Morgunblaðið - 22.01.2015, Qupperneq 27
Litagleðin var dásamleg og
spannaði alla þá liti sem ein-
kenndu Bobbu. Svört föt voru
sko ekki í tísku hjá henni, en það
var sá litur sem sat í sálinni hjá
mér þann daginn og nú dagana á
eftir. Það er alltaf erfitt að
kveðja en ég mun halda í minn-
ingarnar um elsku ömmu Bobbu.
Partíið var búið hérna á jörðinni
hjá henni en ég efast ekki um að
hún hefur verið fljót að skella sér
í eitt hinum megin. Enginn neit-
ar svona stuðbolta, eins og
Bobba var, um inngöngu. Við
sem eftir sitjum í þessu partíi á
jörðinni höldum minningu henn-
ar á lofti.
Elsku Siggi, Anna, Óli Björg-
vin, Sigga og börn. Ég votta ykk-
ur öllum mína dýpstu samúð og
veit að góðar minningar um
Bobbu munu lýsa ykkur fram á
veginn.
Þóra Guðrún Jónsdóttir.
Líf hvers og eins skiptist í
mörg tímabil og öll erum við í
mismunandi hlutverkum um æv-
ina. Fyrir tæpum tólf árum hófst
nýtt og spennandi tímabil í lífi
okkar þegar fyrsta barnabarið
fæddist. Um leið urðum við
þeirrar gæfu aðnjótandi að máta
okkur í ný hlutverk, afa- og
ömmuhlutverkin. Þá kom Bobba
líka fram á sjónarsviðið í sam-
svarandi hlutverki. Ekki höfum
við séð marga standa sig betur í
þessu hlutverki en hana. Synirn-
ir og fjölskyldur þeirra voru
hennar líf og yndi og hún gerði
allt sem í hennar valdi stóð til að
hlúa að þeim og styðja.
Það sópaði af henni Bobbu.
Minningar um samverustundir
með henni eru bjartar. Þær ein-
kennast af því hversu drífandi,
hláturmild, umhyggjusöm og
gefandi hún var. Í öllum afmæl-
isboðum og öðrum veislum var
hún hrókur alls fagnaðar, talaði
við alla og það var svo ótrúlega
gaman að hlæja með henni
Bobbu. Áður en við varð litið var
hún orðin eins og hvítur storm-
sveipur að aðstoða, hvort heldur
var að hella upp á kaffi, þurrka
upp af gólfi, taka saman leirtau
eða annað sem hún sá að þurfti
að gera.
Það var líka sérlega gaman að
fylgjast með Bobbu í öðru hlut-
verki þar sem hún var ekki síður
á heimavelli en í ömmuhlutverk-
inu en það var í vinnunni. Það er
auðvelt að sjá hana fyrir sér við
kynningarborðið að uppfræða
fólk um hinar aðskiljanlegu
snyrtivörur og krem: Það er ekki
komið að tómum kofunum hjá
henni enda reynslan orðin löng í
snyrtivörubransanum. Hress og
uppörvandi útskýrir hún málin
og áhuginn á að finna réttu vör-
una fyrir hvern og einn leynir sér
ekki. Augljóst er líka að henni
leiðist ekki þegar vel selst.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast ömmu Bobbu
og njóta greiðasemi hennar og
góðra stunda saman. Við kveðj-
um hana með miklum söknuði og
finnst skilnaðarstundin hafa
runnið upp allt of fljótt. Hugur
okkar er hjá sonum hennar og
fjölskyldum þeirra, foreldrum,
systrum og öðrum ástvinum.
Fyrst og fremst hugsum við þó
til barnabarnanna hennar sem
hún dáði svo mjög og hafa misst
ömmu sem bar hag þeirra fyrir
brjósti umfram allt annað. Guð
blessi þau öll.
Jón og Ingveldur.
Þrjár stelputátur hoppandi í
boltaleik í portinu við Laugaveg
76. Sú yngsta, tveimur árum
yngri en hinar, gefur ekkert eft-
ir, – heldur ótrauð áfram og
stendur fullkomlega fyrir sínu,
þrátt fyrir að hinar eldri væru
stjórnsamari og e.t.v. fljótari að
grípa boltann. Þetta var Bobba
frænka mín – þessi minning lýsir
henni vel – gafst ekki upp, þraut-
seig, hélt sínu striki.
