Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 11

Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 11
öskrar á hjálp en heilbrigðiskerfið tekur ekki eftir því. Og það virðist vera að þrátt fyrir að konurnar tali um ofbeldið sem þær urðu fyrir, sé samræðunni eytt og að engin vilji sé til að líta á tengslin milli líkama og sálar. Það var þess vegna sem ég ákvað að doktorsverkefni mitt yrði að búa til Gæfusporin,“ segir Sigrún en Gæfusporin er þverfag- leg og einstaklingsmiðuð meðferð fyrir þá sem eiga sögu um erfiðar upplifanir í æsku. Verkefnið hófst á Akureyri haustið 2011 og var í upphafi eingöngu fyrir konur sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku, en núna eru líka Gæfuspor á geðheilsustöðinni í Mjódd, fyrir konur sem hafa orðið fyrir hvers kyns áföllum. Fíkn fylgja alltaf geðræn vandamál „Þrír stórir hópar kvenna hafa farið í gegnum Gæfusporin í Reykjavík og fjórir á Akureyri. Í Gæfusporunum fá konurnar heildræna meðferð og það eru líka farnar óhefðbundnar leiðir eins og til dæmis svæðanudd. Það eru ekki bara gefin lyf, því lyf eru ágæt til að deyfa sársauka en þau lækna ekki áföll. Þau ráðast ekki að rótum vandans heldur ýta honum bara í burtu. Það koma margar konur til okkar sem hafa farið í gegnum meðferð og eru enn að vinna í sínum vandamálum. Ég lít þannig á hlutina að það sé aldrei hægt að taka fíkn út fyrir sviga og horfa á hana eina og sér. Fíkn er afleiðing og henni fylgja alltaf einhver geðræn vandamál, sama hvort það er kvíði, þunglyndi eða annað. Allar konurnar sem hafa komið í Gæfusporin eru með ein- hvers konar fíkn sem er afleiðing af sálrænum áföllum. Það er mis- jafnt hvaða leiðir þær nota til að deyfa sig en þær eru allar með annaðhvort matarfíkn, áfengisfíkn eða lyfjafíkn.“ Vill kynjaskipt meðferðarúr- ræði Sigrún er algjörlega sannfærð um að konur eigi að vera á meðal kvenna í meðferð, án karlmanna. „Það er afar ófullnægjandi fyrir konur, og auðvitað líka karla, sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku að innan heilbrigðiskerfisins sé eingöngu litið á fíknina í stað þess að líta á heildarmyndina. Langflestar þeirra kvenna sem koma í Gæfusporin eru í mikilli hættu á endurteknum áföllum og ofbeldi. Sjálfsmynd þeirra er í molum og þær kunna ekki að setja sér nein mörk. Þær eru að glíma við þrána við að einhver elski þær en eru uppfullar af þeim hugsun- um að þær séu ömurlegar og ekki hamingjunnar virði. Þessar kon- ur fara til dæmis í sjúkraþjálfun þar sem þær læra líkamsvitund því þær eru algjörlega búnar að týna sínum mörkum, þær vita ekki hvar þær byrja og enda, og einmitt þess vegna lenda þær alltaf aftur og aftur í ofbeldi. Og ég veit það af reynslu að þessar konur geta ekki tekist á við það að einhver karlmaður sýni þeim áhuga, það truflar bataferlið. Það er ekki gott að þessar konur séu í bataferli með veikum karlmönnum. Það er nauðsynlegt að þær læri að setja sér mörk og byggi upp sjálfsmynd- ina áður en þær fara að takast á við samskipti við hitt kynið, sem þær hafa fæstar góða reynslu af úr for- tíðinni.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Helgin 28.-30. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.