Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
Góð samskipti milli þín og
barna þinna er besta leiðin til að
vernda þau fyrir kynferðislegu
ofbeldi!
MÁ BJÓÐA ÞÉR
Í SJÓNMÆLINGU?
20% afsláttur af öllum gleraugum.
Gildir út febrúar.
Hamraborg 10 – Sími: 554 3200 – Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Nýjar
vörur
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 2. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblað Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 6. mars
FERMINGAR
Fermingarblaðið er
eitt af vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni.
Sparidress - Sumaryfirhafnir - Peysur - Blússur - Bolir
www.laxdal.is
VERÐHRUN
ALLT AÐ 70%
SÍÐASTA ÚTSÖLUVIKA
50-70%
afsláttur
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Kjartan Halldórsson,
oft kenndur við Sæ-
greifann, lést á Borg-
arspítalanum síðastlið-
inn sunnudag, 75 ára
að aldri. Kjartan
fæddist árið 1939 á
bænum Syðri-
Steinsmýri í Vestur-
Skaftafellssýslu. For-
eldrar hans voru Hall-
dór Davíðsson og Hall-
dóra Eyjólfsdóttir.
Kjartan var sjötti í
röðinni af átta systk-
inum.
Kjartan hafði alla
tíð yndi af veiðimennsku. Hann
starfaði lengst af við sjómennsku
eða frá sextán ára aldri fram til
ársins 2002, síðast á Erlingi KE,
yfirleitt sem kokkur. Hann var þó
einnig sjálfstætt starfandi verktaki
við húsaviðgerðir á árunum 1974-
1990. Kjartan stofnaði fiskbúðina
Sægreifann árið 2003. Ferðamenn
fóru að venja komur sínar til hans í
búðina í leit að góðum
fiski og fljótlega hófu
þeir að biðja Kjartan
um að elda fyrir sig
fiskinn. Hann beið
ekki boðanna, keypti
grill og hófst handa.
Sægreifinn varð þann-
ig fljótlega að vinsæl-
um veitingastað og
var þekktur víða um
lönd. Kjartan seldi
Sægreifann árið 2011
til Elísabetar Jean
Skúladóttur en hélt
áfram störfum svo
lengi sem heilsan
leyfði. Síðustu ár bjó hann einnig á
Sægreifanum.
Kjartan kvæntist tvisvar, fyrri
kona hans var Soffía Sigurgeirs-
dóttir og áttu þau soninn Jóhann
Sævar Kjartansson. Síðar kvæntist
hann Sigríði Elísdóttur og átti með
henni synina Halldór Pál og Elís
Má Kjartanssyni. Barnabörnin átti
hann níu talsins.
Andlát
Kjartan Halldórsson
– með morgunkaffinu
Aukablað
alla þriðjudaga
Gangagröftur í Vaðlaheiðargöngum
er nú hálfnaður. Við lok síðustu
vinnuviku voru göngin orðin 3.642
metrar að lengd en alls eru 7,17
kílómetrar í gegnum heiðina.
Gangamenn Ósafls fögnuðu
áfanganum og gæddu sér á tertu
frá Vaðlaheiðargöngum hf.
Nú er eingöngu sprengt á einum
stafni, Fnjóskadalsmegin, og er
ágætur gangur þar flestar vikurn-
ar. Í liðinni viku lengdust göngin
um 60 metra og með því var 947
metrum lokið Fnjóskadalsmegin.
Ekki hefur verið hægt að vinna
Eyjafjarðarmegin í langan tíma
vegna hita í göngunum en þeim
megin eru göngin 2.695 metra löng.
Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga
hf., segir að nú sé verið að þétta
bergið í stafninum með sérstakri
efnablöndu í þeim tilgangi að losna
við heitt vatn sem þar lekur inn.
Þar verður byrjað að sprengja um
leið og það verður vinnandi vegur.
Miðað er við að lofthitinn þurfi að
vera undir 28 gráðum. Vonast er til
að það verði í mars, að sögn Val-
geirs.
„Við vonumst til að þá verði
hægt að sprengja frá báðum stöfn-
um alveg þangað til þeir mætast,“
segir Valgeir en upphaflega var
ætlunin að grafa aðeins 2 kílómetra
Fnjóskadalsmegin. Tilgangur
þessa er að reyna að vinna upp
hluta þeirra tafa sem orðið hafa.
Valgeir segir að ef hægt væri að
grafa frá báðum endum án tafa
yrði hægt að vinna upp tafirnar.
Taldi hann það þó ekki raunhæft
því reikna mætti með áframhald-
andi bergþéttingum.
helgi@mbl.is
Hálfnaðir með gangagröft
Stefnt að sprengingum Eyjafjarðarmegin í næsta mánuði
Ljósmynd/Siggi Bald
Hálfnað verk Starfsmenn Ósafls fagna áfanganum inni í miðju fjallinu. Táknið hefur verið sprautað á vegginn.