Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
✝ Ingiberg Þór-arinn Hall-
dórsson fæddist í
Reykjavík 4. júní
1926. Hann lést á
Hrafnistu 2. febr-
úar 2015.
Foreldrar hans
voru Ástbjörg
Magnúsdóttir, f. 8.6.
1890, d. 23.2. 1970,
og Jón Halldór Þór-
arinsson, f. 17.4.
1901, d. 13.7. 1999. Ingiberg átti
þrjú systkini. Elstir voru hann og
tvíburabróðir hans Harald Gunn-
ar, d. 7.11. 1997, þá er Jens Stef-
án, f. 6.4. 1929, og yngst var Ást-
björg, f. 17.10. 1930, d. 3.5. 2013.
Þá átti hann tvo hálfbræður,
sammæðra, Ludvik A. Nordgu-
len, f. 31.8. 1915, d. 25.6. 1984, og
Alfreð Nordgulen, f. 2.12. 1916,
d. 5.6. 1981.
Ingiberg bjó með Maríu
Auðunsdóttur, f. 4.12. 1929, d.
30.1. 2005, í Keflavík í lok 5. ára-
tugarins. Þau eignuðust tvo syni:
1) Kristján, f. 23.2. 1947, d. 3.7.
1990, kvæntur Kristínu Guðna-
dóttur, f. 27.5. 1947. Þau eiga
Önnu Maríu, f. 23.12. 1962, Guð-
f. og d. 21.11. 1959. 4) Egill, f.
10.1. 1962, núverandi sambýlis-
kona er Móeiður Helgadóttir, f.
3.3. 1976. Hann á Mána, f. 20.7.
1991, og Sveinbjörn, f. 3.6. 1997.
5) Guðbjörg, f. 9.6. 1963, gift
Ólafi Haukdal Bergssyni, f. 25.5.
1959. Þau eiga Berg, f. 24.4.
1985, Elísu, f. 11.8. 1991, og Unu
Birnu, f. 22.2. 1996. Fimm barna-
börn. 6) Halldór, f. 31.5. 1966,
fráskilinn. Hann á Lindu Hrönn,
f. 23.9. 1986, og Höddu Maríu, f.
24.11. 1998.
Afabörnin eru því 15, langafa-
börnin 27 og langalangafabörnin
fjögur.
Ingiberg fæddist í Reykjavík.
Faðir hans slasaðist við störf á
sjó þegar hann var fjögurra ára.
Þá var hann sendur til ömmu
sinnar og afa í Garðinum, þar
sem hann ólst upp og átti góða
og ástríka æsku í nágrenni við
hafið og sjósókn. Hann lærði til
vélstjóra og var til sjós fram und-
ir 1970. Eftir það starfaði hann
að mestu sem vélstjóri í frysti-
húsi Hvals hf. í Hafnarfirði til
starfsloka. Ingiberg og Jórunn
Hadda voru einstaklega sam-
rýnd hjón. Þau höfðu yndi af
ferðalögum um heiminn, af
dansi, spilum og að rækta verð-
launagarðinn sinn á Erluhraun-
inu.
Útför Ingibergs fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 10.
febrúar 2015, kl. 15.
nýju, f. 7.3. 1967, og
Ingiberg Þór, f.
12.12. 1973, tólf
barnabörn og fjög-
ur barnabarnabörn.
2) Óskírður dreng-
ur, f. 7.2. 1948, d.
27.3. 1948.
Ingiberg kvænt-
ist 11.4. 1954 Jór-
unni Höddu Egils-
dóttur, f. 11.4. 1935,
d. 12.8. 2008. For-
eldrar hennar voru Katrín
Helgadóttir, f. 27.11. 1905, d.
16.7. 1982, og Egill Ágúst Jó-
hannsson, f. 3.8. 1899, d. 29.7.
1942. Börn Ingibergs og Jór-
unnar Höddu eru sex: 1) Katrín,
f. 29.5. 1954, gift Jóhanni A. Guð-
mundssyni, f. 28.5. 1953. Þau
eiga Erling, f. 3.6. 1973, og Hlyn,
f. 20.8. 1980. Fyrir átti Katrín
Berglindi, f. 9.10. 1970. Níu
barnabörn. 2) Bergþór, f. 23.8.
1955, kvæntur Sirivan Khong-
jamroen, f. 30.9. 1955. Þau eiga
Jórunni Sif, f. 4.9. 1989, og Krist-
jönu Þuru, f. 4.1. 1991. Eitt
barnabarn. Fyrir átti Sirivan
dóttur, Laksönu, f. 13.11. 1974.
Laksana á son. 3) Óskírð stúlka,
Ég kynntist Ingiberg, eða
Begga eins og hann var kallaður á
meðal vina, árið 1977 þegar ég fór
að venja komur mínar á Erlu-
hraunið til að hitta dóttur hans
Guðbjörgu. Það var strax tekið vel
á móti mér af þeim hjónum. Við
Beggi náðum vel saman og ekki
síst vegna sameiginlegs áhuga á
bílum en Beggi hafði sérstakt dá-
læti á amerískum drossíum eins
og hann kallaði ameríska bíla.
