Morgunblaðið - 22.01.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-2
4
4
6
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Vetrarríkið er þitt
Mercedes-Benz GLA sportjeppinn nýtur sín ekki síður í hálku og sköflum vetrarríkisins en á auðu
og þurru malbiki. Þar kemur 4MATIC aldrifskerfið sterkt inn og skilar þér þangað sem þú ætlar.
Mercedes-Benz GLA er búinn öllum nýjasta öryggis- og akstursbúnaði sem Mercedes-Benz
hefur kynnt undanfarið auk þess sem öll hönnun bílsins er til fyrirmyndar.
Komdu og reynsluaktu GLA-Class og upplifðu íslenskt vetrarríki á nýjan hátt
Mercedes-Benz GLA-Class 4MATIC kemur þér þangað sem þú vilt
GLA 200 CDI, 4MATIC aldrifsbúnaður, 7 þrepa
sjálfskipting, 136 hö., dráttargeta 1.800 kg.
Eyðsla frá 4,9 l/100 km í blönduðum akstri.
Verð frá 6.420.000 kr.
Sölutímabil
þorrabjórs hefst
í Vínbúðunum á
morgun, bónda-
daginn, og
stendur til loka
þorra, en konu-
dagur er 22.
febrúar. Í fyrra
seldust um 42
þúsund lítrar af
þorrabjór og er
gert ráð fyrir svipaðri sölu í ár
að sögn Sigrúnar Óskar Sigurð-
ardóttur, aðstoðarforstjóra
ÁTVR. Fyrstu söluhelgi þorra-
bjórs í fyrra seldust um 23 þús-
und lítrar.
Fram kemur á heimasíðu Vín-
búðanna að í ár verða átta teg-
undir þorrabjórs til sölu: Þorra-
kaldi, Þorragull, Þorraþræll,
Einiberja Bock, Gæðingur, Steðji
Hvalur II, Galar nr. 29 og Surtur
nr. 30. aij@mbl.is
Átta tegund-
ir þorrabjórs
á boðstólum
Sýnishorn af
þorrabjór.
42 þúsund lítrar
seldust í fyrra
Morgunblaðið/ÞÖK
Reykjavíkurflugvöllur Neyðar-
flugbrautin sést fyrir miðri mynd.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lokun flugbrautar 06/24, svo-
nefndrar neyðarbrautar, á Reykja-
víkurflugvelli mun hafa óveruleg
áhrif, að mati Isavia. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu Isavia „vegna
framkvæmdar áhættumats vegna
fyrirhugaðra breytinga Innanrík-
isráðuneytisins á Reykjavík-
urflugvelli“. Drög að niðurstöðu
áhættumatsins hafa verið send
Samgöngustofu til umfjöllunar.
Í yfirlýsingunni segir m.a. að inn-
anríkisráðherra hafi falið Isavia í
desember 2013 að hefja undirbún-
ing vegna fyrirhugaðrar lokunar á
stystu flugbraut Reykjavíkur-
flugvallar að teknu tilliti til flug-
öryggislegra þátta. Isavia hefur nú
lokið gerð áhættumats í samræmi
við verklag sem er samþykkt af
Samgöngustofu. Það felur m.a. í sér
tillögur um mótvægisaðgerðir.
Isavia segir að áhættumatið byggist
m.a. á vandaðri greiningu óháðs að-
ila á mun ítarlegri og áreiðanlegri
gögnum en áður hafi verið stuðst
við. Þar er vísað í niðurstöðu grein-
ingar verkfræðistofunnar EFLU.
„Niðurstaðan er í stuttu máli sú að
lokun brautar 06/24 muni hafa
óveruleg áhrif.“
EFLA skilaði tveimur ítarlegum
skýrslum á liðnu hausti sem byggð-
ar eru á frumgögnum úr veðurfars-
mælum á flugvellinum. „Niðurstaða
greiningarinnar eru þær að not-
hæfisstuðull Reykjavíkurflugvallar,
út frá viðmiðum Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar (ICAO), verði
97,0% án flugbrautar 06/24. Við-
miðun ICAO er 95%. Sé miðað við
nothæfistíma, sem er nákvæmari
greining á lendingarskilyrðum út
frá vindi, ástandi flugbrauta,
skyggni og skýjahæð, verður hlut-
fall þess tíma þegar aðstæður til
lendinga henta þörfum áætlunar-
flugs á flugvél af gerðinni Fokker
50 samtals 98,05% en sjúkraflugs á
Beechcraft King Air 200 samtals
98,18% án umræddrar brautar,“
segir m.a. í yfirlýsingunni frá
Isavia.
Lokun brautar hefði óveruleg áhrif
Drög Isavia að niðurstöðu áhættumats vegna lokunar neyðarbrautar
Miðstjórn ASÍ
samþykkti í
gær mótmæli
vegna hækk-
unar þjón-
ustugjalda og
aukins vaxta-
munar bank-
anna.
„Undanfarin misseri hafa skapast
forsendur til lækkunar stýrivaxta
og í nóvember sl. ákvað peninga-
stefnunefnd að lækka stýrivexti
um 0,25 prósentustig, úr 6% í
5,75%, en við þá ákvörðun juku
bankarnir vaxtamun sinn,“ segir í
ályktun miðstjórnar.
„Alþýðusambandið og verðlags-
eftirlit ASÍ hafa undanfarin miss-
eri fengið mikinn fjölda ábendinga
um hækkun þjónustugjalda og
nýja gjaldstofna bankanna. Í
mörgum tilfellum hafa þjón-
ustugjöld bankanna hækkað um-
fram verðlagsþróun og leggjast
þau þungt á einstaklinga með lítið
aðgengi að tölvum. Miðstjórn ASÍ
hefur áhyggjur af þeirri þróun að
fjármálafyrirtæki auki vaxtamun
og hækki þjónustugjöld í skjóli fá-
keppni og átthagafjötra og skorar
á bankana að leyfa viðskiptavinum
að njóta ábatans af nýfengnum
stöðugleika,“ segir þar enn-
fremur.
Miðstjórnin segir ennfremur að
vakið hafi sérstaka athygli hækk-
un á verðtryggðum útlánavöxtum
bankanna, en vextir verðtryggðra
húsnæðislána með breytilegum
vöxtum hafi hækkað um áramótin.
Ein af rökum Arion banka hafi
verið þau að bankaskattur hafi
kallað á hækkun vaxta.
Gagnrýna hækkun
þjónustugjalda