Morgunblaðið - 22.01.2015, Page 23

Morgunblaðið - 22.01.2015, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 Vatnsveður Undanfarna daga hefur hlánað og við það orðið heldur blautt á götum borgarinnar og þá er eins gott fyrir gangandi vegfarendur að vera vel skóaðir svo ekki blotni þeir í fætur. Kristinn Ekki er vafi á því að fjármálastofnanir voru þeir aðilar innanlands sem báru mesta ábyrgð varðandi hrun fjármálakerfisins haustið 2008. Ljóst er nú að ekki var nógu varlega farið í góð- ærinu, hvorki hér á landi né í hinum al- þjóðlega fjár- málaheimi. Enn á eftir að ganga frá þrotabúum Kaupþings, Glitnis og Landsbankans. Heildareignir þrotabúanna eru rúmlega 2.500 milljarðar. Reiðufé búanna er tæpir 1.400 milljarðar. Íslenskir bankar voru ekki einu bankarnir á síðasta áratug sem reknir voru á vafasaman hátt. Marg- vísleg mál er varða fjármálastofn- anir hafa komið upp bæði austan hafs og vestan. Samkvæmt frétt breska blaðsins Guardian frá nóv- ember sl. voru sektir á breska og bandaríska banka á árunum 2009- 2013 um 34.000 milljarðar í íslensk- um krónum. Í fréttum síðan í nóv- ember er sagt frá sektum upp á 2 milljarða punda en það eru um 400 milljarðar króna. Af þessu má sjá að ríkisstjórnir geta látið banka sæta samfélagslegri ábyrgð sé pólitískur vilji fyrir hendi og sterk forysta. Skipt um stefnu gagnvart bankavaldinu Á meðan ríkisstjórn Jóhönnu Sig- urðardóttir var við völd var lítið sem ekkert gert til að knýja þrotabú gömlu bank- anna að leggja sitt af mörkum til að bæta fyrir tjónið sem bank- arnir bera sannanlega ábyrgð á. Ríkisstjórn Samfylkingar og VG fannst aðrir hlutir brýnni en að rétta hlut almennings gagnvart fjármálakerfinu. Rík- isstjórn sem átti að heita vinstristjórn en hún sýndi fjár- málastofnunum auðmýkt og und- irgefni. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar breytti um stefnu gagnvart bönkum. Ríkisstjórnin ákvað að bankar skyldu látnir sæta aukinni ábyrgð og leggja fram sann- gjarnan skerf til reksturs samfélags- ins. Samkvæmt álagningarskrá rík- isskattstjóra síðastliðið haust munu bankarnir greiða mest í skatta og sitja þrír bankar í efstu sætunum; Kaupþing, er greiðir 14,6 milljarða, Landsbankinn greiðir tæpa 13 millj- arða og Glitnir greiðir tæpa 12 millj- arða. Vinstristjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur veitti fjármálastofnunum nánast frítt spil en núna er annað upp á teningunum. Meirihluti fram- sóknarmanna og sjálfstæðismanna á alþingi gerði fjárlagafrumvarpið þannig úr garði fyrir árið 2015 að áætlað er að tekjur ríkissjóðs af bankaskatti verði nálægt 39 millj- örðum króna fyrir árin 2014 og 2015. Það gengur ekki þrautalaust að knýja á um samfélagslega ábyrgð bankanna. Þrotabú gömlu bankanna hafa haft sig í frammi í umræðunni og þrotabú Glitnis hefur kært bankaskattinn til ríkisskattsstjóra. Þá eru ónefnt að margir telja að þrotabúin kaupi margvíslega að- keypta þjónustu frá aðilum sem reyna sitt til að hafa áhrif á nið- urstöðu mála í þágu bankanna. Núverandi ríkisstjórn hefur staðið föst á þeirri stefnu sinni að bank- arnir eiga ekki að vera stikkfrí frá því að skila til samfélagsins eðlilegu framlagi. Sterk staða Íslands Eitt stærsta verkefni stjórnvalda í dag er afnám gjaldeyrishafta. Markmið ríkisstjórnarinnar er að afnám haftanna valdi ekki koll- steypu í fjármálum þjóðarinnar. Veruleg undirbúningsvinna er að baki áætlunum um afnám hafta. Vinna