Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 26

Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 26
að úthella vfir þá heift rninni, allri rninni brennandi reiði; því að fyrir eldi vandlæting- ar rninnar skal allt landið verða eytt.“ En sami spámaður segir einnig, þegar þetta allt er um garð gengið: „Já, þá mun ég gefa þjóðunum nýjar hreinar varnir, svo að þær ákalli allar nafn Jahve, þjóni honurn ein- huga.“ Fjölda annarra dæma mætti nefna, en þessi verða, rúmsins vegna, að nægja. Undanfari hins nýja tírna og lokaþáttur hins gamla er því, samkvæmt öllurn spádóm- um, hinn ógurlegasti ófriður, sem nokkru sinni hefir háður verið á jörðinni. * En það er ýmislegt, sem til marks skal hafa, þegar tímabil endalokanna er kornið eða er að nálgast. Eitt af því er það, að allur ísrael skal hafa sameinast í „eina þjóð“ áður en hinn nýi tími hefst, og það skal vera hans nrikla hlutverk að byggja upp hið nýja ríki. Annað er það, að Jerúsalem, höfuðborg liins forna Ísraelsríkis, skal ekki lengur vera „fótum troðin af heiðingjum", heldur skal hún aftur vera kornin undir umráð ísraels- manna. Hið þriðja er, að „orð Jesú“ skal hafa verið boðað öllum þjóðum jarðarinnar. Hið fjórða er, að þetta skal ekki gerast fyrr en „refsingartíminn" er á enda liðinn. Er nú rétt að athuga hvert þessara atriða fvrir sig. Að því hafa í fyrri ritgerðum í bók þess- ari verið færð nokkur rök, að ísraelsþjóðimar eru nú fundnar aftur, þó þær hafi enn ekki við það kannast sjálfar og muni ekki við það kannast fyrr en síðar. Að líkindum ekki fyrr en um 1948. ísraelsþjóðir nútímans em auk Gyðinga, sem dreifðir eru um öll lönd og álfur, Bretar, Bandaríkjamenn, Kanadabúar, Ástralíubúar og Suður-Afríkubúar, þ. e. a. s. þeir af þeim, sem eru af þeim þjóðstofnum, sem hér eru taldir, en auk þeirra Norðmenn, Svíar, Danir, íslendingar, Færeyingar, Hol- lendingar og írar. Auk þess eru nokkrar þjóð- ir talsvert blandaðar ísraelsmönnum, s. s. Belgíumenn, Finnar, Baskar á Spáni og fleiri. Einkennilegt er að veita því athygli, að þetta eru einmitt þær þjóðir, sem í yfirstand- andi ófriði berjast fyrir sörnu hugsjónum og sama málstað og eru raunverulega allar sam- herjar, því þó Svíþjóð sé hlutlaus, er það á allra vitorði, að Svíar eru eindregið fylgjandi lýðræðisríkjunum í ófriðnum og óska sigurs þeirra. Sarna er um Danmörku, þó hún sé hernumin af Þjóðverjum. Allir vita og, að Finnar berjast nauðugir og eiga mikilla harma að hefna á Rússum frá fyrri og síðari tímum. Belgíumenn bíða milli vonar og ótta og þrá sigur bandamanna af heilurn hug. Urn hug íslendinga og Færeyinga þarf ekki að ræða, og þó írar séu engir vinir frænda sinna á Bretlandseyjum, munu þeir hafa sömu skoð- anir og hinar smáþjóðirnar um það, hver þeim mundu heppilegust endalok þessa ófriðar. Þó fleiri þjóðir en þessar berjist nú gegn einræðisríkjum fasismans, er ekki um það deilt né deilanlegt, að það eru hinar engil- saxnesku og norrænu þjóðir, sem einar svo að kalla berjast þeirri baráttu vegna frelsis og lýðræðis. Að þessu verður nánar vikið síðar. Það táknið, að ísraelslýður allur væri aftur fundinn, er því nú fram komið. Svo hefir ekki verið í neinum ófriði til þessa. Það hef- ir og gerzt, að ísraelsþjóðimar hafa því sem næst allar sameinast til átakanna og þeim þeirra, sem enn eru ekki þátttakendur í ófriðnum með lýðræðisþjóðunum, hefir tek- izt til þessa að halda sér hlutlausum, jafnvel þó þær væru hemumdar (s. s. Danir) og um hug þeirra er vitað, eins og áður er sagt. En þó ísrael hafi allur sameinazt til átak- 24 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.