Morgunblaðið - 22.01.2015, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Guðmundur Hrafnkelsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður íhandbolta, fylgist með íslenska landsliðinu á HM í Katar.„Þeir hafa farið rólega af stað en hefur verið vaxandi hjá
þeim. Frábær leikur á móti Frökkum sem skilaði okkur stigi og við
eigum mikla möguleika á góðu sæti í riðlinum.“ Guðmundur hefur
leikið flesta landsleiki fyrir Íslands hönd eða 406 landsleiki. Hann er
markvarðarþjálfari hjá HK og þjálfar frá fimmta flokki og upp úr
bæði í karla- og kvennaflokki. „Ég hef einnig verið að vinna fyrir HSÍ
en þar erum við með æfingar á tveggja vikna fresti fyrir efnilega ung-
linga. Það eru ýmist opnar æfingar eða við veljum krakka á æfingar.
Svo fylgist ég með börnunum í handboltanum. Bæði Sigurjón sonur
minn sem er 17 ára og og Margrét 11 ára æfa með HK og það er fullt
starf að fylgjast með því.“ Að auki á Guðmundur soninn Arnar, f.
1991, en hann er búsettur í Þýskalandi. Kona Guðmundar er Valdís
Arnarsdóttir en hún er kennaranemi og lýkur því námi í vor.
Guðmundur er deildarstjóri í smíðadeildinni í Fjölsmiðjunni sem er
vinnusetur fyrir ungt fólk, 16–24 ára. Þar gefst fólki tækifæri til að
þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám. „Við
erum með rúmlega 50 krakka hjá okkur í vinnu núna og svo erum við
10 hérna sem erum eldri.“
Afmælisdagurinn verður rólegur hjá Guðmundi og að sjálfsögðu
verður horft á leikinn Ísland – Tékkland sem hefst klukkan 18.
Guðmundur Hrafnkelsson er 50 ára í dag
Morgunblaðið/Þorkell
Kveðjuleikurinn Guðmundur Hrafnkelsson eftir síðasta leik sinn
fyrir íslenska landsliðið sem var gegn Svíum 6. júní 2005.
Með flesta leiki
fyrir Íslands hönd
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Elín Sjöfn Vignir fæddist
25. febrúar 2014 kl. 19.26. Hún vó
4.410 g og var 53 cm löng. Foreldrar
hennar eru Ragnar Vignir og Sigrún
Brynjólfsdóttir.
Nýir borgarar
Reykjavík Emma Björk fæddist 9.
október 2013. Foreldrar hennar eru
Davíð Waage og Carolina Castillo.
R
agna Ósk fæddist á Ak-
ureyri 22.1. 1955 og
ólst upp á Þrúðvangi:
„Þar vorum við með
hesta, kindur og hæn-
ur. Ég annaðist því skepnurnar og
var í heyskap. Um þetta leyti var
verið að byggja upp Brekkuna og
því krakkaskari á svæðinu. Ég var
því sveitabarn í þéttbýli.
Auk þess fékk ég að skoða landið
af hestbaki en pabbi fór í fjölda
hestaferða og ég var aðeins níu ára
þegar ég fór með honum og fleirum
austur á Seyðisfjörð á hestum.“
Ragna var í Hreiðarsskóla hjá
Jennu Jensdóttur og Hreiðari Stef-
ánssyni, Barnaskóla Íslands og út-
skrifaðist úr Gagnfræðaskólanum.
„Ég byrjaði ung að passa börn,
vann svo í Hafnarbúðinni, hjá Nesti,
bar út blaðið Íslending og sá um inn-
heimtu með skólanum. Síðar var ég
aðstoðarstúlka á tannlæknastofu og
vann í sjoppum á kvöldin.“
Ragna flutti með eiginmanni og
dóttur til Danmerkur árið 1980 er
hann hóf tæknifræðinám í Odense.
Ragna Ósk Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Toyota – 60 ára
Í Móseldalnum Sumarið 2005 hjólaði Ragna, ásamt eiginmanni sínum, systur sinni og mági, um Móseldalinn í Þýska-
landi í átta daga samfleytt. Hér hvíla þau lúin bein. Frá vinstri: Sigríður, Frosti, afmælisbarnið og Jóhann Gunnar.
Hjólreiðakona hjá Toyota
Barnabörn Gunnar Tómas, Baldur Kári, Kristín Eva, Agla Rut og Njála Rún.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is