Morgunblaðið - 22.01.2015, Side 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
BAKSVIÐ
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Skoðanakannanir í Grikklandi benda
til þess að vinstriflokkurinn Syriza,
Bandalag róttækra vinstriflokka, fái
mest fylgi í þingkosningum sem fram
fara á sunnudaginn kemur en ekki
nógu mikið til að fá meirihluta á
þinginu. Nokkrir minni flokkar gætu
því komist í oddastöðu á þinginu og
ráðið úrslitum um hvort næsta ríkis-
sjórn standi við skilmála sem
Evrópusambandið og Alþjóða-
gjald eyris sjóðurinn settu fyrir að-
stoð við landið vegna skuldavanda
þess. Kosningarnar gætu einnig ráðið
úrslitum um hvort Grikkland haldi
evrunni.
Syriza-flokkurinn er andvígur
sparnaðaraðgerðum sem stjórn
Grikklands samþykkti árið 2010 til að
fá aðstoð ESB og AGS vegna skulda-
vandans. Flokkurinn vill að skilmál-
um aðstoðarinnar verði breytt. „For-
gangsverkefni okkar er að bjarga
landinu innan evrusvæðisins, ekki að
bjarga evrunni í Grikklandi með því
að eyðileggja samfélagið,“ segir leið-
togi flokksins, Alexis Tsipras. Hann
skírskotar m.a. til þess að skilmálarn-
ir hafa stuðlað að auknu atvinnuleysi
sem mælist nú um 25% og um þriðj-
ungur landsmanna er innan
fátæktarmarka.
Nýjustu kannanir benda til þess að
Syriza fái um þriðjung atkvæða og
nokkurra prósentustiga meira fylgi
en hægri- og miðflokkurinn Nýtt lýð-
ræði, undir forystu Antonis Samaras
forsætisráðherra. Samkvæmt nokkr-
um þeirra höfðu um 15 til 20% grískra
kjósenda ekki gert upp hug sinn og
hugsanlegt er því að Nýju lýðræði
takist að vinna forskotið upp á loka-
sprettinum.
Samaras hefur verið sakaður um
að beita hræðsluáróðri og draga upp
of dökka mynd af því sem gerist ef
Syriza myndar stjórn undir forystu
Alexis Tsipras, leiðtoga flokksins. Í
einni af sjónvarpsauglýsingum Nýs
lýðræðis er t.a.m. sagt að samninga-
viðræður við erlenda lánardrottna
myndu fara út um þúfur og Grikkland
kæmist í greiðsluþrot. Afleiðingarnar
yrðu þær að aldraðir Grikkir fengju
engan ellilífeyri og landið yrði uppi-
skroppa með eldsneyti og lyf.
Valdaflokkarnir misstu fylgi
Kannanirnar benda til þess að allt
að átta flokkar fái sæti á þinginu í
kosningunum og þrír þeirra voru
stofnaðir eftir að fjármálakreppan í
landinu hófst. Til að fá þingsæti þurfa
flokkarnir að fá a.m.k. 3% atkvæð-
anna og sex af flokkunum átta eru
með um 2 til 7% fylgi, ef marka má
kannanirnar.
Fjölgun flokkanna má meðal ann-
ars rekja til hruns jafnaðarmanna-
flokksins Pasok sem mælist nú aðeins
með 5% fylgi en hann var með for-
sætisráðherraembættið á árunum
1981 til 1989, 1993 til 2004 og 2009 til
2011. Hann fékk 44% atkvæða í kosn-
ingum árið 2009 en fylgi hans minnk-
aði í 13% og 12% í tvennum þingkosn-
ingum árið 2012.
Nýtt lýðræði hefur þó einnig misst
fylgi til smáflokkanna, ef marka má
kannanirnar, og grískir stjórnmála-
skýrendur telja ástæðuna vera þá að
margir Grikkir vilji ekki lengur að
einhver einn flokkur fái meirihluta á
þinginu.
