Morgunblaðið - 22.01.2015, Side 11

Morgunblaðið - 22.01.2015, Side 11
ir geta bætt líðan sína með breyttu mataræði, einnig þeir sem ekki eru með áunna sykursýki. Vigdís bendir á að fjölda dauðs- falla megi rekja til sykursýki sem oft sé hægt að koma í veg fyrir. Þá bendir hún á að ofþyngd barna sé vaxandi vandamál hér á landi sem fleiri þurfi að vera meðvitaðir um. Vinna saman og fræða Vigdís segir að leiðin til að sporna við þessu sé að allir ein- staklingar í samfélaginu þurfi að vinna saman, fræða, leiðbeina og deila reynslunni hvert með öðru. Námskeiðin miða að því að hjálpa fólki að bæta lífsstíl sinn. Þau eru ókeypis til að gefa fleirum færi á að fræðast um heilbrigðari lífshætti því fjárhagur getur oft komið í veg fyrir getuna til að skrá sig á dýrt námskeið. Námskeiðin eru tvenns konar, annars vegar í fyrirlestraformi þar sem Adrian greinir frá sinni reynslu og hins vegar matreiðslunámskeið þar sem fólk fær að sjá hvernig mat- urinn er matreiddur. Í lok hvers námskeiðs er boðið upp á matar- smakk og fá námskeiðsgestir upp- skriftina með sér heim. Vigdís segir vægast sagt mjög gefandi að halda námskeiðin, „þau hjálpa okkur að halda okkur við og vera þær manneskjur sem við ætl- um okkur að vera.“ Kostnaðurinn er ekki ýkja mikill, stundum jafnvel um sjö til 12 þúsund krónur sem hafi kostað hana að halda mat- reiðslunámskeið fyrir tuttugu manns. „Heilsufæði er ekki eins dýrt og margir halda,“ segir Vigdís. Hún bendir á að miklu muni um að þau þurfi ekki að greiða fyrir hús- næði undir námskeiðið en Aðvent- kirkjan hafi alltaf stutt við þeirra starf. Námskeiðin eru alltaf vel sótt og mikill áhugi er á þeim. Á bilinu 60 til 80 manns hafa komið og hlýtt á Adrian á námskeiðunum. Vigdís segir marga hafa komið á máli við þau hjónin eftir nám- skeiðið og greint frá betri líðan á breyttu mataæði, jafnvel þá sem ekki hafi haft trú á því í fyrstu. Mataræði Hjónin halda matreiðslunámskeið þar sem eldað er úr hollustu. Getty Images/iStockphoto DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Dagar ljóðsins í Kópavogi standa nú yfir og fram til 25. janúar. Á þeim tíma mega vegfarendur eiga von á því að rekast á ljóð á hinum ólíkleg- ustu stöðum, til dæmis í sundi, í strætó, á vefsíðum, við verslunar- kjarna á Nýbýlavegi eða í Smáralind. Ljóð fást gefins í Bókasafni Kópa- vogs og í öðrum menningarstofn- unum bæjarins og víða um bæ verð- ur pop up ljóðalestur. Markmið Daga ljóðsins í Kópavogi er að vekja áhuga á ljóðalestri og efla ljóðlistina með því að dreifa ljóðum um bæinn. Miðpunktur Daga ljóðsins verður í Bókasafni Kópavogs. Á annarri hæð safnsins við Hamraborgina verður hægt að nálgast með aðgengilegum hætti ljóðabækur, gamlar og nýjar, til útláns. Höfundur vikunnar á safninu er Gerður Kristný skáld en hún hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör, í ljóða- samkeppni Kópavogsbæjar, árið 2010. Dagar ljóðsins í Kópavogi Jón úr Vör á gafli Mynd af Jóni úr Vör er að finna á húsgafli í Hamrabrekku, hún er eftir listamanninn Guido van Helten og leit dagsins ljós sl. sumar. Ljóð sjáanleg í sundi og strætó Mataræðið sem þau hjónin tileinkuðu