Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 30
Þ að er gríðarlegur heiður að fá þessa tilnefningu og von-andi opnar það fleiri dyr í
framhaldinu,“ segir Brynja Dögg
Friðriksdóttir en hennar fyrsta
kvikmynd í fullri lengd er tilnefnd
til verðlauna sem besta norræna
heimildamyndin á hinni virtu kvik-
myndahátíð Nordisk Panorama
sem fer fram í september. Myndin
fjallar um bresku listakonuna
Kitty Von-Sometime sem hefur
verið búsett á Íslandi í tíu ár og
ber heitið Ég vil vera skrýtin, eða I
want to be weird.
Sleppa fram af sér beislinu
„Það sem heillar mig við kvik-
myndagerð og sér í lagi heim-
ildamyndagerð eru þær mörgu
áhugaverðu sögur sem leynast
þarna úti,“ segir Brynja. „Margar
eru ósagðar og þurfa að heyrast.
Kvikmyndagerð er skapandi geiri
og í honum vinnur mjög mikið af
skemmtilegu og áhugaverðu fólki.
Ég tel mig því mjög heppna að
geta gert hvort tveggja, að vinna í
þessum bransa og sinna svo heim-
ildamyndagerðinni inn á milli,“
segir hún
Kitty er hvað þekktust fyrir The
Weird Girls Project, sem er röð
verka eða myndbandsþátta þar
sem konur eru í forgrunni. Hver
þáttur er einstakur og byggist á
ákveðinni hugmyndafræði. Kitty
fær hóp kvenna með sér í hvern
þátt en markmið verkanna er
meðal annars að styrkja sjálfs-
traust og líkamsímynd kvenna og
hvetja þær til að sleppa framan af
sér beislinu. Þær Brynja og Kitty
hittust einmitt fyrst þegar Brynja
var önnur tveggja kvikmyndatöku-
kvenna sem tóku upp ellefta þátt-
inn af The Weird Girls Project sem
ber heitið „Secret Garden“ en þar
komu þátttakendur fram naktir.
Þær þekktust því þegar framleið-
endur myndarinnar, Heather Mill-
ard og Adrienne Grierson, voru að
leita að leikstjóra fyrir myndina
vorið 2013.
Þurfti líka að afla tekna
Í myndinni er Kitty fylgt eftir í
daglegu lífi og við vinnu á verkum
sínum. „Mig langaði að gera
portrett af listamanninum Kitty
Von-Sometime, fjalla um hana en
einnig þá hugsun sem liggur að
baki verkum hennar. Ég tala líka
við nokkrar konur sem tengjast
henni og heyri þeirra sjónarmið,“
segir hún.
Brynja hefur unnið að myndinni
með hléum í hálft þriðja ár og seg-
ir hún gott að geta tekið sér hvíld
frá verkefni og koma síðan ferskur
að því aftur. „Ég fylgdi Kitty
eftir og það er annað vinnuferli
að fylgja einhverjum eftir en að
gera mynd um eitthvað fast efni.
Síðan er það reyndar líka þannig
að heimildamyndagerð á Íslandi er
hálfgert áhugamál hjá flestum og
erfitt að lifa af þessu eingöngu. Inn
á milli fór ég því í önnur verkefni
að afla mér tekna,“ segir hún.
Brynja hefur fengist við fjöl-
breytileg verkefni, í náminu gerði
hún heimildamynd um líf fátækra
barnafjölskyldna í Manchester
og síðan vann hún stuttmynd
um sendingar Rauða Krossins á
barnafötun frá Íslandi til Hvíta-
Rússlands, en I want to be weird er
ólík öllu sem hún hefur áður gert.
Myndin var sýnd á Skjaldborgar-
hátíðinni í vor þar sem hún fékk
afar góðar viðtökur. Hún verður
frumsýnd í Reykjavík í Bíó Paradís
fimmtudaginn 3. september og
verður myndin í sýningum í Bíó
Paradís í september.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
The Weird Girls Project er röð verka eða myndbandsþátta þar sem konur eru í for
grunni. Stilla úr myndinni.
Portrett af
listakonu
Kvikmyndagerðarkonan Brynja Dögg Friðriksdóttir segir það
mikinn heiður að hennar fyrsta kvikmynd í fullri lengd sé til
nefnd til verðlauna sem besta heimildamyndin á kvikmynda
hátíðinni Nordisk Panorama. Myndin heitir I want to be weird
og í henni er fylgt eftir listakonunni Kitty VonSometime sem er
hvað þekktust fyrir The Weird Girls Project.
Brynja Dögg Friðriksdóttir segir það mikinn heiður að hennar fyrsta mynd í fullri lengd sé tilnefnd
til verðlauna á Nordisk Panorama.
Listakonunni Kitty VonSometime er fylgt eftir í myndinni I want to be weird . Stilla úr myndinni
Hver er Brynja Dögg?
Gemlingur með fjósalykt
í hárinu og salt blóð í
æðum enda uppalin í
póstnúmeri 781. Kann þó
ekki síður vel við mig á
háum hælum í hundrað
og einum, enda langbest
að blanda þessu tvennu
saman í lífinu, sveitinni
og Sódómu Reykjavík.
Fædd: 28. maí 1978
Menntun: BA í mann
fræði og diplóma í hag
nýtri fjölmiðlun frá HÍ
og MA í heimildamynda
gerð frá Salford háskóla
í Englandi.
Störf: Heimildamynda
gerðarkona og „free
lancer“ í kvikmyndum og
auglýsingum.
Áhugamál: Heim
ildamyndir, ljósmyndun,
ferðalög, tónlist,
kvikmyndir og craft bjór.
Leyndur hæfileiki: Er
fáránlega mannglögg.
Ert þú í söluhugleiðingum?
510 7900
Þórunn Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali.
Jóhanna Gustavsdóttir
Sölufulltrúi / BA atvinnufélagsfræði.
698 9470
johanna@fastlind.is www.fastlind.is
Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ /
Traust og góð þjónusta
Frítt verðmat
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
ÚTFARAR- OG
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
Kærleiksþjónusta í 66 ár
Ný heimasíða – útför.is
NÝ SENDING AF MOTTUM
LAUGAVEG 25&32 / KRINGLUNNI / 553-0500
www.hrim.is
30 viðtal Helgin 28.30. ágúst 2015