Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.02.2015, Blaðsíða 15
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað. koll. Þær spár voru fjarri lagi og raunin er sú að nándin hefur gefið andrými fyrir betra og manneskju- legra umhverfi fyrir börnin og þau sýna í kjölfarið meiri tillitssemi og væntumþykju hvert til annars.“ Í Dalskóla er frístundastarfið einnig samofið skólastarfinu og seg- ir Hildur að það sé sérstaklega gert með hagsmuni barnanna að leið- arljósi. Fótbolti, kór og hljómsveit „Ef þú setur hreyfingu og leik með markvissum hætti inn í dags- skipulag barnsins fær það nauðsyn- lega útrás á skólatíma, án þess að þurfa að yfirgefa skólasvæðið. Minn draumur er að börn geti haft val um að æfa fótbolta með Fram hér á skólasvæðinu klukkan tíu og geti svo jafnvel farið í kórstarf eða hljóm- sveit klukkan 11,“ segir hún og bæt- ir við að mikil samheldni hafi mynd- ast meðal foreldra barna í skólanum. „Maður fær það sterklega á til- finninguna að hér séum við öll í sama liðinu. Foreldrar styðja hverjir aðra og skólann sömuleiðis, og við styðj- um við þá á móti. Foreldrarnir eru jafnan lausnamiðað og áræðið fólk, enda samanstendur hverfið aðallega af ungu fólki, fólkinu sem fer á und- an og byggir upp ný hverfi.“ Vinna með átthagafræði Í skólastarfinu er mikil áhersla lögð á tengsl við náttúruna enda af nógu að taka í nærumhverfi skólans. „Við erum með grenndarsvæði hér fyrir neðan skólann, við árbakk- ann, þar sem við ræktum meðal ann- ars kartöflur,“ segir Hildur. Hún bendir á að skólinn vinni einnig með átthagafræði í miklum mæli. „Í þeirri kennslu erum við í samvinnu við fornleifafræðing og Minjastofnun auk þess sem við erum með alla örnefnaskrá Þjóðminja- safnsins til hliðsjónar. Þannig viljum við skapa dýpri þekkingu á svæðinu á meðal barnanna og kynnast betur okkar nýju heimkynnum; dalnum okkar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Framsýn Sameining skóla- og frístundastarfs hefur gefið mjög góða raun. treyst á sjálfboðaliðastarf fé- lagsmanna, að sögn Óla Öder Magnússonar einkaflugmanns sem hefur umsjón með aðstöðunni á Heiði. „Fisfluginu er vel borgið hér; aðstæður eru góðar enda förum við ekki á loft nema þegar best viðrar. Hér erum við hins vegar komin nokkuð hátt í landið og hér er hvasst enda er ekki langt til fjalla. Að minni hyggju verður hér, það er við Hólmsheiðina, aldrei gerður að- alvöllur innanlandsflugsins. Slíkt er alveg óraunhæft,“ segir Óli Öder Magnússon. Eiga 150 flygildi Áhugi á fisflugi er mikill og vaxandi, að sögn Óla Öders. Í dag eru að hans sögn um 150 manns í Fisfélagi Reykjavíkur og eiga þeir um 150 flygildi af ýmsum gerðum; það eru um 60 vélknúnar fisflug- vélar, auk þess um 90-100 svif- vængir, svifdrekar og paramótorar sem eru svifvængir með loftskrúfu á sætisbaki flugmanns. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lending Ein flugbrautanna á Heiði er alls um 400 metra löng sem dugar vel fyrir fisflugið, til dæmis vængi og dreka, en æ fleiri iðka nú það sport. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Kíktu á verðið! Loðfóðraðir skór Verð 6.995 Fjórir litir — Stærðir 36-41 Ú 2 V S „Byggingin nýja mun gjörbreyta öllu, með þessu fæst loks í hverfið sú þjónusta sem vantar og hefur svo lengi verið kallað eftir,“ segir Þórir Jóhannsson, formaður Íbúa- samtaka Grafarholts. „Skóli, íþrótt- ir og menning verða undir einu þaki og hönnun og staðsetning er mjög skemmtileg. Það er vonandi að borgin taki sér ekki langan tíma í að ljúka verkefninu. Við höfum beðið nógu lengi eftir þessari þjón- ustu fyrir hverfið.“ Húsið sem borgin ætlar að láta reisa í Úlfarsárdal og segir frá hér til hliðar – svo og í Morgunblaðinu í gær – á sér ekki hliðstæðu. Hvergi er öll þjónusta borgarinnar á einum og sama stað, sem þó ætti að skapa hagræði og vera til þæginda. Þó ber að nefna Breiðholtið í þessu sambandi sem ákveðna hliðstæðu, þar sem menningarmiðstöðin Gerðuberg, íþróttavöllur, sundlaug og skólar eru á sömu torfunni. Ekki hefur verið ákveðið hvenær hafist verður handa um bygginguna í Úlfarsárdal, sem verður alls um 15.500 fermetr- ar. Verkefnis- og stýrihópur sem leggur línurnar um verkefnið, við hinar ýmsu stofnanir og ráð borg- arinnar, tekur til starfa á næstu vikum og að einhverjum mánuðum liðnum ætti því að fara að koma mynd á málið. Vandað verður mjög til verka, enda má verðleggja verk- efni þetta á nokkra milljarða en ár munu líða uns allt er í höfn. En fyrsta skrefið í þessa átt verður tekið í sumar með lagningu Fells- vegar við Reynisvatnsás, sem tengja á Grafarholt og Úlfarsárdal saman í eina byggð. sbs@mbl.is Dalurinn Íþróttafélagið Fram og fleiri fá aðstöðu í borgarbyggingu. Hverfið breytist  Allt verður undir sama þaki í Úlfarsár- dalnum  Stórframkvæmd í startholum Þórir Jóhannsson Ný bygging er fyrirhuguð við Dalskóla sem hýsa mun margvíslegan rekstur auk skólastarfsins. Fullyrða má að áformin séu vægast sagt metnaðarfull en um er að ræða eina stærstu fjárfestingu borgarinnar frá hruni. Verið er að leggja lokahönd á hönnun hússins sem ætlað er að hýsa skólann en áætlanir gera ráð fyrir að þá verði í kringum 700 börn í skólanum, á aldr- inum tveggja til 16 ára. Auk skólans mun þar einnig vera til húsa tónlistarkennsluaðstaða, félagsmið- stöð, tómstundaheimili, menningarmiðstöð, al- menningsbókasafn, kaffihús og sundlaug. Allt verð- ur þetta samantengt á ýmsa vegu að sögn Hildar, sem segir þó að ákveðin óvissa ríki um hvenær hafist verði handa við bygginguna. „Þetta er mjög spennandi verkefni en við vitum ekki hvort hægt verði að grafa fyrir þessu núna í vor eða hvort við þurfum að bíða fram á haust,“ segir Hildur Jóhannesdóttir skólastjóri. Húsið verður reist í áföngum en þarna mun einnig rísa nýtt íþróttahús knattspyrnufélagsins Fram sem hefur fært kvíarnar út í Grafarholt og Úlfarsárdal frá Safa- mýrinni. Metnaður fyrir framtíðinni REYKJAVÍKURBORG STYRKIR HJARTAÐ Í DALNUM Hildur Jóhannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.