Beggi var sannkallaður þús-
undþjalasmiður og var alltaf að, ef
hann var ekki að dytta að húsinu
eða dunda í garðinum með Höddu
sinni fann maður hann úti í bíl-
skúr, viðgerðir og viðhald bifreiða
vöfðust heldur ekki fyrir honum.
Hann var einkar laginn við log-
suðu og hafði gaman af að hjálpa
og taka þátt í bílaviðgerðum með
mér. Við áttum margar góðar
stundir saman í bílskúrnum á
Erluhrauninu. Það var ósjaldan
þegar ég kom í heimsókn að
Hadda sagði: „Óli minn, hann
Beggi er úti í skúr að bíða eftir
þér.“
Hann var listrænn, lærði m.a.
að skera út í tré og bjó til marga
fallega hluti en því varð hann að
hætta þegar hann fór að missa
sjónina sem var honum afar þung-
bært.
Ferðalögin sem við Guðbjörg
fórum í með þeim Begga og
Höddu bæði um Ameríku og Asíu
eru og verða ógleymanleg í okkar
huga.
Þau Beggi og Hadda voru ein-
staklega samrýnd hjón og var það
því Begga mikið áfall þegar
Hadda veiktist og lést síðan af
veikindum sínum í ágúst 2008.
Hlakkaði hann til að hitta Höddu
sína aftur og trúi ég að nú séu þau
saman á ný.
Beggi minn, nú er komið að
kveðjustund og ferðalagi okkar
saman í þessari jarðvist lokið.
Þegar ég sit hérna og skrifa þess-
ar línur er mér þakklæti efst í
huga en ég á ykkur hjónum svo
margt að þakka og mun varðveita
minninguna um ykkur ætíð. Guð
varðveiti þig, þinn tengdasonur,
Ólafur Haukdal Bergsson.
Í dag kveðjum við afa okkar,
Ingiberg Þórarin Halldórsson.
Það er margs að minnast þegar
hugsað er aftur í tímann, hversu
snyrtilegt heimili hann og Hadda
amma áttu í Erluhrauni 1 í Hafn-
arfirði, þar sem þau ræktuðu
glæsilegan garð og svo núna síð-
ustu árin á Linnetsstíg. Beggi afi
eins og við kölluðum hann, var
mikill hagleiksmaður í höndunum
og þegar hann hætti að vinna fór
hann að stunda útskurð á meðan
sjónin var í lagi og eiga flestir af-
komendur hans einhver listaverk
eftir hann. Hann var trúaður mað-
ur og ræddi nú síðustu árin mikið
um trúmál við okkur, og var afar
stoltur af því að eitt af barnabörn-
unum hans væri að læra til prests.
Hann var mikill fjölskyldumaður
og vildi fá að fylgjast með sínu
fólki og vildi að allir skiluðu sínu
og settu mark sitt á samfélagið.
Hann studdi okkur systur í okkar
afskiptum af sveitarstjórnarmál-
um, þótt önnur okkar fylgdi ekki
hans skoðunum því pólitískur var
hann þótt oftast færi hann vel með
það.
Afi og Hadda amma ferðuðust
mikið og fóru í margar siglingar
og var fróðlegt að hlusta á þau
segja frá sínum ferðalögum. Hann
hvatti okkur til að ferðast og
skoða heiminn og eigum við von-
andi eftir að gera það.
Það var mikill missir fyrir afa
þegar Hadda amma lést í ágúst
2008. Þau voru alltaf svo samrýmd
og eins og hann sagði svo oft, þá
var hún augun hans eftir að hann
fór að tapa sjón. Núna síðust árin
var afi í dagvistun á Hrafnistu og
tók þar þátt í því sem hann gat og
líkaði vistin þar ágætlega þó svo
að heima hjá sér liði honum best.
Hann naut góðs stuðnings af börn-
um sínum, án þeirra aðstoðar hefði
hann ekki getað verið svona lengi
heima.
Sumarið 2013 kom hann austur
að Helluvaði og áttum við mjög
góða daga saman og ferðuðumst
um Suðurlandið. Kvöldin fóru í
spjall um uppvaxtarárin hans í
Garðinum og svo tók hann lagið
fyrir okkur þegar líða tók á nótt-
ina, en það átti hann til núna seinni
árin, og söng hann hátt og með
góðu lagi.
Við erum þakklát fyrir að hafa
átt hann fyrir afa og að hann hafi
ekki gefið eftir föðurrétt sinn, þó
að stíft hafi verið leitað eftir því,
þegar pabbi var lítill. Afi og Hadda
amma héldu alltaf góðu sambandi
við okkur fjölskylduna í Keflavík,
mættu í öll afmæli og var alltaf til-
lhlökkun að fá þau í heimsókn.
