Morgunblaðið - 22.01.2015, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Viðhalds- og málningarvinna
Getum bætt við okkur inni- og
útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð
góð umgengni. Tilboð/ tímavinna.
Lítið Mál ehf. Sigurður GSM:
896 5758, malid@internet.is.
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medi-
cine (JFM CU) í Martin í
Slóvakíu mun halda inntökupróf í
Reykjavík16 apríl og 24 júni 2015
Kennt er á ensku. Um 6 ára
viðurkennt nám er að ræða. Fjöldi
íslendinga stundar nám í læknis-
fræði við skólann
Heimasíða skólans er
www.jfmed.uniba.sk
Uppl. í s. 544-4333 og fs. 820-
1071 kaldasel@islandia.is
TILBOÐ - STAKAR STÆRÐIR
Teg. Bella bh kr. 4.500,- og buxur
kr. 1.500,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
TILBOÐ Mjúkir og þægilegir
dömuskór úr leðri. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 3.500.-
TILBOÐ Vandaðir dömukuldaskór úr
mjúku leðri, fóðraðir og með góðan
sóla. Stakar stærðir.
TILBOÐSVERÐ: 5.500.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Bílar
Hópbílar
Bjóðum hópferðabíla frá 8-67 farþega.
Guðmundur Tyrfingsson ehf
gt@gtbus.is www.gtbus.is
S. 568-1410 / 482-1210
Hópferðabílar til leigu
með eða án bílstjóra
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Matador heilsárs- og vetrardekk
til sölu
Framleidd af Continental Matador
Rubber í Slóvakíu.
Frábær dekk á góðu verði.
Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði
Dalvegi 16b, 201 Kópavogur.
S. 544-4333.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Smáauglýsingar
Öldurót
Hljómsveitin Öldurót (tríó).
Nú er tímabært að panta góða
danshljómsveit fyrir
árshátíð/þorrablót og almenna
dansleiki.Hafið samband við:
albert.ingason@gmail.com
og gitarinn@gitarinn.is
Hljóðfæri
Skemmtanir
Til sölu Mercedes Benz E 200
Avantgarde Ekinn aðeins 85.000
þúsund km. Smurbók. Hefur fengið
fullkomið viðhald og í topp standi.
Verð: 2.850.000.
Upplýsingar í síma 6989898.
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ!
MOGGINN Í
IPADINN
WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD
Fyrir tveimur
áratugum tengdist
FÍB við umbjóð-
endur sína og um-
heiminn um internetið um sér-
staka heimasíðu FÍB. Þetta var
nýjung á þessum tíma og þau
voru ekki mörg félagasamtökin
eða fyrirtækin sem höfðu þá
komið sér upp virkri heimasíðu
þar sem nálgast mátti upplýs-
ingar og fréttir sem voru upp-
færðar reglulega. Það var ung-
ur tölvunarfræðingur, Hjörtur
Grétarsson, sem átti frumkvæð-
ið að netvæðingu FÍB í upphafi
en fljótlega þurfti hann að
hverfa til annarra verkefna og
þá tók yngri bróðir hans við
keflinu og smíðaði allan þann
hugbúnað sem til þurfti. Hann
fylgdi síðan vefnum eftir upp
frá því og sá til þess að hann
gat vaxið og dafnað.
Jón Ásbjörn
Grétarsson
✝ Jón ÁsbjörnGrétarsson
fæddist 5. janúar
1965. Hann lést 17.
desember 2014.
Útför Jóns fór
fram 5. janúar
2015.
Þennan mann;
Jón Á. Grétarsson
netagerðarmeist-
ara, kveður starfs-
fólk FÍB nú með
söknuði eftir
tveggja áratuga
farsælt og ljúft
samstarf. Jón hafði
alla tíð vakandi
auga með FÍB-
vefnum. Hann hélt
stöðugt áfram að
þróa hann, halda honum við og
endurbæta hann jafnt og þétt í
takt við auknar kröfur og
breyttar þarfir. En jafnframt
því sem vefurinn stækkaði og
efldist tókst Jóni að gera hann
einfaldari og léttari í allri notk-
un og svörun þrátt fyrir stöð-
ugan vöxt og stöðugt vaxandi
mikilvægi hans í starfsemi fé-
lagsins.
