Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 34
34 bílar Helgin 28.-30. ágúst 2015  ReynsluakstuR Renault kadjaR Kadjar er kominn til að vera Nýjasta útspil Renault er hinn fallegi Kadjar, rúmgóður og fjölskylduvænn sportjeppi sem á eftir að veita sambærilegum bílum harða samkeppni. R enault Kadjar er nýjasti bíll-inn frá Renault. Hann hefur jafnvel verið kallaður bróð- urbíll hins vinsæla Nissan Qashqai vegna þess hversu líkir þeir eru en þeir deila einnig ýmsum búnaði. Kadjar á reyndar fleiri bræður, Ren- ault kallar hann stóra bróður Captur sem einnig hefur notið mikilla vin- sælda og þeir sem þekkja til þessara bræðra geta því rétt ímyndað sér að Kadjar er ansi vel heppnaður. Þau eru orðin þó nokkur árin síðan Ren- ault kynnti jepplinginn Koleos til sögunnar en hann er nú flestum gleymdur, jafnvel þó Renault og Nissan hafi líka unnið saman að honum. En Kadjar er kominn til að vera. Það er ég sannfærð um. Aðeins eru tvær vikur síðan Kadjar var kynntur hjá B&L og ég reynsluók því ein- um af fyrstu bílunum sem komu til landsins, fjórhjóladrifnum Kadjar Expression dísilbíl. Og fólk er greinilega vel með á nótunum því einn nágranni minn spurði spenntur: „Er þetta þessi nýi?“ og tveir ökumenn nánast sneru sig úr hálsliðnum við að horfa á bíl- inn á Hringbrautinni snemma á þriðjudags- morgni. Ég tók líka smá rúnt út í mölina þar sem bíllinn stóð sig með prýði og það er mjög skemmtilegt að fylgjast myndrænt með því í mælaborðinu hvernig bíllinn skipt- ir sjálfkrafa milli framhjóla- og fjórhjóladrifs eftir að hann hefur verið settur á þá stillingu með því að snúa einum takka. Kadjar er mjög fallegur og vel hannaður, eins og reyndar flest frá Renault. Hann er einstaklega aðgengilegur og gott að keyra hann. Hvort fólk ætti að velja Kadjar eða Quashqai er held ég bara smekksatriði. Sjálf er ég Nissan-eigandi en gæti vel hugsað mér að keyra Kadjar daglega. Farangursýmið er stærra en á Quashqai og kann ég sérstak- lega vel að meta falskan botn í skottinu sem hægt er að nota til að skipta upp rýminu. Ljósmyndari Fréttatímans sá nákvæmlega ekkert gagnlegt við þetta en ég sagði hon- um að þetta nýttist til að mynda til að halda innkaupapokum uppréttum. Nei, mér finnst ekki nóg að hafa bara einhverja litla snaga í skottinu fyrir troðfulla innkaupapoka. Bílinn er annars búinn helstu þægindum, er með ISOFIX bílstólafestingar, hæðarstill- anlegt sæti fyrir ökumann (sem er gott fyrir lágvaxnar konur), aðgerðarstýri og rafdrifna handbremsu. Expression er einnig með til að mynda fjarlægðarvara að aftan, lyklalaust aðgengi og dökkar rúður að aftan, og svo bætist enn meira við í Dynamic- og BOSE- týpunum. Allir bílarnir sem fást hér eru dís- ilbílar, ýmist framhjóla eða fjórhjóladrifnir. Þetta er fínasti bíll og við eigum án efa eftir að sjá mikið af honum á götum landsins áður en langt um líður. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Renault kadjaR Expression 4wd dísil 130 hestöfl Tog 320/1750 4,9 l/100 í blönd- uðum akstri 129 Co2 g/km Farangursrými 472-1478 10,5 sek 0-100 km/ klst Lengd 4449 mm Breidd 1836 mm Verð frá 3.990.000 kr Farangursrýmið er með tvöfaldan botn og er hægt að nota þann efri til að skipta upp rýminu svo farangurinn sé ekki á fleygiferð. Kadjar er nýjasti bíll Reunault, hann vekur athygli á götum og á eflaust eftir að höfða til margra sem eru í sportjeppahug- leiðingum. Ljósmyndir/Hari Gæði fara aldrei úr tísku Hitastýrð blöndunartæki Stílhrein og vönduð TÍMARITIÐ FERÐAVAGN Troðfullt af skemmtilegu og fræðandi efni Gagnlegar græjur bls 6 Skreytingar fellihýsa bls 26 Adria Aviva söluhæsta hjólhýsið bls 24 Náttúruperla Rauða- sandur Grillum og tjúttum bls 39 Austurland úttekt tjalda.is Vetrarundirbúningur ferðavagna Ný og fersk Bolla + Heimsókn á tjaldstæðið Húsafelli Tischer pallhýsin skoðuð Listi yfir öll helstu tjaldsvæði landsins Nr 2 Ágúst 2015 – Verð kr. 1.990,- ISSN 2298-7223 9 772298 722001 Sparaðu þér 25% af verði blaðsins og fáðu það sent heim Skráðu þig núna á vagn.is eða hringdu í síma 824 8070 Perspi Guard Bakteríusápa og svitastoppari Dreifing: Ýmus ehf Fæst í apótekum Til meðhöndlunar á lyktarvandamálum vegna ofsvitnunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.