Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 28

Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 28
ísraelsstofni, alla tíð frá því 70 e. Kr., er hún var eyðilögð, og þar til í árslok 1917, að Allenby, liinn mikli hershöfðingi Breta, tók borgina úr hönduni Tyrkja. Síðan hefir hún verið í höndum Breta og Gyðinga, og þó „heiðingjar" hafi búið þar að nokkru til þessa, hafa öll yfirráðin verið í höndum Breta. Það sem af er þessu stríði hafa umráð Breta vax- ið, en ekki minnkað, bæði yfir Jerúsalem sjálfri, allri Palestínu og nálægum löndum. Nú eru þeir þar einráðir og Gvðingum hefir fjögað þar stórlega síðan þeir urðu að hrökkl- ast burt úr Evrópulöndum undan ofsóknum nazista. Sá tími nálgast því meir og meir, að Jerú- salem hætti að vera „fótum troðin“ af heið- ingjum. Það tákn, sem Kristur sagði að til marks skyldi hafa, er nú öllum augljóst að frarn er að koma. (Nú er Jerúsalem höfuðborg hins nýja ríkis Júdaættkvíslarinnar sem nefnt er ísra- elsríki. J. G.) * Hið þriðja táknið, og er það einnig frá Kristi komið, var það, að „orð“ Jesú Krists skyldi áður hafa boðað verið öllum þjóðum jarðarinnar. Nú er vitað, að Jjað er engin sú þjóð eða þjóðarbrot til á allri jörðunni, að þar hafi ekki verið boðuð kristni. Hafa Bret- ar verið þar fremstir allra þjóða, og einkenni- legur er sá mikli áhugi, sem þeir ávallt hafa sýnt á því að útbreiða Biblíuna meðal allra þjóða og á öllum tungum. Þetta þriðja tákn er þannig einnig fram kornið, því nú er þekking vor á jörðinni orð- in svo mikil og tækni vor til þess að geta komizt um jörðina orðin svo stórkostleg, að vér vitum nú með fullri vissu urn öll lönd og eyjar í heimi vorum, þar sem fólk býr, en það er fyrst á síðustu 100 ámm, sem sú þekking hefir orðið svo fullkomin sem hún nú er. * Síðasta atriðið, sem hér skal að vikið en tæp- ast er hægt að kalla tákn, er það, að þessir síð- ustu örlagaríku atburðir muni ekki koma fram fyrr en „refsingatími" ísraels sé liðinn. Til skamms tíma hafa menn hvorki skilið upp né niður í öllu tali Biblíunnar um þennan „refsingatíma“. Það er fyrst nú síðustu hundr- að árin, sem tekizt hefir að átta sig dálítið á því, við hvað er átt með „refsingatíma“ ísraels. Af ýmsurn stöðum í Biblíunni er það ljóst, að spámennirnir hafa sagt ísraelsþjóð- inni það fyrir, að yfir hana mundi ganga refsingatími, sem væri „sjö tíðir“. Af ýms- urn samanburði rná sjá, að með orðinu „tíð“ er átt við 360 ára tímabil. „Sjö tíðir“ eru því hvorki meira né minna en 2520 ár (360X7)- Hefi ég útskýrt þetta í riti mínu „Spádóm- arnir um ísland“ (bls. 31), og verð ég hér að láta nægja að vísa til þess. Þegar svo var komið, að menn höfðu átt- að sig á þessu, tóku menn að reyna að átta sig á því, hvenær þessi refsingatími hefði þá byrjað. Kornust menn að þeirri niðurstöðu, að hann mundi liafa byrjað, að því er hinar 10 ættkvíslir Ísraelsríkis snerti, árið 726—675 f. Kr., eða þegar Assyríumenn eyddu Sam- aríu og fluttu þessar ættkvíslir í útlegð. „Refsingatími“ Júda og Benjamínsættkvísla, sem þá urðu eftir, byrjaði hins vegar ekki fyrr en á árunum 603—580 f. Kr., er þær ætt- kvíslir vom herleiddar til Babylon. Fullsannað þykir nú, að flutningamir á ísraelsmönnum stóðu yfir svo langan tíma sem hér að framan segir, og er það skiljan- legt eftir öllum samgöngum á jDeim tímum. Hinar tíu ættkvíslir, sem fyrr voru her- leiddar, hafa síðan að jafnaði verið kenndar við Efraim, son Jóseps. Ef vér nú reiknum út hvenær refsingatíminn ætti að vera að 26 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.