Bobba, eins og hún alltaf var
kölluð, var hluti af þessum stóra
og litríka afkomendahópi ömmu
Guðrúnar og afa Þórarins á
Laugavegi 76, hún var einn
hlekkur í þessari fjölbreyttu
keðju. Keðju sem óhjákvæmilega
tekur stöðugum breytingum,
hlekkir bætast við og aðrir
hverfa.
Næstelst í fimm systra hópi
getur stundum verið snúið og
krefjandi, en Bobbu var það gef-
ið að taka öllu með ró og yfirveg-
un. Þegar erfiðleikar steðjuðu að
í fjölskyldunni og á móti blés var
Bobba stoð og stytta, hjálpsöm,
alltaf tilbúin að rétta hjálpar-
hönd og gladdist líka með sínu
fólki.
Fyrir mér er Bobba frænka
dásamleg kona sem lét lítið yfir
sér, vann vinnuna sína af mikilli
elju, samviskusemi og kostgæfni
og var alltaf tilbúin að hjálpa og
gera greiða, þrátt fyrir að heils-
an væri stundum að stríða henni.
Hér áður fyrr dáðist ég að
ákafa og dugnaði Bobbu við að
styðja við strákana sína í KR-lið-
inu og sló hún þar ekki slöku við.
Þegar þeir síðan uxu úr grasi,
stofnuðu fjölskyldur og barna-
börnin komu var varla hægt að
finna stoltari og ánægðari konu,
hún var hreykin af strákunum
sínum!
Það eru ófáar konurnar sem
hún hefur glatt með sínu bjarta
brosi og sannfæringu þegar hún
var að kynna og selja snyrtivörur
út um allt land. Á ótrúlegustu
stöðum hitti ég hana. „Hæ skvís“
var kallað og þegar ég leit við var
Bobba þar brosandi og eldhress
– „heyrðu held þú þurfir eitthvað
að hressa við andlitið á þér –
hérna færðu smá prufu“,. og svo
hlógum við báðar!
Skammdegismyrkrið varð enn
dýpra þegar fréttist að hún
glímdi við erfið veikindi sem
þrátt fyrir hækkandi sól báru
hana ofurliði.
Þegar ástvinur kveður verð-
um við að sætta okkur við það
náttúrulögmál að það sem lifir
mun deyja, en minningar eigum
við og berum þær áfram. Fjöl-
skyldan, ættingjar og vinir eru
ríkari eftir að hafa fengið að
njóta samvista við Bobbu.
Sonum hennar og þeirra fjöl-
skyldum, systrunum og ekki síst
foreldrum hennar, Þóru og
Didda votta ég alla mína samúð.
Auður Sveinsdóttir
Það er með mikilli sorg og
söknuði í hjarta að við skrifum
þér kveðju, elsku Bobba.
Við gleymum ekki hvað við
vorum spennt að fara að vinna
með þér. Þú varst goðsögn í
snyrtivörubransanum, allir vissu
hver Bobba var og enginn var
eins og Bobba.
Vinnusamari og ósérhlífnari
manneskju er varla hægt að
finna.
Það var mikill heiður að fá að
vinna með þér og þú kenndir
okkur svo margt.
Þú þekktir hverja einustu
verslun hringinn í kringum land-
ið og meira til.
Það leið ekki sá morgunn að
þú komst ekki til vinnu skæl-
brosandi, komst svífandi inn og
það var ekki annað hægt en að
vera kátur með þér.
„Elsku stelpan mín“, varstu
vön að kalla hverja og eina af
okkur „hvað get ég gert fyrir þig,
stelpan mín?“
Nú hljóma þessi orð í eyrum
okkar og við vitum að þú ert hjá
okkur.
Við metum það svo mikils að
fá að hafa verið með þér í Kaup-
mannahöfn í ágúst sl. og erum
þakklát fyrir að eiga allar þessar
skemmtilegu minningar með
þér, búðarrápið, hlátursköstin og
danssporin sem tekin voru með
stæl, algjörlega ógleymanlegar
stundir.
Þín verður sárt saknað og þú
verður ávallt í huga okkar.
Hvíl í friði, elsku Bobba.
Fyrir hönd samstarfsfélaga
þinna hjá Artica,
Eva og Guðlaugur (Gulli).
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
✝ Guðni BirgirSvavarsson
fæddist í Reykja-
vík 3. janúar 1960.
Hann lést á Grens-
ásdeild Landspít-
alans 12. janúar
2015.
Guðni var sonur
hjónanna Sigríðar
Andrésdóttur, f.
26. september
1936, og Svavars
Guðna Guðnasonar, f. 25.