Jón var einstaklega ljúfur og
greiðvikinn samstarfsmaður
auk þess að vera yfirburðamað-
ur í net- og tölvutækni. Aldrei
verður hjá því komist að vanda-
mál bæði stór og smá komi upp
í rekstri flókinna netkerfa og
orsakir þeirra geta verið af
ýmsum toga. Þegar slíkt gerðist
var alltaf hægt að ná í Jón,
jafnvel þótt hann væri nú ekki
beinlínis heimavið alltaf.
Minnisstætt er þegar gerð
hafði verið tölvuárás á FÍB-vef-
inn fyrir nokkrum árum og
hann illa skemmdur, að hringt
var í Jón.
Hann svaraði í farsímann
sinn og var staddur um borð í
togara úti á Kyrrahafinu, nokk-
ur hundruð sjómílur vestur af
Santiago í Síle að þróa nýtt
troll. En hann kvaðst vera í
þokkalegu netsambandi og
myndi líta á þetta. Og það gerði
Jón – eins og alltaf – og innan
stundar var FÍB-vefurinn kom-
inn í lag.
Jón Á. Grétarsson var
netagerðarmeistari og aðalstarf
hans var að hanna og þróa veið-
arfæri fyrir fiskiskip. Sú „neta-
gerð“ sem hann vann fyrir FÍB
var hins vegar á öðru úthafi – á
internetinu. En auk þess að
vera afbragðs netagerðarmeist-
ari í þessum tvenna skilningi
bjó Jón líka að traustri og góðri
tónlistarmenntun og lék listavel
á ýmis hljóðfæri eins og fiðlu og
píanó. Hann bjó þannig yfir
miklum og fjölþættum hæfileik-
um og var auk þess einstakt
ljúfmenni, sem við minnumst
með hlýju og virðingu. Fjöl-
skyldu hans og ástvinum send-
um við dýpstu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsfólks FÍB,
Stefán Ásgrímsson.
Ég var eins og
heimalningur í
Ysta-Bæli þegar ég
var krakki og ég held að mér
hafi fundist sjálfsagt að ég fengi
að vera þar eins og ég vildi. Ég
var ávallt velkomin og það má
segja að Ysta-Bæli hafi verið
mitt annað heimili. Það rumdi
gjarnan vinalega í Sveinbirni
þegar ég kom þangað og hann
kom iðulega með einhver glettin
skot um óþægðina í okkur
frænkum en við Helga Sif tók-
um upp á misgáfulegum leikjum
sem féllu ekki alltaf í góðan
jarðveg hjá Sveinbirni og Eygló.
Við reyndum þá að bæta fyrir
það í einhvern tíma áður en við
fundum upp á einhverju nýju.
Þær voru notalegar kvöld-
stundirnar þegar Sveinbjörn las
fyrir okkur Helgu Sif eða Eygló
sagði okkur sögur sem hún
skáldaði jafnóðum. Þetta eru
Sveinbjörn
Ingimundarson
✝ SveinbjörnIngimundarson
fæddist 1. sept-
ember 1926. Hann
andaðist 30. desem-
ber 2014. Útför
Sveinbjörns fór
fram 9. janúar
2015.
einar af uppáhalds-
æskuminningum
mínum og ég drakk
í mig bæði sögurn-
ar og notalegan
málróminn.
Þegar við Helga
Sif vorum komnar á
unglingsaldur feng-
um við meiri
ábyrgð við heimilis-
og bústörfin. Eitt
sinn sáum við um
matinn og vildum prófa eitthvað
nýtt. Helga Sif hafði lesið ein-
hvers staðar um súpu með eggj-
um í og við elduðum eina slíka
sem heppnaðist vægast sagt illa.
Við settum hrá egg út í heita
súpuna og hrærðum vel í, Eygló
var ekki heima en aumingja
Sveinbjörn glotti og reyndi sitt
besta við að borða ólystuga súp-
una.
