Dagrenning - 01.06.1953, Qupperneq 27

Dagrenning - 01.06.1953, Qupperneq 27
anna nú í ófriðnum, er hann ekki orðinn „ein þjóð“ eða „eitt konungsríki“. Það verð- ur hann ekki fyrr en að ófriðnum loknum, þegar Brezka heimsveldið verður endurskipu- lagt sem frjálst sambandsríki allra þjóða heimsins, þar sem hinar engilsaxnesku og norrænu þjóðir hafa alla forustu. Þá verða þær búnar að sannfærast um að þær em ísra- elsmenn nútímans og að þeirra hlutverk er að skapa ríki framtíðarinnar hér á jörð, það ríki, „sem aldrei skal á grunn ganga“. Sameining ísraels stendur nú yfir og henni verður lokið að mestu innan fárra ára. Einn merkilegasta atburðinn, sem þá sameiningu snertir, má vafalaust telja Atlantshafsfund Roosevelts og Churchills sumarið 1941 og þá yfirlýsingu, sem þá var gefin, er verða mun grundvöllur hinnar nýju ríkjaskipunar í heiminum. Öllum er rétt að gera sér það ljóst, að þessi fullnaðarsameining ísraelsþjóðanna stendur fyrir dyrum. Hvergi er því jafnvel lýst í Biblíunni og í 37. kap. spádómsbókar Esekiels, hvemig allur ísraelslýður muni aftur sameinast. Hef- ir þessi kafli hjá Esekiel stundum verið kall- aður „beina“ kapitulinn. Er að honum vikið nokkuð í greininni „Hinir huldu lýðir“. Spá- maðurinn er hrifinn burt í anda og hann kemur í djúpan dal. Hann gengur um dalinn og sér aragrúa af beinum liggja þar í dalnum, og „þau vom skinin mjög“. „Hvort munu bein þessi lifna við aftur?“ er hann spurður af anda Guðs, sem leiðir spámanninn. Hann svarar: „Þú veizt það.“ Honum er því næst skipað að tala „af guðmóði“ yfir beinun- um og segja við þau: „Guð mun setja sinar á yður, láta lífsanda í yður og þér skuluð lifna við." Og spámaðurinn hlýðir kallinu. Hann talar í „guðmóði" yfir hinum tvístmðu og nöktu beinum og smám saman tóku þau að hrærast, „og beinin færðust saman hvert að öðru.“ Og hann sér, hvemig þau klæðast holdi og hörundi, „en enginn lífsandi" var í þeim. Hann fær þá enn skipun um að tala í guðmóði yfir þeim og segja: „Kom þú, lífs- andi, úr áttunum fjórum og anda á þennan val, að þeir rnegi lifna við.“ Og hann talaði „og þeir lifnuðu við og ristu á fætur, var það afarmikill fjöldi." Þá er sagt við spámann- inn: „Manns-son, þessi bein eru allir ísraels- menn.“ Niðurtaðan er, að „þeir skuli eigi framar vera t\ær þjóðir og eigi framar vera skiptir í tvö konungríki." Þessi kapítuli er næstur á undan þeim kapitulum hjá Esekiel, senr segja frá hinum síðasta ófriði og nánar er vikið að hér á eftir. Kapituli þessi (37.) er þess verður, að hann sé lesinn með athygli nú á dögum. ísraelsþjóðimar hafa nú sameinazt, þó þær enn ekki viti það sjálfar né skilji. Þær hafa sameinazt af frjálsum vilja og samhug hver með annarri vegna þess, að þær berjast allar fyrir sörnu hugsjónum, hugsjónum frelsis, bræðralegs og lýðræðis. Þær eru ekki bundn- ar hver annarri með milliríkjasamningum eða lagaákvæðum, heldur er sáttmáli þeirra „ritaður í hjörtu þeirra", og sá sáttmáli, sem þar er skráður, er öllum öðrunr sáttmálum æðri. Sá sáttmáli, sem ritaður er á pappír, hefir oftast reynzt lítils virði, en hinn, sem ritaður er í hjörtu mannanna, þó hann hvergi annars staðar sé til, mun reynast öruggur og til frambúðar. Sú er reynsla sögunnar, ekki sízt á vorurn tímum. Hið fyrsta tákn, urn sameining ísraels, er því frarn komið. * Annað táknið, sem til marks skal hafa, er um Jerúsalemborg. Kristur sagði, að þegar Jerúsalem hætti að vera „fótum troðin af heiðingjum" mundu endalokin vera í nánd. Nú vitunr vér, að Jerúsalem hefir lotið „heið- ingjum", þ. e. þjóðum, sem ekki voru af DAGRENNING 23

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.