Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 3

Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 3
DAGRENNING 3. TOLUBLAÐ 8. ÁRGANGUR REYKJAVÍK JÚNÍ 1953 Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavik. Sími 1196 í þessu hefti átti að koma ýtarleg grein, sem ég hefi alllengi safnað efni til, um hina nýju „drottningu í ísrael,“ Elísabetu II. í tilefni af krýn- ingu hennar 2. júní s.l. Af þessu gat þó elcki orðið af ýmsum ástæðum sem hér verða ekki raktar nánar. Greinin mun koma í næsta hefti Dagrenn- ingar. Stórlega er það einnig athyglisvert, að nálega samtímis og hin nýja „drottning í ísrael“ er krýnd á Bretlandi og ber nafn þeirrar for- móður sinnar, sem grundvallaði breska heimsveldið, voru annari „prins- essu í ísrael“ veitt rikiserfðaréttindi. Er þar átt við Margrétu prinsessu í Danmörku, sem með hinni nýju stjórnarskrá þar i landi verður nú ríkis- arfi Dana. Athyglisverðast er þó e. t. v. það, að þessi nýja krónprinsessa Danmerkur ber einnig nafn þeirrar norrænu drottningar, sem á sínum tíma sameinaði öll Norðurlönd undir eina stjórn; þótt sú sameining stæði ekki lengi. Vel mætti svo fara að það félli í skaut hinnar ungu „prinsessu í ísraeV' að fullkomna nú það verk nöfnu sinnar, þótt á öðrum grundvelli verði, enda við allt aðrar aðstæður. — ísraelsmenn hinir fornu munu fyrstir allra þjóða hafa tekið í lög jafn- rétti kvenna við karlmenn, og erfðu konur þar veg og völd fjölskyldu sinn- ar og jafnvel þjóðfélagsaðstöðu til jafns við karlmenn. Er því vel, að Danir hafa nú snúið inn á þá braut á ný, en Danir eru sú hinna norrænu þjóða, sem mestum áhrifum hafa orðið fyrir frá hinum fornu Húnum, sem settust að á norðurströnd Þýzkalands og í Austur-Þýzkalandi og eru enn í dag kjarninn í Prússum. Margt bendir til að þessar tvær ungu konur — Elísabet Bretadrottn- ing og Margrét Danmerkurprinsessa — eigi eftir að koma allmjög við sögu næstu áratugina, þegar sameining „Israels“ í eitt ríkjasamband verður fullkomnað, en það tímabil hefst svo öllum verði augljóst upp úr 2 0. á g úst 1 9 5 3. J. G. DAGRENNING 1

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.