þar undir handarjaðri rík- isstjórnar og Seðlabankans bæði erlendir og íslenskir sérfræðingar. Þrotabú bankanna og uppgjör þeirra eru veigamiklir þættir í af- námi gjaldeyrishaftanna. Til skamms tíma var talað um að ef þrotabúin legðu ekki fram raun- hæfar tillögur um uppgjör á búun- um, þar sem tekið væri tillit til fjár- málalegs stöðugleika, þá yrðu búin knúin til gjaldþrotaskipta. Eftir því sem vinnu ríkisstjórnar vindur fram er orðið skýrara að fleiri verkfæri koma til greina en gjaldþrotaskipti til að halda ábyrgð að þrotabúunum. Útgönguskattur á fjármagnsflutninga er eitt ráð sem þekkt er alþjóðalega. Fordæmi eru um útgönguskatta á fjármagn upp á 20 til 50 prósent. Hugmyndir þessa efnis voru í umræðunni á síð- asta kjörtímabili m.a. hjá Lilju Mósesdóttur o.fl. en fyrri rík- isstjórn fékkst aldrei til að fara þessa leið. Lykilþáttur í sterkri stöðu Ís- lands er að lagaramminn okkar er traustur og við búum við krónu sem gjaldmiðil. Þrotabúin verða aðeins gerð upp í íslenskum krónum. Er- lendir kröfuhafar þrotabúanna eru hægt en örugglega að átta sig á því að ríkisstjórninni er full alvara að standa vörð um hagsmuni almenn- ings á Íslandi. Það sést til dæmis á því að ýmsir þeir sem áttu stórar kröfur í þrotabúin seldu kröfur sín- ar seinni hluta ársins. Bankarnir verða að læra að haga sér Þrotabú föllnu bankanna og af- nám haftanna eru tímafrek um- ræðuefni. Kastljósinu er síður beint að fjármálastofnunum sem end- urreistar voru eftir hrun á grunni gömlu bankanna: Arion, Íslands- banki og Landsbankinn nýi. Fyrstu dagar og vikur nýs árs leiða á hinn bóginn í ljós að ekki er vanþörf á að skerpa skilning starfandi banka á samfélagslegri ábyrgð sinni. Þrátt fyrir að Seðlabanki Íslands hafi lækkað vexti undanfarið er misbrestur á að bankar hafi lækkað vexti til viðskiptavina sinna. Sumir bankar ganga lengra en að láta undir höfuð leggjast að skila stýri- vaxtalækkun til skuldara. Þannig hækkaði Arion banki um áramótin vexti á verðtryggðum íbúðalánum. Ekki voru innlánsvextir hækkaðir með tilsvarandi hætti. Þar með jókst vaxtamunur bankans á kostað viðskiptavina sinna, sparifjáreig- enda og skuldara. Á síðasta ári óx vaxtamunur Ar- ion banka um 0,20%. Hjá Lands- bankanum og Íslandsbanka jókst vaxtamunurinn á sama tíma um 0,15%. Tekjur bankanna jukust um tæp- lega milljarð vegna breytinga á vaxtamun í kjölfar lækkunar stýri- vaxta, sem nú standa í 5,25%. Með þessum hætti hafa bankarnir mörg hundruð milljónir króna af almenn- ingi.Verkalýðsfélög, t.d. VR, láta málið til sín taka og hafa beint fyr- irspurnum til bankanna en fátt ver- ið um svör. Augljóst er að bank- arnir eru í þeirri stöðu að taka til sín fjármuni frá heimilunum í land- inu með því að föndra við vaxtatöfl- urnar fyrir inn- og útlán. Almenningur er berskjaldaður gagnvart ásælni bankanna enda haga fjármálastofnanir og þrotabú föllnu bankanna sér eins og ríki í ríkinu. Það hlýtur að vera eitt af stærstu verkefnum nýs árs að rík- isstjórn og löggjafi láti til sín taka á þessu sviði til að knýja á um sam- félagslega ábyrgð bankanna. Eftir Ásmund Einar Daðason »Ríkisstjórnin stendur fast á þeirri stefnu að fjármálastofn- anir og þrotabú föllnu bankanna eigi að skila til samfélagsins eðlilegu framlagi. Ásmund Einar Daðason Höfundur er alþingismaður Framsóknarflokksins. Fjármálastofnanir, sektir og samfélagsábyrgð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.