Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 29
ALICANTE flug f rá
12.999 kr.
TENERIFE flug f rá
19.999 kr.
LONDON flug f rá
9.999 kr.
BARCELONA flug f rá
18.999 kr.
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Gerðu verðsamanburð,
það borgar s ig!
KÖBEN flug f rá
9.999 kr.
október - nóvember 2015
nóvember 2015
september - október 2015
október - 15. des . 2015
september - 15. des . 2015
*999 kr. bókunargjald leggst ofan á hverja bókun og töskugjald er ekki innifalið
nema annað sé tekið fram.
*
*
*
*
*
WOW,
KOMDU
MEÐ!
Reykjavíkurborg
Reykjavík City grants
Granty Miasta Reykjavík
Nú stendur yfir gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum
um styrki vegna starfsemi á árinu 2016. Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til
samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og þjónustu í
samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir
til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
• hvort unnt sé að meta framvindu verksins
• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur
• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi
• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um
styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun nefnda og ráða verði lokið í ársbyrjun 2016.
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má
senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Styrkir
Reykjavíkurborgar
www.reykjavik.is/styrkir
www.reykjavik.is
Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli. Einnig er
þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum
málaflokkum. Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 á hádegi 1. október nk. og eru einungis teknar til
greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur
Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og
mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki
styrkt eftir á. Þá eru styrkir allajafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu
fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi:
ég hafði stofnað til, og fjölskyldan
var hætt að nenna að tala við mig.
Þegar Mary Poppins kláraðist, sem
var mín eina vinna þá, fór í hönd
neyslutímabil þar sem ég drakk
mikið og notaði ólögleg eiturlyf og
náði bara mínum botni hreinlega,“
segir Þórir. „Þetta var í febrúar í
fyrra. Ég var kominn í alvarlegar
og leiðinlegar pælingar og fyrir
guðs mildi þá fann ég bara að þetta
var ekki það sem ég vildi og leitaði
hjálpar. Ég fór á fund og síðan þá
hefur þessi jákvæðnisbolti rúllað.“
Hættur að vera afæta á allt
Þórir er einstæður faðir tveggja
drengja sem eru sex og sjö ára,
og hefur í sínu breytta líferni upp-
lifað nýja sýn á lífið. „Ég er ennþá
gagnrýninn og beittur og að vissu
leyti vottar ennþá fyrir hrokanum
en ég held að það sé farið að bera
á einhverju sem var ekki til staðar.
Ég vona það allavega,“ segir hann
og hlær.
„Allt það fólk sem ég lít upp
til í lífinu hefur það í sér að sýna
auðmýkt og þakklæti í því sem það
er að gera. Mér fannst pirrandi
áður fyrr þegar ég var spurður
hvort það væri ekki gaman að vera
leikari,“ segir hann. „Ég tók því
sem sjálfsögðum hlut af því að ég
var svo frábær. Í dag er ég auð-
mjúkur gagnvart því og í fyrsta
sinn kann ég að vera þakklátur
fyrir það,“ segir Þórir. „Mér hefði
ekki verið treyst fyrir Hróa fyrir
tveimur árum.“
Ertu í sambandi í dag?
„Nei ég er búinn að vera ein-
hleypur í talsverðan tíma,“ segir
Þórir.
„Samband hefur ekki verið á
döfinni undanfarið en það kæmi
mér verulega á óvart ef það gerðist
ekki aftur. Ég er búinn að endur-
heimta tímann með sonum mínum
og er hættur að vera afæta á allt.
Ég gaf aldrei af mér, ég tók bara,“
segir hann. „Ég finn minn tíma
og samband er bara eitthvað sem
kemur með tímanum. Hrói höttur
er á lausu,“ segir Þórir Sæmunds-
son leikari.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
viðtal 29 Helgin 28.-30. ágúst 2015