„Þetta er þróun sem hófst fyrir
nokkru,“ hefur The New York Times
eftir Nick Malkoutzis, ritstjóra
fréttavefjarins Macropolis.gr. „Fólk
hefur smám saman áttað sig á því að
mikið fylgi eins flokks, með umboð til
að gera hvað sem hann vill, var það
sem kom Grikklandi í vandræði.
Núna er fólkið því tregt til að tryggja
einum flokki meirihluta.“
Einn nýju smáflokkanna, To Pot-
ami (Fljótið), var stofnaður í apríl á
liðnu ári. Margir telja hann líklegan
til að komast í oddastöðu á þinginu
eftir kosningarnar og ráða úrslitum
um hvort Syriza eða Nýtt lýðræði
myndar næstu stjórn. Stofnandi
flokksins, Stavros Theodorakis, 51
árs fyrrverandi blaðamaður, segist
vera tilbúinn að styðja hvorn flokkinn
sem er svo fremi sem hann lofi að
berjast gegn spillingu og sjá til þess
að Grikkland haldi evrunni.
Nasistaflokkur með 5%
To Potami hefur lagt áherslu á að
hann sé hlynntur evrunni og vilji
tryggja stöðugleika en að öðru leyti
er stefna flokksins óljós. Theodorakis
sagði á kosningafundi á mánudaginn
var, sex dögum fyrir kosningarnar,
að sérfræðingar á vegum flokksins
væru að vinna að tillögum um hvernig
taka ætti á skuldavanda landsins.
Flokkurinn er með 6 til 7% fylgi, ef
marka má síðustu kannanir. Hann
fékk 6,6% atkvæðanna í kosningum
til Evrópuþingsins í maí.
Gullinni dögun, flokki nýnasista
sem er mjög í nöp við innflytjendur,
er spáð um 5% fylgi í kosningunum.
Hann var þriðji stærsti flokkurinn í
síðustu kosningum til Evrópuþings-
ins þegar hann hlaut 9,4% atkvæð-
anna og fékk í fyrsta skipti fulltrúa á
Vilja ekki eins flokks meirihluta
EPA
Næsti forsætisráðherra? Alexis Tsipras, leiðtogi Syriza, Bandalags róttækra vinstriflokka, á fundi í Saloniki.
Smáflokkar reyna að komast í oddastöðu á þingi Grikklands í kosningum sem gætu ráðið úrslitum
um hvort landið haldi evrunni Átta flokkar gætu fengið sæti á þinginu og þrír þeirra eru nýir
Hræðsluáróður? Antonis Samaras forsætisráðherra á fundi í Aþenu.
Heimild: Metron Analysis (16. jan.)
12
71
12
16
2825
1279
14
147
8
12 19
85
15Sæti
300
Kannanir benda til þess að vinstriflokkurinn Syriza fái mest fylgi
Miðflokkur
Þingkosningar í Grikklandi
Óháðir
Grikkir
Gullin dögun
Nýtt
lýðræði Mið-hægriflokkur
Nýnasistar
Hægrimenn
og þjóðernissinnar
Vinstri- og miðflokkur
Pasok Jafnaðarmenn
Syriza Róttækur vinstriflokkur
KKE Kommúnistar
DIMAR
To Potami
Sk
ipt
ing
þin
gsæ
ta efti
r kosningarnar ef spár ganga eftir
Óháðir
Þin
gið
á síðasta kjörtímabili
AFP
Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Sesta stólar
Plastskeljastóll með stálgrind, staflanlegur.
Litir: Hvítur, svartur, rauður og glær.
Hönnun:
Skel: Stefano Sandona fyrir Infinity.
Grind: Sturla Már Jónsson, Sólóhúsgögn.
Verð kr. 32.000
www.facebook.com/solohusgogn
Íslensk hönnun
og framleiðsla