Morgunblaðið - 22.01.2015, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Vatnsveður Undanfarna daga hefur hlánað og við það orðið heldur blautt á götum borgarinnar og þá er eins gott fyrir gangandi vegfarendur að vera vel skóaðir svo ekki blotni þeir í fætur.
Kristinn
Ekki er vafi á því að
fjármálastofnanir voru
þeir aðilar innanlands
sem báru mesta
ábyrgð varðandi hrun
fjármálakerfisins
haustið 2008. Ljóst er
nú að ekki var nógu
varlega farið í góð-
ærinu, hvorki hér á
landi né í hinum al-
þjóðlega fjár-
málaheimi. Enn á eftir að ganga frá
þrotabúum Kaupþings, Glitnis og
Landsbankans. Heildareignir
þrotabúanna eru rúmlega 2.500
milljarðar. Reiðufé búanna er tæpir
1.400 milljarðar.
Íslenskir bankar voru ekki einu
bankarnir á síðasta áratug sem
reknir voru á vafasaman hátt. Marg-
vísleg mál er varða fjármálastofn-
anir hafa komið upp bæði austan
hafs og vestan. Samkvæmt frétt
breska blaðsins Guardian frá nóv-
ember sl. voru sektir á breska og
bandaríska banka á árunum 2009-
2013 um 34.000 milljarðar í íslensk-
um krónum. Í fréttum síðan í nóv-
ember er sagt frá sektum upp á 2
milljarða punda en það eru um 400
milljarðar króna.
Af þessu má sjá að ríkisstjórnir
geta látið banka sæta samfélagslegri
ábyrgð sé pólitískur vilji fyrir hendi
og sterk forysta.
Skipt um stefnu gagnvart
bankavaldinu
Á meðan ríkisstjórn Jóhönnu Sig-
urðardóttir var við völd var lítið sem
ekkert gert til að knýja
þrotabú gömlu bank-
anna að leggja sitt af
mörkum til að bæta
fyrir tjónið sem bank-
arnir bera sannanlega
ábyrgð á. Ríkisstjórn
Samfylkingar og VG
fannst aðrir hlutir
brýnni en að rétta hlut
almennings gagnvart
fjármálakerfinu. Rík-
isstjórn sem átti að
heita vinstristjórn en
hún sýndi fjár-
málastofnunum auðmýkt og und-
irgefni.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar breytti um stefnu
gagnvart bönkum. Ríkisstjórnin
ákvað að bankar skyldu látnir sæta
aukinni ábyrgð og leggja fram sann-
gjarnan skerf til reksturs samfélags-
ins. Samkvæmt álagningarskrá rík-
isskattstjóra síðastliðið haust munu
bankarnir greiða mest í skatta og
sitja þrír bankar í efstu sætunum;
Kaupþing, er greiðir 14,6 milljarða,
Landsbankinn greiðir tæpa 13 millj-
arða og Glitnir greiðir tæpa 12 millj-
arða.
Vinstristjórn Jóhönnu Sigurð-
ardóttur veitti fjármálastofnunum
nánast frítt spil en núna er annað
upp á teningunum. Meirihluti fram-
sóknarmanna og sjálfstæðismanna á
alþingi gerði fjárlagafrumvarpið
þannig úr garði fyrir árið 2015 að
áætlað er að tekjur ríkissjóðs af
bankaskatti verði nálægt 39 millj-
örðum króna fyrir árin 2014 og 2015.
Það gengur ekki þrautalaust að
knýja á um samfélagslega ábyrgð
bankanna. Þrotabú gömlu bankanna
hafa haft sig í frammi í umræðunni
og þrotabú Glitnis hefur kært
bankaskattinn til ríkisskattsstjóra.
Þá eru ónefnt að margir telja að
þrotabúin kaupi margvíslega að-
keypta þjónustu frá aðilum sem
reyna sitt til að hafa áhrif á nið-
urstöðu mála í þágu bankanna.
Núverandi ríkisstjórn hefur staðið
föst á þeirri stefnu sinni að bank-
arnir eiga ekki að vera stikkfrí frá
því að skila til samfélagsins eðlilegu
framlagi.
Sterk staða Íslands
Eitt stærsta verkefni stjórnvalda
í dag er afnám gjaldeyrishafta.
Markmið ríkisstjórnarinnar er að
afnám haftanna valdi ekki koll-
steypu í fjármálum þjóðarinnar.
Veruleg undirbúningsvinna er að
baki áætlunum um afnám hafta.
Vinna þar undir handarjaðri rík-
isstjórnar og Seðlabankans bæði
erlendir og íslenskir sérfræðingar.
