldri. Meðal gesta á
hátíðinni í ár voru hjónakornin Jón Ásgeir Jó-
hannesson og Ingibjörg Pálmadóttir, sem oftast
eru kennd við fjölmiðlafyrirtækið 365. Þau
sáust meðal annars í fylgd Magnúsar Krist-
inssonar, útgerðarmanns í Eyjum og fyrrum
viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs í Glitni.
66 dægurmál Helgin 7.-9. ágúst 2015
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?