Ægir - 01.01.2014, Qupperneq 15
15
sem eru notuð í framleiðsluferl-
inu. Þau eru fjölbreytt og taka
til margra sviða vinnslunnar.
Við getum því sagt að
snertifletir okkar við sjávarút-
veginn séu mjög margir og
þeim fer fjölgandi,“ segir Ólafur.
Fagmenntað starfsfólk
Enn sem komið er eru starfs-
stöðvar fyrirtækisins tvær, þ.e.
að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði
og Bæjarflöt 4 í Grafarvogi, en
Ólafur reiknar með að áður en
langt um líður verði starfsemin
öll komin á einn stað.
„Með þessari sameiningu er-
um við orðið fyrirtæki sem
þjónustar í raun allan matvæla-
iðnaðinn. Hér starfa m.a. sjávar-
útvegsfræðingar, kjötiðnaðar-
menn og garðyrkjufræðingar.
Við bjóðum fjölbreyttar lausnir í
umbúðum, tækjum og hjálpar-
efnum og styðjum alla okkar
þjónustu við viðskiptavini með
víðtækri þekkingu starfsmanna.
Ég tel það skipta miklu fyrir
matvælaiðnaðinn að geta leitað
til fólks sem hefur sérþekkingu,
bæði á rekstrarvörum og faginu
sem slíku,“ segir Ólafur.
Starfsmenn Frjó Um-
búðasölunnar eru 10 talsins.
Fyrirtækið býður áprentaða ferskfiskassa.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu um-
hverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu
... bæta lýðheilsu
www.matis.is