Morgunblaðið - 22.01.2015, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
FYRSTU SNJALL-
HEYRNARTÆKIN
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
48
RAMMA
STÆRSTA OPNUNARHELGI
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
E.F.I -MBL
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus
Tíska & förðun
PÖNTUN AUGLÝSINGA, fyrir kl. 16 mánudaginn 9. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir, sími: 569 1105, kata@mbl.is
gefur út glæsilegt
sérblað um Tísku og förðun
föstudaginn 13. febrúar 2015
„Ég viðurkenni það fúslega að mér
finnst mjög gaman að fá verðlaun.
Mér finnst fínt að geta sýnt strákun-
um mínum að ég get líka fengið bik-
ar eins og þeir,“ segir Elísabet
Kristín Jökulsdóttir, sem í gær hlaut
Fjöruverðlaunin 2015 í flokki fag-
urbókmennta fyrir ljóðabókina Ást-
in ein taugahrúga. Enginn dans við
Ufsaklett. Í flokki barna- og ung-
lingabókmennta hlaut Bryndís
Björgvinsdóttir verðlaunin fyrir
Hafnfirðingabrandarann og í flokki
fræðibóka og rita almenns eðlis var
verðlaunuð bókin Ofbeldi á heimili –
Með augum barna í ritstjórn Guð-
rúnar Kristinsdóttur.
„Ég lít á þessi verðlaun sem upp-
haf að einhverju nýju. En þessi verð-
laun eru ekki bara mikilvæg fyrir
mig persónulega heldur hafa líka já-
kvæð áhrif á umræðuna um ofbeldi,“
segir Elísabet og fagnar í því sam-
bandi að borgarstjóri Reykjavíkur
og lögreglustjóri höfuðborgarsvæð-
isins hafi nýverið undirritað sam-
starfssamning um átak gegn ofbeldi.
„Mér finnst gott í upphafi árs að
byrja á því að verðlauna bók sem
fjallar um leit konu að dyrum út úr
ofbeldissambandi,“ segir Elísabet.
Það vakti athygli þegar tilkynnt
var um úthlutun listamannalauna
fyrir skemmstu að Elísabet bar ekk-
ert úr býtum. „Ég varð vissulega
reið í örfáa daga, en hef nú lagt þetta
að baki enda veit ég ekkert hvaða
forsendur lágu að baki ákvörðun út-
hlutunarnefndarinnar. Núna er ég
bara að leita annarra leiða til að
halda áfram að skrifa,“ segir El-
ísabet og tekur fram að Fjöruverð-
launin veiti sér góða hvatningu.
„Ég ætlaði ekki að þora að gefa út
þessa bók og hugleiddi að stoppa
prentvélarnar eftir að ég var búin að
senda frá mér handritið. Ég bjóst
aldrei við þeim góðu viðtökum sem
bókin hefur fengið og það skrifast á
mína eigin fordóma, því ég var búin
að dæma sjálfa mig fyrir að hafa far-
ið inn í ofbeldissamband,“ segir El-
ísabet sem trúir því að hún hafi verið
leidd áfram og að bókin hafi átt að
koma út á þessum tímapunkti.
„Sem lesandi sjálf veit ég að bæk-
ur geta verið mjög áhrifaríkar. Allar
bækur safnast saman og verða að
stóru fljóti sem dunar inni í manni,
en það eru ekki nema örfáar bækur
sem virkja mann til framkvæmda,“
segir Elísabet og rifjar upp að ný-
verið hafi komið til sín kona að
kaupa af henni bókina. „Og áður en
hún fór hringdi hún í Kvenna-
athvarfið.“ silja@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Gleðistund Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Bryndís
Björgvinsdóttir í Höfða í gær. Borgarstjóri Reykjavíkur bókmenntaborgar
UNESCO, Dagur B. Eggertsson, er verndari Fjöruverðlaunanna.
„Ég get líka
fengið bikar“
Fjöruverðlaunin veitt í 9. sinn í gær
Enginn hlýtur Ljóðstaf Jóns úr Vör í ár og
er það í annað sinn í fjórtán ára sögu ljóða-
samkeppninnar sem dómnefnd ákveður að
ekkert innsendra ljóða hljóti fyrstu verð-
laun. Þetta kom fram við setningu hátíð-
arinnar Dagar ljóðsins sem settir voru í
Salnum í gær og standa yfir í Kópavogi
fram yfir helgi.
Í dómnefnd Ljóðstafs Jóns úr Vör sitja
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, prófessor í
almennri bókmenntafræði sem jafnframt er
formaður, og Sindri Freysson, skáld og rit-
höfundur. Alls bárust um 180 ljóð í keppn-
ina í ár, en í rökstuðningi dómnefndar segir
m.a.: „Dómnefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu eftir mikla yfirlegu að
meðal innsendra ljóða í ár, sem voru mun færri en á liðnum árum, væri
ekki að finna ljóð að gæðum sambærilegt þeim sem hafa áður unnið þessa
keppni. Dómnefndin leggur því til við Kópavogsbæ að Ljóðstafur Jóns úr
Vör verði ekki veittur í ár, í stað þess leggist verðlaunaféð í ár við verðlaun
næsta árs og megi því búast við öflugri þátttöku þá,“ segir í tilkynningu, en
verðlaunaféð í ár nam 500 þúsund krónum.
Enginn hlýtur Ljóðstaf
Jóns úr Vör í ár
Skáldið Jón úr Vör.
Morgunblaðið/Ól. K. Mag.
Úlfur Eldjárn
kemur fram í
Mengi í kvöld
kl. 21. Þar not-
ast hann við
takmarkað úr-
val hljóðfæra og
tölvu til að
semja eða
spinna tónlist á
staðnum. Annað
kvöld kl. 21 leikur hljómsveitin
Skuggamyndir frá Býsans eða
Byzantine Silhouette, tónlist sem
á rætur að rekja til Búlgaríu,
Grikklands, Makedóníu og Tyrk-
lands.
Á laugardagskvöldið kl. 21
kemur Hekla Magnúsdóttir fram í
Mengi í fyrsta skipti. Samkvæmt
upplýsingum frá tónleikahöld-
urum er tónlist hennar blanda af
theremíni og söng.
Skuggamyndir frá
Býsans og Hekla
Úlfur Eldjárn