Dagrenning - 01.06.1953, Qupperneq 13

Dagrenning - 01.06.1953, Qupperneq 13
SÉRA JÓHANN HANNESSON: Fyrírgefníng syndanna Hinn kristni fagnaðarboðskapur er fyrst og fremst frásögn frá Guðs fyrirgefandi náð. Með náðinni vill Guð endurreisa hinn synd- uga og fallna mann. Aftur og aftur er það endurtekið að Drottinn vill Rrirgefa mönn- um syndir þeirra og gera þá að sínum böm- ura, það er að segja nýjum mönnum. Kristilegt siðferði byggir einnig á þessum sama grundvelli. Það er siðferði þakklætis fyrir Guðs óumræðilegu gjöf í Jesú Kristi. Maðurinn þjónar Guði frjáls og glaður, fagn- andi og þakklátur fyrir hans náð og miklu miskunsemi, ekki með nauðung og nöldri, heldur af fúsu geði eins og elskulegt barn þjónar föður eða móður. „Vér elskum,“ segir Jóhannes, postuli kær- leikans, „af því að hann elskaði oss að fyrra bragði." „Það er elska Guðs sjálfs, sem er upp- sprettulindin. „í þessu er kærleikurinn inni- falinn: ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.“ Það er þessi kærleiki Guðs, sem kernur til vor að fyrra bragði, sem leiðir oss til hins nýja lífs trúar og siðgæðis. „Af því þekkjum vér kær- leikann að hann lét lífið fyrir oss, svo eigum vér og að láta lífið fyrir bræðuma." Hér hefir verið talað um kærleikann, sem kemur frá Guði á undan allri viðleitni manna til að gera nokkuð fyrir hann, já, meira að segja meðan maðurinn er enn óvinur náð- arinnar. Með þessum kærleika elskar Guð alla menn. Náðarljós hans streymir út eins og ljósið frá sólunni. En mennirnir elskuðu myrkrið frarn yfir ljósið, því að verk þeirra voru vond. En hinum vondu verkum vill Guð eyða fyrst og fremst með fyrirgefningu synd- anna. Hvað þýðir kenning kirkju vorrar um rétt- læting af náðinni einni, fyrir trúna eina? í öllurn aðalatriðum þýðir hún hið sama sem hér er að ofan skráð. En áherzlan hggur þar á sérstöku atriði náðargjafarinnar: Mannin- um er gefin náð Guðs með ákveðnu móti til hjálpræðis. Réttlæti Jesú Krists er honum tilreiknað án verðskuldunar. Hið fullkomna réttlæti Guðs sonar er syndugum rnanni gef- ið fyrir ekki neitt um leið og hann tekur við náðarboðskapnum í trú. Jesús Kristur gerir það fyrir syndugan mann, sem maðurinn get- ur aldrei gert. Hann uppfyllir allar þær kröf- ur, sem Guð gerir og ávöxtinn af þessarri upp- fyllingu — fullkomna lífi og heilaga dauða — gefur sjálfur Guð syndugum og óverðugum manni. Þannig kemur Guð til vor mannanna til að vera vor Drottinn og Frelsari, til að gefa oss eilíft líf og alla himneska fjársjóði. Fögnuði kristins manns er fagurlega lýst í þessu versi: Ég gleðst af því ég Guðs son á, hann gaf mér sig og allt um leið er bæta fátækt mína má og minni létta sálar neyð. í þriðju grein trúarjátningarinnar, þar sem vér játum trú vora á Heilagan Anda, er líka sagt: Ég trúi á ... fyrirgefning syndanna, upp- risu holdsins og eilíft líf. Trúin á fyrirgefning syndanna — réttlætingu fyrir Krist án vorrar DAGRENNING 11

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.