Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
„Þær þráðinn spunnu. Konur í Vestmannaeyjum 1835-
1980“ nefnist fyrirlestur sem Gunnhildur Hrólfsdóttir
flytur á vegum Sagnfræðingafélagsins í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Íslands í dag kl. 12.05.
„Fátt hefur verið tekið saman um konurnar í Vest-
mannaeyjum sem þurftu að lúta náttúruöflunum við
vatnsskort og einangrun í erfiðri lífsbaráttu. Slóðin
sem feta þarf til að finna heimildir um þær er ekki auð-
rakin,“ segir m.a. í tilkynningu.
Örlög kvenna í Vestmannaeyjum
Gunnhildur
Hrólfsdóttir
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndavefurinn Variety greindi
frá því um helgina að Baltasar Kor-
mákur kæmi til með að leikstýra
kvikmyndinni The Oath eftir hand-
riti Ólafs Egilssonar. Baltasar er
staddur á alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín, Berlinale, þar sem
hann er framleiðandi nýjustu kvik-
myndar Dags Kára Péturssonar,
Fúsa, sem frum-
sýnd var á hátíð-
inni í gær. Blaða-
maður sló á
þráðinn til Balt-
asars til að for-
vitnast um The
Oath, eða Eiðinn
eins og hún heitir
á íslensku, nýj-
ustu kvikmynd-
ina af nokkrum
sem hann mun leikstýra.
Baltasar segir Eiðinn verkefni
sem RVK Studios, framleiðslufyrir-
tæki hans, hafi verið að þróa með
Ólafi undanfarið. Upphaflega hafi
Eiðurinn átt að vera sjónvarps-
þáttasyrpa en hann hafi fljótlega átt-
að sig á því að þarna væri spennandi
efni í kvikmynd. „Þetta er eitt besta
efni og mest spennandi sem ég hef
séð fyrir bíómynd og þá er ég að
telja með það sem ég hef verið að
lesa úti. Mig langar líka að gera ís-
lenska mynd fljótlega þannig að við
ákváðum að setja þetta saman sem
bíómynd og erum komnir með hand-
rit sem við erum að byrja að kynna.
Það er slegist um að komast inn í
þetta verkefni, grínlaust,“ segir
Baltasar og á þar við erlenda fram-
leiðendur.
Læknir til bjargar dóttur sinni
En um hvað fjallar Eiðurinn?
„Þetta er bara Ísland í dag þar sem
þú sérð fréttir hverja einustu helgi
um týndar stelpur. Þessar unglings-
stelpur eru alltaf að hverfa yfir eina
og eina helgi og eru greinilega að
daðra við eitthvað sem er hættu-
legra en þær eiga að vera að daðra
við. Sagan segir af lækni, föður
stúlku sem fer að reyna að ná henni
út úr þessu og lendir í ótrúlegu mót-
læti og erfiðleikum.
Ég hef lýst þessu sem „realistic
Taken“. Það er enginn ofurpabbi
með byssu sem bjargar öllu heldur
sýnir myndin það sem er í raun og
veru að gerast í kringum okkur. Það
eru misjafnir gæjar af dekkri stigum
lífsins að draga stelpur á tálar sem
eru ekki orðnar fullorðnar ennþá,“
segir Baltasar og vísar í spennu-
myndina Taken þar sem Liam Nee-
son fer með hlutverk fyrrverandi
leyniþjónustumanns sem leitar horf-
innar dóttur sinnar og fellir hvern
þann sem stendur í vegi fyrir hon-
um. „Ég þekki nú þrjár svona sögur
sem eru ansi nálægt bæði mér og
Óla og eru mjög erfiðar,“ segir Balt-
asar um umfjöllunarefni Eiðsins.
– Læknirinn kemst þá í kast við
glæpamenn …
„Já, og svo er fjallað um hvaða
áhrif þetta hefur á allt heimilislífið,
þegar þú ert að reyna að stjórna ást-
um dóttur þinnar sem er nánast von-
laust en mjög skiljanlegt því þú vilt
ekki að hún eyðileggi líf sitt og fram-
tíð með því að fara inn í þessa heima.
Þetta er þrususpennandi. Á sama
tíma er þetta einn færasti læknir
landsins og ég er einmitt kominn
með Tómas Guðbjartsson sem sér-
legan ráðgjafa og aðstoðarmann
minn,“ segir Baltasar og á þar við
hjartaskurðlækninn þjóðkunna.
