Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 52
Riga í Lettlandi 10–13. október 2015 Nokkur sæti eftir Riga er meira en 800 ára gömul borg eða frá árinu 1201. Þar blandast saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli borgarhlutinn með sinn sjarma og hefðbundin nútimaborg í hraðri þróun. Hvort sem það er menningin – söfn eða fallegar byggingar, listviðburðir og verslanir með allt það nýjasta á góðu verði – þá finnur þú það í Riga. Í Riga má finna eitt mesta samansafn af Art Nouveau eða Jugend byggingarlist. Þá er næturlíf Riga orðið þekkt fyrir að vera fjörugt og dregur til sín fjölda fólks víða að. Verð frá 96.900.- Innifalið Flug frá Keflavík og Akureyri, fjögurra stjörnu hótel á besta stað með morgunmat, rúta frá flugvelli og íslenskur fararstjóri. 588-8900 Transatlantic.is T ónlistin í Baldursbrá byggir að hluta á íslenskum þjóðlögum, hvort tveggja rímnalögum og þulum, en þar bregður einnig fyrir rappi og fjörlegum dönsum. Með hlut- verk í sýningunni fara þeir Jón Svavar Jósefsson, Eyjólfur Eyjólfsson, Davíð Ólafsson ásamt Fjólu Nikulásdóttur sem leikur sjálfa Baldursbrá. „Nú eru æfingar alla daga og allt að smella,“ segir Fjóla. „Þetta er ævintýraópera í róman- tískum stíl. Tónlistin er blanda af íslenskri tónlistararfleið í bland við nútímatónlist. Sagan er um blómið Baldursbrá sem býr í lautu og er ánægð með sitt,“ segir Fjóla. „Svo hittir hún spakan Spóa sem finnst agalegt að hún hafi aldrei séð neitt annað en þessa laut. Hann fer til prestsins sem hjálpar honum að grafa hana upp svo þeir geti sýnt henni sólarlagið. Auðvitað er svo litla næringu fyrir Baldursbrá að fá án rótanna og hún byrjar að veslast upp og hún lendir í hrút og yrðlingum og þetta er allt mjög náttúrutengt“, segir Fjóla. „Lítil saga um náttúruna sem endar nú samt vel.“ Fjóla lauk mastersnámi í óperu- söng í Vínarborg í sumar og er komin heim. Hún segir það mjög krefjandi og skemmtilegt að fá að syngja íslenska óperu. „Ég starfa sem söngkona og stýri tveimur kórum, segir hún. Ég er með Hljómfélagið, sem er kór sem ég stofnaði og svo stýri ég Skátakórnum. Svo kenni ég á morgnana á milli þess sem ég syng. Ég var hjá Diddú hjá söng- skóla Sigurðar Demetz áður en ég fór út.“ Óperan Baldursbrá er sýnd daglega í Norðurljósasal Hörpu frá laugardeg- inum til þriðjudagsins 31. ágúst. „Fram- undan er svo bara að koma kórunum mínum af stað fyrir veturinn og undir- búa upptökur með Scola Cantorum í október og ferð til Sviss í nóvember, svo það er nóg að gera. Það er mjög gaman að syngja Baldursbrá og hópurinn er mjög góður. Þetta er mjög flott verk og það er ekki á hverjum degi sem það eru íslensk óperuverk í boði,“ segir Fjóla Nikulásdótir söngkona. Upplýsingar um miðasölu má finna á www.harpa.is Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Reggígoðsögn kemur til landsins  TónlisT ReggídaguR í gamla bíó Reggílistamaðurinn Rocky Dawuni, er væntanlegur til landsins og mun halda tónleika ásamt hljómsveit sinni í Gamla bíói á sunnudaginn, 30. ágúst. Rocky er talsmaður margra mannúðarsamtaka eins og UNICEF og Carter Center og hefur m.a. leitt verkefni stofnað af Hillary Clin- ton á vegum Sameinuðu Þjóðanna með leikkonunni Juliu Roberts og fleirum, sem snýr að því að bæta eldunaraðstöðu fólks í Afríku, en yfir tvær milljónir manna látast á hverju ári út af slæmri eldunarað- stöðu. Rocky hefur deilt sviði með stjörnum eins og Stevie Wonder, Peter Gabriel, Bono, Jason Mraz og fleirum og hefur CNN sett hann á lista yfir 10 bestu tónlistarmenn frá Afríku. Einnig hefur tónlist hans hljómað í sjónvarpsþáttunum ER, Weeds og Dexter sem og í tölvuleikjum FIFA. Í tilefni af komu Rocky Dawuni ætlar Gamla bíó að efna til reggí- dags 30. ágúst sem mun hefjast á fjölskyldutónleikum kl. 15.00, þar sem vinsælasta reggíhljómsveit Ís- lands, AmabAdamA, mun spila en hún mun líka stíga á svið kl. 21.00, áður en Rocky Dawuni og hljóm- sveit hefja leik. Frítt er inn á fjölskyldutónleikana fyrir 10 ára og yngri en 1.000 kr. fyr- ir aðra. Allar nánari upplýsingar má finna á www.gamlabio.is -hf  TónlisT balduRsbRá eR ný íslensk ópeRa í HöRpu Íslensk ævintýra- ópera í róman- tískum stíl Ævintýraóperan Baldursbrá eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guð- mundsson verður frumflutt á sviði í Norðurljósasal Hörpu á laugar- daginn. Baldursbrá var flutt á tvennum tónleikum sumarið 2014 og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, fyrst íslenskra barnasöng- leikja. Uppsetningin nú er samstarfsverkefni Litla óperukompanísins, Íslensku óperunnar og Hörpu. Með aðalhlutverkið fer söngkonan Fjóla Nikulásdóttir, sem flutti heim nýverið eftir nám í Austurríki. Fjóla Nikulás- dóttir ásamt meðleik- urum sínum í óperunni Baldursbrá sem frumflutt verður í Hörpu um helgina. Ljósmynd/Hari 52 menning Helgin 28.-30. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.