ágúst 1930, og eru þau bæði
látin. Systkini Guðna voru 1)
Andrés Svavarsson, látinn,
kvæntur Þóru Stephensen,
eignuðust þau þrjú börn, 2)
Guðni, f. 27 október 1980, d.
30. mars 2014, hann var
kvæntur Brynhildi Guðmunds-
dóttur og börn þeirra eru a)
Karen Dögg, f. 2005, b) Alex-
ander Guðni, f. 2006, c) Elvar
Breki, f. 2008. 2) Elín Hrund,
f. 19. mars 1984, gift Stefáni
Helga Einarssyni og börn
þeirra eru a) Mikael Máni, f.
2005, b) Kristian Helgi, f.
2006, c) Selma Björt, f. 2002,
d) Bjartmar Elí, f. 2007. 3)
María Björk, f. 22. apríl 1987.
Guðni lauk sveinsprófi frá
Iðnskólanum í Reykjavík í bif-
vélavirkjun 1983 og fékk
meistararéttindi tveimur árum
síðar. Hann starfaði hjá Brim-
borg, áður Veltir, frá 1982-
2012 þegar hann lét af störf-
um vegna veikinda.
Útför Guðna fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 22.
janúar 2015, kl. 13.
Kristín Svava
Svavarsdóttir, lát-
in, gift Viðari
Gíslasyni, látinn,
eignuðust þau
einn son, 3) Rann-
veig Svavarsdóttir
og á hún eina
dóttur.
Guðni kvæntist
11. júlí 1981 Krist-
ínu Guðrúnu
Ólafsdóttur, f. 19.
júlí 1961, dóttir hjónanna Arn-
dísar Guðmundsdóttur, f. 17.
júní 1924, og Ólafs Bjarnason-
ar, f 14. maí 1923, og eru þau
bæði látin. Guðni og Kristín
eignuðust þrjú börn: 1) Svavar
Við skrifum okkar sorgir á sand
en sigra lífsins á bjargið ristum.
Heilagt er okkar hjónaband
og hamingja er á grænum kvistum.
Við trúum bæði á lífsins land,
Þar ljómar sól yfir nýjum kvistum
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Með þessum orðum kveð ég
þig, elsku Guðni minn. Takk
fyrir allt sem við áttum saman.
Megi allir góðir vættir vaka
yfir þér og leiða.
Þín eiginkona
Kristín.
Angrið sækir okkur tíðum heim
sem erum fávís börn í þessum heim,
við skynjum fátt, en skilja viljum þó
að skaparinn oss eilíft líf til bjó,
að upprisan er öllum sálum vís
og endurfundir vina í paradís.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Hjartað er tómt… Elsku
besti pabbi minn er farinn frá
okkur. Það er erfitt að sætta
sig við veruleikann og lífið er
sárt.
Ég á ekkert nema fallegar
og góðar minningar um hann
pabba minn, hetjuna mína. Ég
er svo þakklát fyrir hann og líf-
ið sem hann gaf mér. Síðustu
fjögur ár hafa verið honum erf-
ið og svo margt tekið frá hon-
um. Það var sárt að þurfa að
horfa upp á hann í öllum hans
veikindum en líka svo gott að
geta staðið með honum í gegn-
um þetta allt. Ég trúi því að
þjáningum hans sé lokið og að
það séu miklir fagnaðarfundir
hjá elsku fólkinu okkar.
Elsku pabbi minn, ég elska
þig og sakna þín. Megi góður
guð leiða þig inn í eilífðina og
gefa þér frið.
Þín dóttir,
Elín Hrund.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást
þín var.
Ó pabbi minn, þú ávallt tókst mitt
svar.
Aldrei var neinn, svo ástúðlegur eins
og þú.
Ó pabbi minn, þú ætíð skildir allt.
Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið
barn.
Brosandi blítt, þú breyttir sorg í
gleði.
Ó pabbi minn, ég dáði þína léttu
lund.
Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn
hátt.
Ó pabbi minn, hve undursamleg ást
þín var.
Æskunnar ómar ylja mér í dag.
(Þorsteinn Sveinsson)
Elsku besti pabbi minn, nú
komið er að kveðjustund. Eftir
sitja dýrmætar minningar sem
ég mun geyma uns við hittumst
á ný. Ég sakna þín sárt og
elska þig til tunglsins og aftur
tilbaka.
Takk fyrir allt, elsku pabbi.
Þín,
María Björk.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson.)