Baltasar segir ráðgjöf Tómasar
tryggja að allt sem snýr að lækn-
isfræði í myndinni verði rétt.
Mikill áhugi ytra
Baltasar segir handrit Ólafs eitt
það mest spennandi sem hann hafi
lesið og að myndin verði öll gerð á
Íslandi. Þeir sem hann hafi kynnt
myndina fyrir úti í Berlín hafi verið
mjög spenntir fyrir henni og haft
áhuga á því að koma að framleiðsl-
unni. „Þannig að ég er að vona að ég
geti gert þetta sem fyrst. Ég er að
klára Everest úti en mig hefur mikið
langað til að koma heim og halda
áfram að gera myndir heima líka,
eins og ég hef alltaf sagt,“ segir
Baltasar.
– Er mögulegt að þessi mynd fari
fremst í röð þeirra sem þú ætlar að
leikstýra?
„Það getur vel verið. Handritið er
á góðum stað, við erum búnir að
vinna saman í þessu við Óli. Óli á
náttúrlega handritið upphaflega,“
segir Baltasar og ítrekar að hann sé
meðhöfundur. Spurður að því hvort
búið sé að velja leikara í myndina
segir Baltasar svo ekki vera. „Það
eru frábær hlutverk í þessu og ég er
byrjaður að leita að leikurum en það
er ekki búið að ákveða neitt ennþá.“
Hollywood-Seyðisfjörður
Baltasar heldur frá Berlín til
Lundúna eftir viku og þegar störfum
hans lýkur þar heldur hann til Seyð-
isfjarðar í tökur á sjónvarpsþátt-
unum Ófærð. Baltasar er einn fjög-
urra leikstjóra þáttanna sem RVK
Studios framleiðir. „Það er Holly-
wood-Seyðisfjörður,“ segir Baltasar,
hlær að heimshornaflakkinu og seg-
ist afskaplega ánægður með Ófærð.
Hinar Norðurlandaþjóðirnar fái
ekki að sitja einar að því að fram-
leiða vandaða glæpaþætti.
„Enginn ofurpabbi með
byssu sem bjargar öllu“
Baltasar leikstýrir mynd eftir handriti Ólafs Egilssonar
Morgunblaðið/Ómar
Afkastamikill Mörg leikstjórnarverkefni bíða Baltasars Kormáks.
Ólafur Egilsson
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 15/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 21/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 22/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Lau 21/3 kl. 13:00
Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas.
Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas.
Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 11/4 kl. 19:00 aukas.
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 13/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 6/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Lau 14/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 17:00 Lau 28/2 kl. 20:00
5 stjörnu skemmtun að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 13/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00
Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Mið 11/2 kl. 20:00 aukas. Sun 15/2 kl. 20:00 11.k Sun 22/2 kl. 20:00
Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Mið 18/2 kl. 20:00 12.k Fim 26/2 kl. 20:00
Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Taugar - Íslenski dansflokkurinn (Nýja sviðið)
Fim 12/2 kl. 20:00 2.k Sun 22/2 kl. 20:00 4.k.
Sun 15/2 kl. 20:00 3.k. Fim 26/2 kl. 20:00 5.k.
Tvö nýstárleg og óhefðbundin dansverk
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.
Bandarískir fjölmiðlar segja söngvaskáldið Bob Dylan
hafa stolið senunni á góðgerðarskemmtun í tengslum við
afhendingu Grammy-verðlaunanna, án þess að taka lag-
ið. Kunnir listamenn á borð við Bruce Springsteen, Tom
Jones, Neil Young og Noruh Jones fluttu hins vegar lög
eftir hann. Dylan viðrar skoðanir sínar á mönnum og
málefnum sjaldan opinberlega en á föstudagskvöldið var
flutti hann 35 mínútna ræðu. Í ræðunni fjallaði Dylan,
sem er orðinn 73 ára, um rætur laga sinna og texta. Þá
þakkaði hann mörgum þeim sem studdu hann framan af
ferlinum, eins og Peter, Paul and Mary og John Ham-
mond, og listamönnum sem fluttu lög hans og auglýstu hann um leið, þar á
meðal Joan Baez, Jimi Hendrix og Johnny Cash. Dylan skaut líka föstum
skotum, til að mynda á lagahöfundana Leiber og Stoller, og gagnrýnendur.
„Þeir segja að ég geti ekki sungið. Kvaki eins og froskur. Hvers vegna
segja þeir það ekki líka um Tom Waits?“ spurði hann.
Dylan stal senunni án þess að syngja
Bob Dylan