Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 18

Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 18
ekki frá afleiðingum þess, sem vér erum bú- in að gera, segir sr. J. A. Helvíti er ekki refsi- vist, heldur skólaganga og ber ekki að líta á það sem kvalastað. Sumir höfðu, og það ómaklega að dómi sr. J. A. hellt háði yfir rnerka bók eftir W. Stead, er hann ritaði ósjálfrátt fyrir áhrif merkiskonunnar Júlíu — frá öðrum heimi — en þar segir: „Sæla himnaríkis er í því fólgin að tærna helvíti." Kristur er jafnan krossfestur á ný. Bæði hér og annars heims líður hann þjáningar til þcss að draga úr böli hinna vansælu. Það er í senn sæla hans og sorg. Þá vitnar sr. J. A. í einn lið postullegu trúarjátningarinnar, þar sem um Jesúm Krist segir að hann steig niður til Heljar. (Sbr. I. Péturs bréf um prédikun Krists fyrir öndunum í varðhaldi). 6. Þá nefnir sr. J. A. apokatastasiskenn- inguna, sem hann telur vera biblíulega og nefnir máli sínu til stuðnings vers úr Postula- sögunni, sömuleiðis I. Kor. Efes. og I. Tínr. Telur hann að Klemens frá Alexandríu hafi sett hana frarn um 200 e. Kr., en getur þess líka að kirkjan hafi h’rirdæmt þessa kenn- ingu sem villutrú og að hún hafi heldur ekki hlotið náð fyrir augum Lúthers. Innihald kenningarinnar er í stuttu rnáli að allir menn verði hólpnir, ekkert helvíti sé algjört og eng- in útskúfun eilíf. Þá telur hann að kenn- inguna um eilífa glötun og hina ofangreindu megi báðar rekja til Nýja Testamentisins. Af þessum rökurn sarnan lögðum telur hann að skylda hvíli á kristnum mönnum að biðja fyrir framliðnum til að auðvelda þeim lausnina úr hinni þungu og sáru skólagöngu í helvíti. Hann álítur að samband sé milli þessara atriða, bókstafs og anda, kenningar- innar um helvíti og fyrirbænarskyldu fyrir framliðnum. ATHUGASEMDIR. Ég hlustaði á ofangreindan fyrirlestur til að kynnast skoðunum minna frjálslyndu bræðra í kirkjunni og átti ekki von á nein- um andlegum verðmætum, enda ekki við slíku að búast, þar sem meginefnið var hel- víti að fornu og nýju. Ég hef aldrei heyrt orð- ið jafnoft notað í einum fyrirlestri eða einni ræðu né heldur heyrt orðið notað til þcss að gera ástandið þar fýsilegt. Ef það skyldi nú vera skóli, þ>á ætti samt ekki að vera neitt að óttast — og J>að Ijóta orðtæki, sem menn nota, ætti hér eftir að hljóða: „Farðu í skóla.“ Annars fer bezt á því að taka þær alvarlegu hliðar á málinu á undan þeim skoplegu. Apokatastasiskenningin er þess virði að menn viti eitthvað urn hana. Sjálft orðið þýð- ir endurreisn og er gríska. Ýmsar hugmynd- ir urn endurreisn mannkynsins til hins upp- runalega hreinleika og svndleysis og friðar má finna í Gamla Testamentinu. En Jesús sýndi mönnurn frarn á að þessi endurreisn vrði ekki fyrr en Guðs ríki kæmi við endalok aldanna. En hann gerir hvarvetna ráð fyrir að endurreisnin nái til þcirra, sem trúa á hann og þjóna honum, en ekki til þeirra, sem standa gegn ríki hans. Lærisveinarnir gerðu ráð fyrir því að um endurreisn ísraels- ríkis væri að ræða, eins og sjá má af spum- ingu þeirra í Postulasögunni, (1, 6) rétt fyrir himnaför Jesú. Þeirri spurningu svaraði Jesús ekki, en sýndi þeim síðar hvernig ríki hans skyldi breiðast út rneðal allra þjóða áður en hann kæmi aftur. Þegar kristnin tók að breiðast út meðal grískra menntamanna og heimsspekinga, fóru þeir að móta ýmislegt eftir sínu höfði og svara spurningum, sem Jesús svaraði aldrei. T. d. var Jesús spurður: Herra, eru það fáir, sem hólpnir verða? Og hann sagði við þá: Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því að margir, segi ég yður, munu leitast við að komast inn og ekki geta (Lúk. 13, 24). Spurningunni er að vísu óbeint svar- að annars staðar í Guðs orði: Mikill fjöldi, 16 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.