Sveinbjörn var fróður maður,
hann las mjög mikið og á heim-
ilinu var dágott bókasafn. Ég
hef stundum verið talin vera
með nokkuð gamaldags orða-
forða og hef alltaf haft gaman af
að spá í merkingu og uppruna
gamalla orða og orðatiltækja.
Ég fjallaði nú nýlega um veru
mína í Ysta-Bæli í námsritgerð í
Háskóla Íslands. Ritgerðin var
um orðaforða barna með lestr-
arerfiðleika og mikilvægi þess
að þau ælust upp við ríkulegt
málumhverfi, og á ég þeim
Sveinbirni og Eygló mikið að
þakka fyrir þann orðaforða sem
ég bý yfir í dag.
Amma og Sveinbjörn voru
svo dásamleg saman enda afar
góðir vinir alla tíð. Eitt sinn
þegar ég fór með ömmu að
heimsækja Sveinbjörn á Hrafn-
istu, þá tók hún gamlar myndir
með í albúmi til að sýna honum,
myndir frá því þau voru ung og
af þeim og fjölskyldunni. Það
var ótrúlega skemmtilegt að
fylgjast með þeim flissandi eins
og smákrakkar og stríðandi
hvort öðru. Þetta er ein af þeim
stundum sem ég sé eftir að hafa
ekki verið með myndavél því
þetta var svo fullkomið mynd-
efni þar sem þau sátu og
skemmtu sér yfir myndunum og
á veggnum fyrir aftan þau hékk
málverk af Ysta-Bæli.
Ég hef nýtt mér margt, í upp-
eldi minna eigin barna og í
vinnu sem leikskólakennari, af
því sem þau Sveinbjörn og
Eygló kenndu mér. Og ekki síst
þegar kemur að bókmenntum og
vísum, þannig hefur veran í
Ysta-Bæli að mörgu leyti mótað
mig og gert að þeirri manneskju
sem ég er í dag.
Guð gefi börnunum í Ysta-
Bæli og fjölskyldum þeirra
styrk í sorginni.
Kristbjörg Ingimundar-
dóttir.
Hún Lína, mág-
kona mín, skipaði
sérstakan sess í
huga mér og minn-
ar fjölskyldu. Það
var því mikið áfall þegar séð
varð hvert stefndi með hennar
veikindi. Og nú þegar komið er
að kveðjustund er gott að geta
litið til baka og rifjað upp dýr-
Sigurlína
Ingadóttir
✝ Sigurlína Inga-dóttir fæddist
29. október 1947.
Hún lést 20. desem-
ber 2014. Útför
Sigurlínu fór fram
29. desember 2014.
mætar minningar.
Við minnumst
heimsóknanna í
Hlíðargerðið til
Línu og Garðars,
sem voru sérstak-
lega tíðar meðan
faðir hennar lifði,
en hann átti hjá
þeim sitt heimili
eftir að hann varð
einn og naut þar
einstakrar um-
hyggju.
Við minnumst indælu stund-
anna í Klettakotinu þegar allir
voru þar samankomnir, börn og
fullorðnir. Þá var margt spjall-
að og brallað. Og svona má
lengi rifja upp góðar minning-
ar.
Lína fylgdist vel með stór-
fjölskyldunni og ekki síst unga
fólkinu, hvernig því gekk í
vinnu, skóla og í lífsbaráttunni
yfirleitt, og spurði tíðinda fram
undir það síðasta.
Lína var lánsöm í sínu lífi,
átti góðan mann og góðar dæt-
ur og síðan komu tengdasyn-
irnir og barnabörnin og alla
annaðist hún af hógværð og al-
úð.
Garðar annaðist Línu í veik-
indum hennar af einstakri ást
og umhyggju, og hann mun
standa vaktina áfram og annast
sína fjölskyldu með sömu um-
hyggjunni. Guð veri með hon-
um, dætrunum og þeirra fjöl-
skyldum og gefi þeim styrk á
þessum erfiðu stundum.
Guðrún Eiríksdóttir.