sér nefnist: „Total vegetarian“ eða „vegan“ sem Vigdís kýs að kalla plöntufæði. Í þessu mataræði eru m.a.:  baunir  hnetur  fræ  korn  grænmeti  ávextir  Allt sem tengist plöntum. Það sem tekið er út úr mataræðinu er fínunninn sykur, óæskilegar olíur, einföld kolvetni eins og hvítt hveit, hvít hrís- grjón og staðinn notuð t.d. brún hrísgjón, gróft malað hveiti o.fl. „Þetta voru átök,“ segir Vigdís, spurð hvernig það hafi gengið að breyta um mataræði í fyrstu. Hún segir að þau hafi byrjað á nýju mat- aræði um vor, þá hafi þau haft tíma yfir sumarið til að elda og prófa sig áfram í matseldinni. „Þegar maður hefur fundið nokkra rétti sem manni þykja góðir þá er þetta ekkert mál að koma þeim inn í rútínuna.“ Töluverð átök í fyrstu að breyta um mataræði PLÖNTUFÆÐI Tveir fyrirlesarar ræða í dag um land- nám Íslands á 19. og 20. öld í fyrir- lestraröð Miðaldastofu Háskóla Ís- lands kl. 16.30 í stofu 101 í Odda. Þetta eru þau Sveinbjörn Rafnsson, prófessor emeritus í sagnfræði og Marion Lerner, menningar- og þýð- ingafræðingur og lektor við Háskóla Íslands. Sveinbjörn ræðir um áhrif Land- námu á 19. og 20. öld en þá urðu fornsögurnar, þar sem Landnámavar lögð til grundvallar, mikilvægur afl- vaki í þjóðernissinnaðri sjálfstæðis- baráttu Íslendinga. Marion Lerner ræðir um landnámsminnið í tengslum við stofnun ferðafélaga á 20. öld þar sem oft var talað um„landnám“, og „nýtt landnám“ eða um „landnám inn á við“. Í fyrirlestraröðinni fjalla innlendir og erlendir fræðimenn um landnámið frá mörgum hliðum og frá sjónarhóli ólíkra fræðigreina, svo sem forn- leifafræði, sagnfræði, bókmennta- fræði, málfræði, nafnfræði, menning- arfræði, þjóðfræði, minnisfræði og dýravistfræði. Fyrirlestraröð Miðaldastofu Háskóla Íslands Morgunblaðið/Ómar Handrit Fróðlegir fyrirlestrar eru á dagskrá um landnám Íslands. Landnám Íslands á 19. og 20. öld Peysur - túnikur - bolir buxur - kjólar - skart - treflar Verið velkomin Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 30–70% AFSLÁTTUR Námskeiðið hefst miðvikudaginn 28. janúar, kl. 20 Hægt er að skrá sig í síma 867-1640 eða á net- fanginu vigdislinda@hotmail.com. Einnig eru allir velkomnir í face- book-hópinn „Heilsunámskeið“ þar sem allar upplýsingar eru til staðar um námskeiðin. Fjarðarkaup Gildir 22. - 24. jan verð nú áður mælie. verð Lambainnralæri úr kjötborði ............................. 2.398 3.598 2.398 kr. kg Svínakótilettur úr kjötborði ............................... 1.298 1.598 1.298 kr. kg Nauta-entrecote úr kjötborði ............................ 3.298 4.158 3.298 kr. kg Hamborgarar 2stk m/brauði ............................ 604 672 604 kr. pk. KF lambalæri sérverkað frosið........................... 1.279 1.498 1.279 kr. kg Fjallalambs hangiframpartur bitar ..................... 998 1.349 998 kr. kg Dr.Oetker pizza salami ..................................... 598 612 598 kr. stk. Pepsi/pepsi max 2 ltr x 4 ................................. 698 798 175 kr. stk. Túlipanar 10 stk í búnti .................................... 1.348 0 1.348 kr. pk. Helgartilboðin Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.