Þrotabú bankanna og uppgjör
þeirra eru veigamiklir þættir í af-
námi gjaldeyrishaftanna. Til
skamms tíma var talað um að ef
þrotabúin legðu ekki fram raun-
hæfar tillögur um uppgjör á búun-
um, þar sem tekið væri tillit til fjár-
málalegs stöðugleika, þá yrðu búin
knúin til gjaldþrotaskipta.
Eftir því sem vinnu ríkisstjórnar
vindur fram er orðið skýrara að
fleiri verkfæri koma til greina en
gjaldþrotaskipti til að halda ábyrgð
að þrotabúunum. Útgönguskattur á
fjármagnsflutninga er eitt ráð sem
þekkt er alþjóðalega. Fordæmi eru
um útgönguskatta á fjármagn upp
á 20 til 50 prósent. Hugmyndir
þessa efnis voru í umræðunni á síð-
asta kjörtímabili m.a. hjá Lilju
Mósesdóttur o.fl. en fyrri rík-
isstjórn fékkst aldrei til að fara
þessa leið.
Lykilþáttur í sterkri stöðu Ís-
lands er að lagaramminn okkar er
traustur og við búum við krónu sem
gjaldmiðil. Þrotabúin verða aðeins
gerð upp í íslenskum krónum. Er-
lendir kröfuhafar þrotabúanna eru
hægt en örugglega að átta sig á því
að ríkisstjórninni er full alvara að
standa vörð um hagsmuni almenn-
ings á Íslandi. Það sést til dæmis á
því að ýmsir þeir sem áttu stórar
kröfur í þrotabúin seldu kröfur sín-
ar seinni hluta ársins.
Bankarnir verða að
læra að haga sér
Þrotabú föllnu bankanna og af-
nám haftanna eru tímafrek um-
ræðuefni. Kastljósinu er síður beint
að fjármálastofnunum sem end-
urreistar voru eftir hrun á grunni
gömlu bankanna: Arion, Íslands-
banki og Landsbankinn nýi. Fyrstu
dagar og vikur nýs árs leiða á hinn
bóginn í ljós að ekki er vanþörf á að
skerpa skilning starfandi banka á
samfélagslegri ábyrgð sinni.
Þrátt fyrir að Seðlabanki Íslands
hafi lækkað vexti undanfarið er
misbrestur á að bankar hafi lækkað
vexti til viðskiptavina sinna. Sumir
bankar ganga lengra en að láta
undir höfuð leggjast að skila stýri-
vaxtalækkun til skuldara. Þannig
hækkaði Arion banki um áramótin
vexti á verðtryggðum íbúðalánum.
Ekki voru innlánsvextir hækkaðir
með tilsvarandi hætti. Þar með
jókst vaxtamunur bankans á kostað
viðskiptavina sinna, sparifjáreig-
enda og skuldara.
Á síðasta ári óx vaxtamunur Ar-
ion banka um 0,20%. Hjá Lands-
bankanum og Íslandsbanka jókst
vaxtamunurinn á sama tíma um
0,15%.
Tekjur bankanna jukust um tæp-
lega milljarð vegna breytinga á
vaxtamun í kjölfar lækkunar stýri-
vaxta, sem nú standa í 5,25%. Með
þessum hætti hafa bankarnir mörg
hundruð milljónir króna af almenn-
ingi.Verkalýðsfélög, t.d. VR, láta
málið til sín taka og hafa beint fyr-
irspurnum til bankanna en fátt ver-
ið um svör. Augljóst er að bank-
arnir eru í þeirri stöðu að taka til
sín fjármuni frá heimilunum í land-
inu með því að föndra við vaxtatöfl-
urnar fyrir inn- og útlán.
Almenningur er berskjaldaður
gagnvart ásælni bankanna enda
haga fjármálastofnanir og þrotabú
föllnu bankanna sér eins og ríki í
ríkinu. Það hlýtur að vera eitt af
stærstu verkefnum nýs árs að rík-
isstjórn og löggjafi láti til sín taka á
þessu sviði til að knýja á um sam-
félagslega ábyrgð bankanna.
Eftir Ásmund
Einar Daðason »Ríkisstjórnin
stendur fast á þeirri
stefnu að fjármálastofn-
anir og þrotabú föllnu
bankanna eigi að skila
til samfélagsins
eðlilegu framlagi.
Ásmund Einar Daðason
Höfundur er alþingismaður
Framsóknarflokksins.
Fjármálastofnanir, sektir og samfélagsábyrgð