Ægir - 01.01.2014, Blaðsíða 24
24
„Á síðastliðnum 20 árum hefur
orðið mikil bylting í viðhaldi
skipa og báta hér á landi. Það
er alger undantekning ef við
þurfum að stöðva útgerð skip
enda geta menn orðið af veru-
legum tekjum ef slíkt gerist. Al-
mennt finnst mér það vera
keppikefli eigenda skipa og
báta að hafa hlutina í lagi, sem
er auðvitað ánægjulegt,“ segir
Stefán Hans Stephensen, sviðs-
stjóri skipaskoðunarsviðs Frum-
herja hf. Það fyrirtæki er annað
tveggja hér á landi sem hefur
starfsleyfi til að framkvæma
lögbundnar skoðanir á skipum
og bátum undir 400 brúttó-
tonnum að stærð.
Um síðustu áramót fjölgaði
starfsmönnum Frumherja hf. er
Skipaskoðun AB ehf. hætti
störfum og til Frumherja færð-
ust tveir starfsmenn, þeir Guð-
geir Svavarsson og Guðmundur
G. Guðmundsson. Þeir sem
hafa skoðanirnar með höndum
búa yfir sérþekkingu á öllum
þáttum í búnaði skipa og ytra
byrði þeirra. Stefán Hans segir
ekkert vafamál að það aðhald
sem skipaskoðanirnar veita út-
gerðum auki öryggi sjómanna
og auki rekstraröryggi skipa og
báta.
Árlegar skoðanir
„Skipaskoðanir eru grundvöllur
þess að skip fái haffærisskírteini
og þau þarf að endurnýja ár-
lega. Það er hins vegar misjafnt
hvaða atriði þarf að skoða
hverju sinni, sum atriði árlega,
önnur með lengra millibili. Við
Stefán Hans Stephensen, sviðsstjóri skipaskoðunarsviðs Frumherja hf:
Bylting orðin á viðhaldi
skipa og báta
Narfi SU í Neskaupstað í bolskoðun.
Mikilvægt er að fylgjast vel með botni skipanna, sér í lagi stálskipanna þar sem
rafútleiðsla getur valdið tæringu á skömmum tíma.
F
réttir