Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 12
Veldu f lot tustu Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri. Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 Skoðaðu úrvalið af flo um DELL tölvum fyrir skólann á advania.is/skoli, verð frá 69.990 kr. una V ið vorum allar búnar að vera hver í sínu horni að hugsa um hversu gaman það væri að geta unnið sjálfstætt og farið dýpra í hlutina sem við teljum okkur vera mjög góðar í,“ segir Helga Hlín Hákonardóttir héraðsdómslögmaður sem rekur ráð­ gjafarfyrirtækið Strategíu ásamt Guðrúnu Ragnars­ dóttur og Svövu Bjarnadóttur. Allar hafa þær áratuga reynslu af stjórnunarstörfum en ákváðu að fara úr góðum stöðum hjá stórum fyrirtækjum til þessa að stofna Strategíu árið 2013. Nýjar víddir og fjölbreyttari raddir Strategía sérhæfir sig í stjórnendaráðgjöf, stefnumót­ un og stjórnendaþjálfun sem Helga segir vera mikla þörf fyrir eftir hrun. Sjálf sérhæfir Helga sig í ráðgjöf til stjórna og fjárfesta, Guðrún sér um stefnumótun og innleiðingu hennar en sérhæfing Svövu er mark­ þjálfun stjórnenda. „Það er greinilega þörf og áhugi fyrir okkar reynslu. Við finnum það að fyrirtæki eru tilbúin til að leita úr fyrir sína eigin veggi að sér­ fræðingum á þessu sviði. Þetta er í takt við þróunina erlendis en eftir fjármálakrísuna 2008 hefur mikið verið rætt um það hver sé besta leiðin til að bæta stjórnarhætti fyrirtækja. Það þarf að breyta lands­ lagi stjórna með því að fá meiri breidd með tilliti til menntunar og reynslu og bakgrunns fólks almennt. Kynjakvótinn er líka ein leið til þess. Þetta eru hlutir sem skipta máli við vandaða ákvörðunartöku og breyttar samsetningar á stjórnum er hluti af bættum stjórnarháttum. Við erum enn að læra af hruninu og að endurhugsa leiðir til að stjórna er hluti af þeim lærdómi. Það segir sig sjálft að ef þú þarft að svara spurningum viltu fá sem fjölbreyttastan hóp ráðgjafa til þess.“ Engin tvö fyrirtæki eru eins „Fjármálaheimurinn er harður bransi, við sáum heilu hagkerfin hrynja fyrir ekki svo löngu. Framkvæmda­ stjórar eru að átta sig sífellt betur á mikilvægi þess að hafa tryggt og gott bakland í stjórnum og gott samstarf við eigendur. Það er mikil vakning í því að stefna fyrirtækja sé tekin í gegn frá toppi til táar, hvort sem um er að ræða stjórnarhætti eða nýjar siðareglur. En svo þarf líka að passa upp á að stefnan sé raunverulega innleidd,“ segir Helga. En hvað eru góðir stjórnarhættir? „Það er nauðsynlegt að skrifa upp landakortið á Erum enn að læra af hruninu Eftir hrun hefur mikið verið rætt um nauðsyn þess að breyta stjórnarháttum fyrirtækja. Helga Hlín Hákonardóttir héraðsdóms- lögmaður hafði unnið í fjármálageiranum í 20 ár þegar hún ákvað að stofna Strategiu ásamt Guðrúnu Ragnarsdóttur og Svövu Bjarnadóttur, en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf til stjórna og fjárfesta. Helga segir stjórnir fyrirtækja þurfa meiri breidd og að kynjakvótinn hafi verið nauðsynlegt tæki til að auka þá breidd. En þar sem konur eigi ekki peningana á Íslandi sé hlutur þeirra enn mjög rýr í stjórnum. Strategia verður með ráð- stefnu í Hörpu þann 10. september þar sem nokkrir helstu aðila íslenskra fyrirtækja munu koma saman til að ræða hlutverk og samskipti eigenda, stjórna og framkvæmdastjóra. „Ástæðan fyrir því að konur eru ekki áberandi í æðstu stöðunum held ég að sé sú að þær fara ekki fyrir eigin fjár- munum. Við eigum ekki peningana á Íslandi,“ segir Helga Hlín Hákonardóttir. Helga hefur starfað á alþjóðlegum fjármálamarkaði í 20 ár auk þess að starfa sem lögmaður stjórna ásamt almennum lögmannsstörfum fyrir fyrirtæki og fjárfesta. Hún segir lög um kynjakvóta á stjórnir íslenskra fyrirtækja hafa verið nauðsynlegt tæki til þess að fá enn meiri breidd í stjórnir fyrirtækja. fyrirtækinu og flæði ákvarðana. Fram­ kvæmdir á rekstrinum þurfa að vera skýrar, sýnilegar og gegnsæjar fyrir alla sem að koma og ákvarðanataka þarf að vera skilvirk. Ég er ekki hrifin af stjórnar­ háttum þar sem allar mögulegar og ómögulegar reglur eru skrifaðar upp og teknar að einhverri fyrirmynd. Það þarf að aðlaga og þarfagreina fyrirtæki og stjórn­ unina fyrir hvert og eitt fyrirtæki. Menn eru of mikið í því að búa til stjórnarhætti að fyrirmynd annarra. Stjórnarhættir eiga að vera raunverulegt verkfærabox fyrir stjórnendur og fjárfesta sem nýtast þeim þegar raunverulega reynir á.