Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
–– Meira fyrir lesendur
.
PÖNTUNARTÍMI
AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16,
mánudaginn
16. febrúar
Morgunblaðið gefur út sérblað
tileinkað Food and Fun matarhátíðinni
föstudaginn 20. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Food and Fun
verður haldin
í Reykjavík
25. feb. - 1. mars
Grjótháls 10 og Fiskislóð 30,
Reykjavík
Lyngás 8, Garðabæ
Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ
S: 561 4200
Hjólbarðaverkstæði
Bílabúðar Benna,
Tangarhöfða 8
S: 590 2045
FÁÐU AÐSTOÐ VIÐ VAL Á JEPPADEKKJUM
HJÁ SÖLUAÐILUM OKKAR UM LAND ALLT
ÞÚ KEMST LENGRA Á RÉTTU JEPPADEKKJUNUM
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Hlutabréf í alþjóðlega bankarisan-
um HSBC féllu í gær þegar bank-
inn þurfti að svara ásökunum um að
hafa greitt fyrir stórfelldri hagræð-
ingu skatta í gær. Kallað var eftir
því að svissnesk yfirvöld rannsök-
uðu bankann eftir að gögn birtust á
netinu um helgina um að svissneski
armur bankans hefði komið fjár-
munum vel stæðra viðskiptavina
hans í var undan skatti.
Gögnin, sem hlotið hafa heitið
„SwissLeaks“, birtust á heimasíðu
blaðamannasamtakanna Interna-
tional Consortium of Investigative
Journalists eða ICIJ, en þeim mun
hafa verið stolið af sérfræðingi í
tölvumálum og komið áfram til
frönsku lögreglunnar.
Misjafn sauður í mörgu fé
Gögnin benda til þess að bankinn
hafi árið 2007 aðstoðað viðskipta-
vini sína í meira en 200 löndum við
undanskot frá skatti. Nam heildar-
fjárhæðin um 119 milljörðum
Bandaríkjadala eða sem nemur um
15 billjónum íslenskra króna. Á
meðal þeirra sem nutu aðstoðar
bankans voru viðskiptamenn,
stjórnmálamenn og þekkt fólk úr
íþrótta- eða skemmtanaiðnaðinum.
ICIJ vakti á því sérstaka athygli í
fréttatilkynningu sinni að bankinn
hefði einnig aðstoðað alþjóðlega
vopnasala og glæpamenn, einræð-
isherra og menn hefðu sýslað með
blóðdemanta.
Hjálpaði til við undanskot
Stærsti banki Bretlands sakaður um að hafa aðstoðað við hagræðingu skatta
AFP
Stormur í aðsigi Óveðursskýin hrannast upp yfir HSBC-bankanum í Sviss.
Evrópusam-
bandið ákvað í
gær að fresta
gildistöku nýrra
refsiaðgerða
gegn Rússum, en
áformað er að
leiðtogar Rúss-
lands, Úkraínu,
Frakklands og
Þýskalands hitt-
ist í dag í Minsk, höfuðborg Hvíta-
Rússlands, og ræði þar nýjar til-
lögur um vopnahlé í Úkraínu-
deilunni. Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, fór í gær til Washington
til þess að ræða við Barack Obama
Bandaríkjaforseta um stöðuna í deil-
unni. Búist var við að þau myndu
meðal annars ræða hugsanlegar
vopnasendingar til Úkraínustjórnar,
en Merkel hefur lagst gegn öllum
slíkum áformum.
Að minnsta kosti ellefu manns
féllu í átökum á milli stjórnarhersins
og aðskilnaðarsinna í gær. Stjórn-
völd í Úkraínu sökuðu í gær Rússa
um að hafa sent 1.500 manna liðsafla
ásamt þungavopnum yfir landamær-
in til þess að styðja við sveitir að-
skilnaðarsinna í austurhluta lands-
ins. Alls hafa um 5.600 manns fallið í
átökunum, þrátt fyrir að vopnahlé
hafi verið samþykkt í september á
síðasta ári. sgs@mbl.is
Fresta gildis-
töku refsi-
aðgerða
Angela Merkel
Knattspyrnumaðurinn David Beckham kynnti í gær nýtt átak sitt í sam-
starfi við UNICEF en það hefur hlotið nafnið „7“ eftir keppnisnúmeri hans.
Átakinu er ætlað að styðja við börn sem búa á stríðshrjáðum svæðum.
AFP
Sjöan til styrktar UNICEF
Vígamenn á vegum hryðjuverka-
samtakanna Boko Haram hófu í
gær nýja sókn á Níger, nágranna-
ríki Nígeríu. Réðust þeir á fangelsi
í bænum Diffa, sem samtökin höfðu
áður ráðist á á föstudaginn, en her
Níger náði að hrinda árásinni.
Ekki fengust tölur um mannfall.
Þingið í Níger samþykkti í kjöl-
far árásanna að landið myndi taka
þátt í fjölþjóðlegu liði sem einnig
yrði skipað hermönnum frá Níger-
íu, Kamerún, Benín og Tsjad. Her-
liðinu væri ætlað að aðstoða við að
kveða niður samtökin innan Níger-
íu. Leiðtogi Boko Haram, Abubaka
Shekau, lofaði í gær að samtökin
myndu sigra herlið allra þeirra
ríkja sem nú væru að taka höndum
saman.
Sambo Dasuki, þjóðaröryggis-
ráðgjafi Nígeríu, sagði í gær að
ekki kæmi til greina að fresta
kosningum í landinu lengur en til
28. mars, en þær áttu að fara fram
næsta laugardag. Sagðist Dasuki
fullviss um að búið yrði að ráða
niðurlögum Boko Haram fyrir
þann tíma. „Við erum ekki lengur
ein.“
NÍGERÍA
Boko Haram ræðst
aftur á Níger
Í gögnunum sem birtust á net-
inu kemur fram að sex við-
skiptavinir með tengingu við Ís-
land hafi átt um níu og hálfa
milljón Bandaríkjadala eða sem
nemur rúmum 1,2 milljörðum
króna á 18 bankareikningum í
útibúi HSBC í Sviss. Er Ísland
skráð í 154. sæti yfir umsvifa-
mestu löndin í gögnum HSBC.
Við sundurgreiningu á gögn-
unum kemur fram að einn aðili
af þessum sex var með átta
milljónir Bandaríkjadala á reikn-
ingi sínum, eða um 1 milljarð ís-
lenskra króna. Hinir fimm eru
því með þær rúmlegu 200 millj-
ónir sem eftir standa.
Sex aðilar
frá Íslandi
SWISSLEAKS OG ÍSLAND