Það er gott að geta rifjað upp
ljúfar minningar eins og núna og
svo sannarlega er margs að minn-
ast. Við viljum trúa því að afi sé
núna í góðum félagsskap með
Höddu sinni og sonunum tveimur
sem hann átti ungur með Maríu
Auðunsdóttur. Blessuð sé minning
elsku afa.
Anna María, Guðný,
Ingiberg og fjölskyldur.
Ingiberg Þórarinn
Halldórsson
HINSTA KVEÐJA
Kæri tengdapabbi.
Við þökkum fyrir ástúð alla,
indæl minning lifir kær.
Núna mátt þú höfði halla,
við herrans brjóst er hvíldin vær.
Í sölum himins sólin skín,
við sendum kveðju upp til þín.
(HJ)
Kristín Guðnadóttir
og fjölskylda.
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ALLAR SKREYTINGAR UNNAR
AF FAGMÖNNUM
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÚLÍUS BJÖRN MAGNÚSSON
Dúlli,
Lindasíðu 2,
Akureyri,
lést fimmtudaginn 5. febrúar
á dvalarheimilinu Hlíð.
Útför hans fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 13. febrúar
kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalarheimilið
Hlíð.
.
Kristján F. Júlíusson, Aldís Hannesdóttir,
Jóhanna Júlíusdóttir, Árni Þorvaldsson,
Jóna María Júlíusdóttir, Helgi Þór Þórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR KRISTÓFERSSON
vélstjóri,
Ásgarði,
Hrísey,
lést laugardaginn 7. febrúar.
Útför hans fer fram frá Hríseyjarkirkju laugardaginn 14. febrúar
klukkan 14.
.
Gunnhildur Njálsdóttir,
Sólveig Knútsdóttir,
Steinunn Kr. Hauksdóttir, Jón Smári Jónsson,
Hanna Hauksdóttir, Narfi Björgvinsson,
Jenný Hauksdóttir,
Hrafnhildur Hauksdóttir, Gísli Ingason,
Stefán Pétur Hauksson, Berglind H. Helgadóttir,
Svanhildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
EINARÍNA JÓNA SIGURÐARDÓTTIR
frá Fagurhóli,
Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu,
Nesvöllum, Reykjanesbæ, laugardaginn 31. janúar.
Jarðsett hefur verið í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins að
Nesvöllum.
.
Aðstandendur.
Okkar ástkæra,
SIGURRÓS ÓLAFSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Eir
laugardaginn 7. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
.
Ragnar, Atli, Gylfi og Ólafur Helgi Árnasynir,
eiginkonur, börn og barnabörn.
Yndisleg móðir mín, tengdamóðir og
amma,
KRISTÍN FRIÐBJÖRNSDÓTTIR,
áður til heimilis að Breiðabliki
í Neskaupstað,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
miðvikudaginn 4. febrúar.
Jarðarförin verður frá Norðfjarðarkirkju fimmtudaginn
12. febrúar kl. 13.
.
Dagrún Ársælsdóttir, Ingvi Þór Kormáksson,
Ársæll Þór Ingvason.
Ástkær fósturfaðir okkar, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON
frá Lýsuhóli,
Tjarnarbóli 14,
Seltjarnarnesi,
andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi,
miðvikudaginn 4. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. febrúar
kl. 13. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu.
.
Ásdís Edda Ásgeirsdóttir, Andrés Helgason,
Hafdís Halla Ásgeirsdóttir, Þorkell Geir Högnason,
Jóhanna Bára Ásgeirsdóttir, Agnar Gestsson,
afa- og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
EINAR HAFSTEINN ÁGÚSTSSON
rafmagnsfræðikennari,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 29. janúar.
Útför Einars fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn
13. febrúar kl. 13.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, stuðnings-
miðstöð fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra.
.
Davíð Einarsson, Ragnhildur Óskarsdóttir,
Hergeir Einarsson, Pálína Hallgrímsdóttir,
Hafsteinn Már Einarsson, Kristín Jóna Kristjánsdóttir,
Einar Örn Einarsson, María Erla Marelsdóttir,
Valur Freyr Einarsson, Ilmur María Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, bróðir og afi,
ÞÓRHALLUR BJÖRNSSON,
Engihjalla 25,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi laugardaginn 7. febrúar.
Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi þriðjudaginn
17. febrúar klukkan 13.
.
Sigríður Björg Sturludóttir,
Ágúst Þórhallsson, Jenný Ýrr Benediktsdóttir,
Björn Þórhallsson, Íris Traustadóttir,
Hanna María Þórhallsdóttir,
Árný Eva Davíðsdóttir,
Þorkell Björnsson,
Arnar Björnsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞÓRHALLUR ÓSKAR ÞÓRHALLSSON,
til heimilis að Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 1. febrúar.
Útför fer fram föstudaginn 13. febrúar
kl. 13 frá Árbæjarkirkju.
.
Þórunn Ester Þórhallsdóttir,
Sturla Þórhallsson,
Þóra Björk Þórhallsdóttir,
tengdasonur og barnabörn.