Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 8
efnislega líf mannanna. Það eru aðeins orð og andi Guðs, sem skapa þau
viðhorf og þá lifnaðarhætti meðal einstaklinganna, sem eru skilyrði fyrir
fersku og þróttmiklu þjóðlífi og varanlegri þjóðarheill. Af þessum sökum
hlýtur kristilegur stjórnmálaflokkur að líta á það sem höfuðtilgang sinn, að
halda fram hinum kristnu grundvalíarsjónarmiðum í opinberu lífi og berj-
ast fyrir því að þau fáist viðurkennd og framkvæmd.
Með tilliti til þess, sem hér að framan er sagt, mundu megindrættir í
stefnuskrá kristilegrar þjóðfylkingar verða á þessa leið:
I. ÞJÓÐARSIÐGÆÐI:
1. Hátt siðgæði skapar þjóðardáð og þjóðarheill. Allt siðgæði byggir
á myndugleik og reglum. Kristið siðgæði byggir á myndugleik og orði
Guðs. Samkvæmt þessu mundi kristleg þjóðfylking vinna að því að skapa:
a. Virðingu fyrir mannhelgi — almennum friðhelgum mannréttindum.
b. Þjóðfélagsréttlæti — góðum fjárhagslegum og félagslegum kjörum öll-
um til handa.
c. Samfélagsábyrgð — löghlýðni, þjónslund, fórnarlund, dugnaður og
samviskusemi við störf.
d. Náunganskærleika — raunhæfa hjálp til þeirra, sem raunverulega eru
hjálpar þurfi í þjóðfélaginu.
2. Flestir af örðugleikum nútímans eiga rætur að rekja til siðgæðis-
• veilna, sljórrar ábyrgðartilfinningar, skattsvika, ósannsögli, minnkaðra
vinnuafkasta, nautnasýki, drykkjuskapar og upplausnar fjölskyldulífsins.
Sé siðgæðishrörnun þjóðlífsins stöðvuð og þjóðinni lyft á hærra stig í sið-
gæðisefnum, fylgir þeirri breytingu andleg og efnaleg viðreisn. Það er
þess vegna höfuðviðfangsefni raunhæfrar stjórnmálastarfsemi, að efla sið-
gæði einstaklingsins. Skólar, útvarp og kvikmyndir eiga að þjóna þessu mark-
miði. Öll starfsemi, sem beint eða óbeint stefnir að því að brjóta niður sið-
gæði almennings og kristilegar siðferðishugmyndir, er hættuleg og henni ber
að útrýma.
II. STJÓRNARSKIPAN.
Island er lýðveldi.
1. Forseti íslands skal kjörinn til fjögra ára í senn og varaforseti til sama
tíma. Forseti skipar, án afskipta Alþingis, ríkisstjórn og fer hún með
framkvæmdarvald í umboði og á ábyrgð forseta.
2. Alþingi fer með allt löggjafarvald. Ekki skal vera hægt að rjúfa AI-
þingi né efna til aukakosninga. Allir alþingismenn hafi varamenn.
Kosningar til Alþingis fari fram í fáum og stórum kjördæmum og vera
hlutfallskosningar. Engin uppbótarþingsæti.
6 DAGRENN I NG