Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Side 20

Fréttatíminn - 28.08.2015, Side 20
20 viðtal Helgin 28.-30. ágúst 2015 Þegar þú teflir í klukkutíma notarðu jafn mikla orku og skákklukka þarf til að ganga í næstum 100 ár Það er kraftur í þér. Gagnvirk orkusýning Landsvirkjunar við Ljósafoss varpar ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Ljósafossstöð er í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Verið velkomin. Opið 10-17 alla daga. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir fara út í nám og saman fluttu þau til Vínar vorið 2014 til að byrja að læra þýsku. „Ég var á málabraut í mennta- skóla þar sem ég lærði frönsku, spænsku, kínversku og táknmál en mér datt ekki í hug að læra þýsku,“ segir hún og hlær. „Ég var því búin að vera á 5 mánaða þýskunámskeiði þegar skólinn byrjaði.“ Vissi ekki af áheyrnrarpruf- unum Kristín hafði háleita drauma þegar hún ákvað að flytja til Vínar en gerði sér jafnframt grein fyrir að óvissan er mikil í þessum bransa, og hún hafði satt að segja ekki minnstu hug- mynd um að La Scala væri að leita að ungum söngvurum þegar haft var samband við hana þaðan. „Ég var sannarlega á réttum stað á réttum tíma. Ég vissi ekki af þess- ari akademíu við La Scala en hún er að setja upp stóra sýningu næsta sumar, Töfraflautuna eftir Moz- art í leikstjórn Peter Stein sem er þekktur þýskur leikstjóri. Haldnar voru stórar áheyrnarprufur og fimm söngvarar komust að. Allir þeir sem komust í gegn voru ítölskumælandi en þar sem Töfraflautan verður flutt á þýsku vantaði unga söngvara sem væru þýskumælandi. Útsendarar frá La Scala voru því sendir til að finna söngvara. Í mínum skóla eru haldnir tónleikar eftir hverja önn þar sem hver söngkennari kynnir bekkinn sinn. Eftir tónleikana í maí fékk ég tölvupóst frá umboðsmanni í Vínar- borg þar sem mér var óskað til ham- ingju með frammistöðuna og hann sagðist vilja mæla með mér í þetta verkefni. Ég áttaði mig fyrst ekkert á því hvaða maður þetta væri eða hvaða þýðingu þetta hefði en eftir að söngkennarinn minn útskýrði þetta fyrir mér þá áttaði ég mig á hversu stórt tækifæri var að koma upp í hendurnar á mér,“ segir Kristín og spennan leynir sér ekki. „Við vorum 20 úr mínum skóla sem sungum fyrir fulltrúa La Scala. Eftir það var mér boðið að koma til Mílanó og syngja fyrir fleiri. Ég flaug því frá Íslandi í júlí og söng fyrir þau í La Scala. Þetta gekk mjög vel og hlutirnir fóru að gerast mjög hratt. Ég fékk síðan boð um að koma í árs þjálfun við akademíuna við La Scala og syngja hlutverk annarrar dömu í Töfraflautunni. Ég er satt að segja enn að lenda á jörðinni. Þetta voru svo stórkostlegar fréttir,“ segir hún. Las úr ævisögunni í síma Fjölskylda Kristínar er afar söngelsk og segist hún þakklát fyrir stuðning- inn þegar hún ákvað að elta draum- inn. „Ég flutti út upp á von og óvon en var alltaf bjartsýn. Þegar pabbi frétti að ég væri að fara í fyrirsöng- inn í La Scala hringdi hann í mig og las fyrir mig síðustu tvo kaflana í ævisögu Kristjáns Jóhannessonar þar sem hann lýsir upplifun sinni

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.