Ég kynntist Guðna mági
mínum fyrir réttum 38 árum
síðan. Hann var 17 ára og ég
19, nýorðin kærastan hans
Adda, stóra bróður hans. Fjöl-
skyldan bjó þá í Hraunbænum
og það var gott að koma inn í
þennan hlýja og skemmtilega
hóp sem samanstóð af foreldr-
unum Sísí og Svavari og börn-
um þeirra fjórum. Til að byrja
með virkaði Guðni fremur hlé-
drægur og lét ekki mikið fyrir
sér fara. Við nánari kynni kom
í ljós ljúfur persónuleiki hans,
kímnigáfa og traust. Þeir bræð-
ur voru um margt líkir í sér og
í samskiptum þeirra var ekki
alltaf þörf fyrir mörg orð. Syst-
urnar Stína og Veiga voru
meira í þeirri deild. Guðni var
handlaginn og natinn við það
sem hann tók sér fyrir hendur.
Hann rasaði ekki um ráð fram
en gaf sér tíma til að hugsa og
velta hlutunum fyrir sér. Hann
lærði bifvélavirkjun og þar kom
lagnin og natnin sér vel. Mér er
minnisstætt þegar við vorum
eitt sinn saman á ferðalagi og
bíllinn okkar Adda bilaði ein-
hvers staðar í Skagafirðinum.
Eftir skamma stund var Guðni
búinn að finna bilunina og
spurði hvort ég væri nokkuð
með nál og tvinna meðferðis.
Jú, það vildi svo vel til og
Guðni lagaði stíflaðan blönd-
unginn með þessum áhöldum.
Ekkert fum eða fát heldur
gengið örugglega og rólega til
verks og málið leyst. Guðni í
hnotskurn.
Guðni og Krissa eiginkona
hans kynntust ung. Með sam-
heldni og dugnaði komu þau
sér upp fallegu heimili. Þau
eignuðust þrjú börn og barna-
börnin eru orðin fimm. Fyrir
nokkrum árum varð mikil
breyting á lífi þeirra allra þeg-
ar ættarsjúkdómurinn, arfgeng
heilablæðing, fór að gera vart
við sig. Þeir feðgar Guðni og
Svavar Guðni veiktust báðir.
Sjúkdómurinn skerti lífsgæði
Guðna svo um munaði og á síð-
asta ári varð fjölskyldan fyrir
því þunga höggi að missa Svav-
ar Guðna. Þessum erfiðleikum
tók Guðni af ótrúlegu æðruleysi
og yfirvegun. Hann mætti
hverju áfallinu á fætur öðru
dyggilega studdur af Krissu og
dætrum þeirra Elínu og Maríu.
Fjölskyldan tók þá meðvituðu
ákvörðun að láta hverjum degi
nægja sína þjáningu og njóta
allra þeirra góðu stunda sem
buðust. Þannig hafa þau skapað
dýrmætan sjóð góðra minninga
sem lifa.
Elsku Krissa, María, Elín,
Stefán og barnabörnin öll, guð
geymi ykkur og gefi ykkur
styrk. Ég kveð Guðna með
söknuði og þakklæti fyrir vin-
áttuna og samfylgdina.
Ferð þín er hafin.
Fjarlægjast heimatún.
Nú fylgir þú vötnum
sem falla til nýrra staða.
Og sjónhringar nýir
sindra þér fyrir augum.
(Hannes Pétursson.)
Þóra Stephensen.
Í dag kveð ég kæran æsku-
vin, trúan og traustan vin sem
gerði kraftaverk í því að halda
gömlu bíldruslunum mínum
gangandi þegar við hjónin vor-
um að kaupa okkar fyrstu íbúð
og heimilisbuddan tóm. Þá var
gott að eiga vin sem var bif-
vélavirki og alltaf fús til að
hjálpa án þess að rukka krónu
fyrir. Guðni var alltaf til staðar
fyrir vini sína, það skipti engu
máli hvað þurfti að gera hverju
sinni, alltaf var hægt að hóa í
Guðna, líklega var orðið nei
ekki til í hans orðaforða.
Guðni og Krissa konan hans
voru hrókar alls fagnaðar, þó
svo að Guðni væri ekki málgef-
inn þá var hann ljúfur og
skemmtilegur og sérlega vel að
sér í allri tónlist sem við gátum
hlustað tímunum sama á. Vina-
hópurinn fór saman í ógleym-
anlegar útilegur og sumarbú-
staðarferðir, og okkur
félögunum þótti alltaf gaman
að kíkja í veiði.
Síðustu árin hafa verið fjöl-
skyldunni sérlega erfið eftir að
ættarsjúkdómurinn arfgeng
heilablæðing skall á þeim af
fullum þunga, en Sigríður móð-
ir Guðna og Andrés afi Guðna
höfðu áður látist af þessum
sjúkdómi.