“ Konur eiga ekki peningana á Íslandi Íslendingar eru oftar en ekki með efstu þjóðum á lista þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Samt sem áður eru konur sjald­ séðar í hópi æðstu stjórnenda í atvinnu­ lífinu, sem varð til þess að ríkisstjórnin ákvað að setja lög um kynjakvóta í stjór­ num fyrirtækja árið 2013. Af hverju eru svona fáar konur í stjórn­ um fyrirtækja? „Ég byrjaði í fjármálageiranum 1996, þegar fjármálamarkaðurinn var að líta dagsins ljós sem ný atvinnugrein og eftir­ spurn eftir fólki var gríðarleg. Það voru algjör forréttindi fyrir okkur stelpurn­ ar að stökkva þarna inn og næla okkur í stöður því það var ekki þessi saga þar sem karlarnir voru búnir að planta sér og ráða til sín úr sínu eigin tengslaneti. Það var engin slík hefð til staðar. Stelpur komu því að mörgu leyti mjög sterkar inn. En ástæðan fyrir því að konur eru ekki áberandi í æðstu stöðunum held ég að sé sú að þær fara ekki fyrir eigin fjármunum. Við eigum ekki peningana á Íslandi. Þannig að það tekur lengri tíma fyrir áhrif kvenna í stjórnum að leiða niður í fyrirtækin. Stjórnirnar ráða forstjórana og það er nýtt að konur séu áberandi í stjórnum, það tekur tíma fyrir markaðinn að bregðist við því og að það hafi áhrif á ráðningu forstjóranna.“ Kynjakvótinn var nauðsynlegur Var nauðsynlegt að setja kvóta? „Þessi umræða um að fjölga konum í stjórnum var að byrja þegar ég byrjaði í bransanum. Þá voru allir á einu máli um að markaðurinn ætti að ráða því en á þessum 20 árum sem eru liðin frá því að menn kveiktu á perunni hefur því miður ekkert gerst. Markaðurinn fékk sitt tæki­ færi en það gerðist ekkert. Þess vegna var kvótinn settur á og ég tel það vera til góðs á meðan við erum að rétta stöðuna. Ef við lítum á þær konur sem hafa komist í gegnum síuna þá sjáum við að þetta eru sko engir kettlingar. Þetta eru konur með rosalega flotta og breiða reynslu sem eiga fullt erindi í sína stöðu og þetta eru konur sem eru strax farnar að hafa áhrif á stjórnarhætti. Ég held að við séum öll sammála um það að það er óþolandi að þurfa að setja kvóta, en það þurfti og það hefur haft góð áhrif.“ Stjórnir í tilvistarkreppu Helga segir ekki hafa verið mikla hefð fyrir því fyrir hrun að stjórnendur, sem oft á tíðum voru of einangraðir í sinni ákvarðanatöku og stefnumótun, litu til stjórna eftir stuðningi og rýni á forstjór­ ann. En að í dag hafi sú krafa komið upp að hlutverk hvers og eins sé betur skil­ greint. Strategia verður með ráðstefnu í Hörpu þann 10. september þar sem nokkrir helstu aðilar íslenskra fyrirtækja munu koma saman til að ræða hlutverk og samskipti eigenda, stjórna og fram­ kvæmdastjóra. „Margar stjórnir eru í tilvistarkreppu vegna þess að hlutafélagalöggjöf á Ís­ landi er því miður komin til ára sinna og vegna þess að hún er mjög lítið fókuseruð á að skilgreina hlutverk stjórna,“ segir Helga. „Á ráðstefnunni ætlum við að fá mismunandi sjónarhorn þessara þriggja hópa á hvernig þeir líta á sitt hlutverk, þ.e forstjórinn, stjórnin og fjárfestarnir. Allir hafa sitt hlutverk en það er ekki víst að all­ ir hafi sömu myndina af því og við ætlum að koma þeirri umræðu upp á yfirborðið.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Sjá einnig næstu opnu 12 fréttaviðtal Helgin 28.-30. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.