Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 8
Enn á eftir að ráða í um 60 stöðugildi, það er rúmlega 120 starfs- menn í 50% störf. Um 800 börn eru á biðlista eftir frístundaheimili í Reykjavík, samanborið við 900 börn á sama tíma í fyrra. Móðir 7 ára drengs í Grafarvogi, þar sem hlutfallslega flest börn eru á biðlista, segir stöðuna setja marga útivinnandi foreldra í vanda. Enn á eftir að ráða um 120 starfsmenn en sam- kvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg ganga ráðningar vel og reiknað er með að búið verði að fullmanna stöðurnar um miðjan september.  Velferð Á sama tíma í fyrra Voru 900 börn Á biðlista Starfsmenn frístundaheimila Reykjavíkurborgar eru að stórum hluta háskólastúdentar sem eru enn að skipuleggja nám sitt og því ekki búnir að ráða sig í vinnu. Ljósmynd/Hari Þ etta setur marga foreldra sem þurfa að vinna fullan vinnudag í vanda,“ segir Berglind Ásmundsdóttir, móðir 7 ára drengs í Grafarvogi, en sonur hennar er eitt 800 barna sem hefur ekki fengið inni á frístundaheimili í Reykjavík. „Auð vitað myndi maður vilja vera með börnunum sínum eftir skóla en það er ekki valkostur fyrir marga,“ segir hún. Hlut- fallslega flest börn eru á biðlista eftir frí- stundaheimili í Grafarvogi og Berglind hefur fengið þær upplýsingar að sonur hennar sé mjög aftarlega á biðlistanum. Samkvæmt minnisblaði sem lagt var fyrir á fundi skóla- og frístundaráðs Reykja- víkurborgar í vikunni höfðu á þriðjudag tæplega 4.200 börn verið skráð á frístunda- heimili í borginni. Af þeim höfðu 3.390 fengið pláss en um 800 eru á biðlista vegna þess að ekki er enn búið að fullmanna frí- stundaheimilin. Frístundaheimili eru starfrækt við alla grunnskóla Reykjavíkurborgar. Þar er 6 - 9 ára börnum boðið upp á fjölbreytt tóm- stundastarf eftir að skóladegi lýkur en frí- stundaheimilin eru opin frá því skóladegi lýkur og til klukkan korter yfir fimm. 13 -16 börn eru skráð á hvern starfsmann. Enn á eftir að ráða í um 60 stöðugildi, það er rúmlega 120 starfsmenn í 50% störf. Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborg- ar, segir að meðal annars séu það háskóla- stúdentar sem komi til með að manna þessar stöður. Þeir séu enn að skipuleggja sitt nám og stundatöflur og því ekki búnir að ráða sig til vinnu. Börn sem eru í 1. bekk grunnskólans eru í forgangi inn á frí- stundaheimilin á meðan þau eru ekki full- mönnuð. Í minnisblaðinu kemur fram að ráðning- ar gangi vel og búast megi við að ráðið hafi verið í öll störf upp úr miðjum september eins og undanfarin ár. Hlutfallslega fæst börn eru á biðlista í Miðborg/Hlíðum. Á sama tíma árið 2014 voru 900 á biðlista en þá voru umsóknir færri en nú, eða 3.589. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 800 börn á biðlista eftir frístundaheimili  sjÁVarútVegur aldrei meiri makríll í íslenskri lögsögu Styrkir stöðu Íslands í samningaviðræðum Aldrei hefur mælst meira af mak- ríl í íslenskri efnahagslögsögu en í nýloknum sameiginlegum makríl- leiðangri Færeyinga, Íslendinga, Norðmanna og Grænlendinga. Heildarvísitala makríls á svæðinu sem mælingin náði yfir var metin um 7,7 milljón tonn, þar af voru tæp 2,9 milljón tonn innan íslenskrar efnahagslögsögu eða rúm 37% af heildarvísitölunni. „Enginn vafi er á að þessi niðurstaða styrkir stöðu Íslands í komandi samningavið- ræðum um hlut Íslands í makríl- veiðum,“ segir í tilkynningu frá at- vinnuvegaráðuneytinu. Heildarvísitalan í ár er 1,3 milljón tonnum lægri en á síðasta ári en þá var hún sú hæsta síðan rannsókn- irnar hófust árið 2007. Vísitala mak- ríls innan íslenskrar lögsögu hefur hins vegar aldrei verið eins há og í ár, en síðustu þrjú ár var vísitalan þar um 1,6 milljón tonn. Mesta þéttleika makríls var að finna suður af Íslandi og náði út- breiðslan þar sunnar en áður hefur sést. Heildarstærð svæðisins sem kannað var í ár var lítið eitt stærra en á síðasta ári en eins og undanfar- in ár, var aðeins lítill hluti lögsögu Evrópusambandsins kannaður. - eh 37% makrílstofnsins er innan íslenskrar lögsögu samkvæmt nýjum mælingum. Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu. Áskriftarkort Borgarleikhússins Vertu með í vetur! Miðasala 568 8000 | borgarleikhus.is TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is NÝ SENDING MEÐ KJÓLUM & TÚNIKUM STÆRÐIR 14-28 Túnika Verð: 7990 kr PATNAÐU Á CURVY.IS EÐA KOMDU Í VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFEN 9 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16 Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI Með nýrri AquaClean tækni er nú hægt að hreinsa nánast alla bletti aðeins með vatni! Erfiðir blettir eins og eftir tómatsósu, léttvín, kaffi, te, meira að segja kúlupenna, nást á auðveldan hátt úr áklæðinu. Áklæði Basel Torino Roma 8 fréttir Helgin 28.-30. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.