Andrés eldri bróðir Guðna
veiktist árið 2007 og lést árið
2013. Kristín systir þeirra fékk
sína fyrstu blæðingu árið 2010
hún lést árið 2012. Sonur henn-
ar hann Andrés var aðeins 26
ára er hann lést eftir fjögurra
ára baráttu við heilablæðingar í
byrjun þessa árs og skilur hann
eftir sig unga dóttur. Guðni og
Krissa misstu son sinn Svavar
af þessum hörmulega sjúkdómi
í mars á síðasta ári, hann var
aðeins 33 ára er hann lést frá
þremur ungum börnum sínum
eftir þriggja ára baráttu og
Guðni veiktist sjálfur af þess-
um sjúkdómi fyrir fjórum árum
og háði drengilega baráttu við
síendurteknar heilablæðingar
þar til yfir lauk þann 12 janúar.
Æðruleysi og dugnaður ein-
kennir Krissu eiginkonu Guðna
sem hefur staðið eins og klett-
ur fyrir alla fjölskylduna í þess-
ari erfiðu baráttu.
Öll bindum við vonir um að
þróun lækningar við þessum
séríslenska sjúkdómi fari að
ganga hraðar fyrir sig og minn-
um þess vegna á styrktarsjóð
Heilaverndar sem safnar fé til
rannsókna fyrir þennan sjúk-
dóm.
Guð blessi minningu Guðna
og gefi fjölskyldu hans styrk og
huggun í sorginni.
Kjartan og Guðrún.
Fallinn er frá æskuvinur sem
við félagarnir viljum minnast
með nokkrum orðum. Það hafa
verið mikil og sterk tengsl á
milli okkar félaganna í gegnum
árin og erfitt að sætta sig við
það þegar einn yfirgefur hóp-
inn alltof snemma. Við fé-
lagarnir áttum frábærar stund-
ir með Guðna við veiðar í Laxá
í Kjós þar sem hann naut sín
vel.
Ótrúleg seigla og þolinmæði
skilaði honum oft góðum afla á
meðan við hinir komum heim
með öngulinn í rassinum.
Fyrir nokkrum árum stofn-
uðum við félagarnir plötuklúbb
og hittumst einu sinni í mánuði
og spiluðum þá eingöngu vín-
ylplötur og ræddum um hljóm-
sveitir og tónlist. Oft voru rifj-
aðar upp góðar minningar frá
gömlu góðu dögunum og var þá
oft glatt á hjalla. Guðni var
mikill tónlistarunnandi og
mætti alltaf á vínylplötukvöld,
sama hversu veikur hann var
orðinn, því að þetta voru hon-
um dýrmætar stundir eins og
okkur hinum og kom það fyrir
að við mættum með steríógræj-
urnar upp á Grensásdeild svo
að hann missti ekki af fundi.
Blessuð sé minning þín, elsku
kallinn okkar, við eigum eftir
að sakna þín mikið.
Félagarnir og nördarnir í
vínylplötuklúbbunum
Sigurþór, Guðjón, Helgi,
Sigurður, Þröstur og
Kjartan.
Þá er hann fallinn frá langt
fyrir aldur fram, vinurinn okk-
ar kæri, Guðni Birgir Svavars-
son.
Við urðum þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast Guðna árið
1978 í gegnum vini hans úr Ár-
bænum og fundum við strax að
þar fór ljúfur drengur, stór og
sterkur, rólegur, traustur og
svolítið þrjóskur.
Það tókust með okkur sterk
vinabönd sem ekkert hefur get-
að haggað annað en andlát þess
mæta mans.
Guðni hefur reynst okkur
traustur og góður vinur alla tíð
ásamt henni Krissu og það hef-
ur verið okkur mjög dýrmætt
að fá að vera þeim samferða í
gegnum tíðina því vinátta
þeirra er verðmætari gulli.
Nú syrgjum við fallinn vin og
biðjum algóðan Guð um styrk
og stuðning til handa Krissu og
fjölskyldu.
Þröstur og Hrafnhildur.
Guðni Birgir
Svavarsson
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
BJARGHILDUR SIGURÐARDÓTTIR
áður til heimilis
í Kelduskógum 1,
Egilsstöðum,
sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík
þriðjudaginn 13. janúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 28. janúar kl. 13.00.
Gerður, Sigurður, Björn, Bergljót,
Ingibjörg og Guðný Arabörn
og fjölskyldur.